Alþýðublaðið - 11.10.1967, Page 8
VEL HEI
FÖR UM
STÆRSTI viðburSui'inn í starfi
ungra jafnaðarmanna í sumar
var án efa hingaðkoma og dvöl
ungmenna frá vestur-þýzku
verkalýðssamtökunum ásamt
samsvárandi iheimsókn 18 ungra
jafnaðarmanna til Þýzkalands.
Ákvarðanir um samstarf og
skiptiheimsóknir vestur-þýzku
verkalýðssamtakanna og SUJ
voru teknar sumarið 1965 og í
fyrra voru fyrstu dvalarferðirn-
ar íarnar. Þóttu heimsóknirnar
takast með þeim ágætum að á-
kveðið var að halda þeim áfram
með sama fyrirkomulagi og ver-
ið hafði.
ÖldungadeildarþingmaBur svarar hershöfÖingja:
EFTIRFARANDI er útdráttur
úr ræðu George McGovern öld-
ungadeildarþingmanns demó-
krata í Suður-Dakóta um „Lær-
dóminn af Víetnam“, sem var
til umræðu í öldungadeildinni
25. apríl 1967. Ræðan er skel-
egg gagnrýni á aðgerðir Banda-
ríkjastjórnar í Víetnam og kem
ur fram með úrbætur eða end-
urskoðun á stefnu stjórnarinnar
þar. Hún sýnir líka, að Banda-
ríkjamenn eru ekki sammála
um gildi opinberrar stefnu í Ví-
etnam og að mikilvægar stjórn-
arstofnanir sem öldungadeildin,
koma fram með ákveðna gagn-
rýni á stefnu stjórnarinnar.
Áður en ég hef ræðu mína um
Víetnam, langar mig að benda
á nokkur atriði, sem síðustu at-
Æskan
o g
landið
Málgagn S.UJ.
Ritstjörar:
Finnur T. Stefánssoit
Of
GuSlaugur Tryggvl Karlsson.
VlEINAM-SRlÐSINS
burðir hafa staðfest. í nokkur
ár hafa ýmsir öldungadeildar-
þingmenn varað við auknum
hernaðaraðgerðum í Víetnam.
Við höfum bent á, að auknar
hernaðaraðgerðir þar af okkar
hálfu myndu líka leiða til aukn-
ingar frá hinni hliðinni og þann
ig orsaka meira og mannskæð-
ara stríð á meginlandi Asíu. —
Þetta er einmitt það sem marg-
ir okkar beztu hershöfðingjar
hafa varað við í mörg ár.
Spádómar og viðvaranir hers-
höfðingja okkar og öldungadeild
arþingmannanna hafa komið
fram. Hinar glitrandi herlausn-
ir stríðshaukanna hafa reynzt
rangar.
★ Ekki fariff fram á endur-
heimt hersins.
Núna í örvæntingu sinni,
reyna haukarnir að koma sök-
inni af mistökum sínum á gagn-
rýnendur sína. Ég ásaka ekki
Westmoreland hershöfðingja fyr
ir ræðu sína í New York, því
að hann gerir að sjálfsögðu bæði
það í New York og Víetnam,
sem honum er sagt af yfirmanni
sínum, forsetanum. Með því að
reyna láta í það skína, að það
sé óánægja í Bandaríkjunum,
sem veldur því, að Víetnambúar
halda áfram stríðinu, er stjórn-
in aðeins að játa veikleika eig-
in stefnu með því að reyna að
þagga niður gagnrýni og flækja
málið fyrir bandarísku þjóðinni.
Það eru ekki áhrif óánægjunn
ar á Hanoi, sem veldur stjórn-
inni áhyggjum, það er sú stað-
reynd, að gagnrýnendurnir hafa
sýnt fram á ósamkvæmni, mis-
færni og þar af leiðandi er vönt
un á trausti á stjórnarstefnu.
Stjórnin í Hanoi veit mjög
vel, að Bandaríkin ætla ekki að
gefast upp eða hætta þessu
stríði. Hanoi veit líka mjög vel,
að enginn bandarískur öldunga-
deildarþingmaður hefur lagt til
að Bandaríkin gæfust upp eða
færu burt.
