Alþýðublaðið - 18.11.1967, Side 4

Alþýðublaðið - 18.11.1967, Side 4
Bitstjórl: Benedikt GrSndal. Simar 14900-14903. — Auglýstngasfml: 14906. — ASsetur: AlþýSuhúslO vlð Hverílsgötu, Rvfk. — Prentsmlðla AlþýCublaOslns. Slml 14905. — Askrlftargjald kr. 100.00. — 1 lauM- sölu kr. 7.00 elntakiO. — útgeíandl: AlþýOuflolckurinn. VERÐFALUÐ BLEKKING? , FRAMSÓKNARMENN fást enn ekki til að viður- kenna, að verðfall fiskafurða erlendis hafi valdið ís- lenzku þjóðinni stórfelldu tjóni og sé undirrót þeirra •efnahagserfiðleika, sem nú er við að glíma. í Tíman- um í gær er notað orðið ,,verðfallsblekking“ — og talar það sínu máli. Sigurvin Einarsson alþingismaður hefur tekið að <:ér að sanna, að ekki sé um alvarlegt verðfall að ræða. Þetta gerði hann í ræðu á Alþingi á þann hátt, að 1 ann bar saman meðalverð helztu útflutningsafurða 1961-68 og verðlagið á þessu ári. Hins vegar lét Sigurvin hjá líða að reikna út með- alkostanað við framieiðslu útflutningsafurðanna 19 61-66 og bera hann saman við kostnaðinn á þessu ári. Ef allur tilkostnaður við að veiða fiskinn og vinna hann væri í dag aðeins meðaltalið af því, sem hann var 1961-66, þá væri ekkert vandamál við að stríða. Þetta skilja allir heilvita menn. Sigurvin Einarsson ætti að sýna þann heiðarleik að bera ekki saman verð víurðanna án þess að bera um leið saman kostnað við framleiðslu þeirra. Á árunum 1961-66 gengu framsóknarmenn fram fyrir skjöldu í kröfum um að allir skapaðir hlutir hækkuðu, kaup fólksins, verð til bænda, álagning verzl imar og fleira. Þeir töldu þá ekki ástæðu til að spyrna við fæti - svo framarlega sem útflutningsat- vinnuvegirnir gætu greitt. Þeir geta því ekki sakazt vdð aðra, þótt þjóðin hafi á þessum árum bætt lífskjör sín með vaxandi tekjum. Þess má raunar geta, >að á þessum árum byggði i íkisstjórnin upp gjaldeyrisvarasjóð. Ekki voru fram sóknarmenn hrifnir af honum. Og á síðastliðnu ári var til allmikill tekjuafgangur hjá ríkissjóði. Þessar fyrningar hafa verið notaðar til að fleyta þjóðinni í heilt ár í þeirri von, að verðlag útflutningsafurða færi aftur hækkandi. Þannig hefur ávöxtur góðu ár- auna þegar verið notaður í lélegra árferði. Samanburður Sigurvins Einarssonar jafngildir því •að hann telji kaupgjald verkafólks eiga að vera svo- sem meðaltal kaups frá árunum 1961-66. Öðruvísi verður þessi málflutningur, sem Tíminn hefur tekið undir, ekki skilinn. SHIRLEY TEMPLE SHIRLEY TEMPLE hefur boðið sig fram til Eandaríkjaþings í kjördæmi í Kaliforniu og fallið. ( Guði sé lof. 4 BARNAFATNAÐUR LADYBIRD barnafatnaður er heimsþekkt gæðavara. LADYBIRD barnafatnaður er nýkominn í eftirtaldar verzlanir: Einar Guðfinnsson, Bolungarvík Gunnar Jónsson, Vopnafirði Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum Kaupfélag Berufjarðar, Djúpavogi Pöntunarfélag Eskfirðinga, Eskifirði Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði Verzl. Emma, Skólavörðustíg' 5, Reykjavík Verzl. Ýr. Grettisgötu 32, Reykjavík Verzl. Storkurinn, Kjörgarði, Laugavegi, 59, Rvík. EINKAUMBOÐ fyrir ísland hefur: Heildverzlun V.H. Vilhjálmssonar Reykjavík. — Símar: 18418 — 16160. á