Það sem við höfum farið fram
á er, að stjórnin hætti að magna
stríðið, að stjórnin hætti að
senda fleiri og fleiri bandaríska
herm. til þess að gera það, sem
ætti aðeins að vera gert af Asíu
búum.
★ Hvers vegna er barizt?
Kommúnismi er afl, sem er
gagnstætt bandarískum hug-
myndum, en við mætum ekki
áskorun þess, með því að neyða
bandaríska lausn upp á fólk,
sem er ennþá að leita síns eig
in þjóðernis. Mao Tse-tung get-
ur hafa sagt að „vald grói úr
byssuhlaupi“ en það hefur ekki
verið aðal uppspretta banda-
rískra áhrifa í heiminum, og
það mætir ekki aðal vandamáli
fólksins í Ásíu. Eftir að við höf
um talið hina föllnu — banda-
ríska og frá Víetnam — og land.
ið er lagt í eyði, komust við að
raun um að engu marki er náð.
Við berjumst ekki í Víetnam
út af neinu sérstöku éfni, held
ur berjumst við vegna hinnar
mjög svo vafasömu ástæðu að
þetta sé eina leiðin sóma okk
ar vegna.
Ef til* vill berjumst við einn
ig til þess að bjarga atvinnu-
sæmd þeirra, sem standa að
stjórnaráætluninni. Þeir hafa
lagt til röð af atriðum, sem
hvert um sig virðist vera afmark
að og unnið af kostgæfni, en í
raun og veru kallar hvert um
sig aukningu stríðsins.
Við virðumst ætla að bjarga
Víetnambúum frá Ho Chi Minh
jafnvel þótt þeir falli sjálfir í
valinn og land þeirra verði lagt
í auðn.
Listi af gagmrýni.
Til þess að hjálpa við endur
skoðun stjórnarstefnu okkar í
Víetnam þá.getum við haft hlið
sjón af eftirfarandi atriðum. •
1. Þeir sem ákveða stefnu okk
ar í Víetnam hafa misfært at-
burðarrásina, til þess að rétt-
ismáli, líklega til þess að verja
læta afskipti okkar af innanrík
frjálsa þjóð gegn utanaðkom-
andi afskiptum, en í raun réttri
þá styjum við einræðishóp í
Saigon gegn öðrum hóp studdum
af einræðisstjórn í Norður Víet
nam.
2. Án þess að vita af því er
stjórn okkar að styrkja málstað
kommúnista þótt hún vilji hefta
hann.
3. Við biðjum munnlega um
viðræður, meðan við í raun auk
Framhald á bls. 15.
í vor kom svo 20 manna hóp-
ur frá vestur-þýzku verkalýðs-
samtökunum og dvaldi hér um
hálfs mánaðar skeið. Var farið
með hópinn í kynnisferðir um
Suðurland og nágrenni Reykja-
víkur og haldnir fyrir hann fyr-
irlestrar um land og þjóð, ís-
lenzk stjórnmál og verkalýðs-
mál. Þá var Þjóðverjunum gef-
inn kostur á að kynnast íslenzku
atvinnulífi og belztu stjórnar-
stofnunum landsins. Var ekki
annað að skilja á gestunum, en
að þeim þætti förin góð og
sýndu allir áhuga á að koma
aftur.
Svarheimsókn ungra jafnaðar-
manna hófst þann 30. júlí. Svo
sem fyrr segir voru 18 menn í
hópnum og höfðu þeir skamma
viðdvöl í Kaupmannahöfn áður
en þeir komu til Hamborgar.
í Hamborg var hópnum tekið
tveimur höndum og kornið fyrir
í vinalegu gistihúsi í einu út-
hverfi borgarinnar. — Júrgen
Zúhlsdorff, sem var helzti leið-
sögumaður og hjálparhella ís-
lendinganna, hélt þar fyrirlest-
Á myndinni efst á síðunni sjást nokkrir þýzkalandsfaranna fyrir
íutan hið skemmtilega sumardvalarheimili v. þýzku verkalýðssamtak-
ranna í Lutjensee, en myndin hér að neðan er tekin í rútubílum,
[sem notaður var til skoðunarferða um Vestur Berlín.
g 11. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