krossgötum ★ VETRARHJALP FUGLANNA. Vetrarhjálp fuglanna er tekin til starfa. Á sunnudaginn rölti ég niður að Tjörn í góða veðrinu, eins og margir gera, ég hef nefni- lega alltaf gaman af að horfa á fuglalífið. í auðri vök framundan Iðnó gömlu syntu endur, gæsii- og álftir fram og aftur íhugandi vandamálin, sem alltaf segja til sín þegar haustar: að sjá sér og sínum farborða yfir vcturinn, en á Tjarnarbakk- anum mátti sjá ýmsa góðhjartaða borgara bæjar- ins, sem útdeildu nýbökuðu franskbrauði óspart til hvers sem hafa vildi. Einkum voru það þó börn í fylgd með foreldrum sínum, sem inntu þessa á- gætu þjónustu af hendi við fuglana á Tjörninni, og var ckki annað að sjá en brauðið væri vel þegið. Kannski þurfa endurnar og aðrir fuglar Tjarnarinnar ekki beinlínis á þessu gjafa- brauði að halda, mér er sagt, að bærinn sjái þeim fyrir fóðri á veturna eftir þörfum, sem líka er skylt og sjálfsagt. Engu að síður finnst mér fara vel á því að leyfa börnunum að færa þeim brauð- mola, þegar kólnar og harðnar að, með því ætti að slcapast velviljað viðhorf barnanna til fugla og dýra yfirleitt, sem eiga eftir að vcrða á vegi þeirra seinna meir úti í náttúrunni. Annars er mér nær að halda, að of- fíölgunarvandamálið sé að byrja að segja til sín í aridaþjóöfélaginu á Tjörninni. Þeim virðist hafa fjölgað ískyggilega mikið þar á síðustu árum. Það er ekki að sjá, að pillan sé neitt farin að draga úr viðkomunni, eins og menn þykjast sjá merki um í hinu mannlega samfélagi á íslandi. Ekkert er heldur líklegra en að endurnar yrðu erfiðar viðureignar í þessu tilliti, ef til einhverra gagn* í-áðstafana yrði gripið, engu síður en hjónakornin í Indlandi, þar sem ekki þykir annað hæfa en láta guð og náttúruna ráða. |i ★ VERÐUR BENT LARSEN HEIMSMEISTARI ? Danski stórmcistarinn Bent Larsen vann einn glæsilegasta sigurinn á skákferli sínum: á millisvæðamótinu í Túnis nú fyrir skemmstu, varð langefstur tuttugu og tveggja keppenda. Var þó við margan kræfan karl að etja. Því miður hætti Bobby Fischer, sem hafði mjög hagstæða vinningatölu, þátttöku í mótinu í miðjum klíðum af trúarlegum ástæðum, en slíkt mundi naumast henda Norðurlandabúa, skákin gengur allajafna fyrir guðsdýrkuninni, enda göfug íþrótt. Ýmsir spyrja, hvort Larsen eigi eftir að verða hcimsmeistari í skák. Engu skal ég spá um það. Leiðin upp í heimsmeistarasessinn er bæði löng og ströng. Það er ekki eins og að fara í lyftu, þar sem allt gerist sjálfkrafa og fyrirhafnarlaust. Hitt er greinilegt, að Larsen er ennþá í framför, og maður mcð hans metnað, sjálfstraust og hæfi- leika ætti að geta komizt langt, enda varla að efa, að hann ætlar sér mikinn hlut. Það er stundum talað um að færra sé með íslendingum og Dönum en vera ætti og frænd- semi þessara þjóða, svo og Norðurlandaþjóðanna yfirleitt, minna rækt en skyldi. Hvað sem því líð- ur, þá fylgjast íslendingar af áhuga með fram- gangi Bent Larsens og gleðjast yfir afrekum lians og sigrum, nema auðvitað þegar þeir sitja sinn hvorum megin við skákborðið hann og Friðrik Ól- afsson ! — S t e i n n . MUNIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.