Alþýðublaðið - 18.11.1967, Side 6

Alþýðublaðið - 18.11.1967, Side 6
 3 Mý plata a$ norSan: PÖLÓ OG ERLA Fyrsta plata Akureyrarkvint- ettsins PÓLÓ geröi geysilukku um land allt og enn má heyra lög af plötunni í óskalagaþátt- unum. Út er komin önnur plata með hljómsveitinni og er enginn vafi á því, að hún inun ekki ná minni vinsældum en sú fyrri. Á fyrstu plötunni sá Bjarki Tryggvason an sönginn, en á þessari hvílir það ábyrgðarmikla hlutverk á Erlu Stefánsdóttur, en þetta er jafnframt hennar fyrsta hljómplata og hafa marg- ar íslenzkar söngkonur fengið lakara „start“. Hún hóf söngferil sinn fyrir þrem árum með Póló austur í Mývatnssveit í Skjólbrekku. Haustið 1966 byrjaði hún að syngja með Hljómsveit Ingimars Eydal í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Söngur hennar vakti almenna athygli og aðdáun gesta hússins, en að einu og hálfu ári liðnu kom að því að hún Framhald á 11. síðu. ; y Póló og Erla. Illjómsveit, sem á ört vinsældum að fagna. Pálmj hljémsveitarstjóri og útgefandi plötunnar er lengst til hægri á myndinni. Erla Stefánsdóttir hefur sung ið inn á sína fyrstu plötu. > Pónik. Talið frá vinstri: Einar Júliusson, Úlfar Sigmarsson, Kristinn Sigmarsson, Björn Bjcrnsson og Sævar Helgason, til hægri. Magnús Eiríksson, fyrrverandi hljómsveitarstjóri Póniks. PÖNIK OG EINAR Hljómsveitin Pónik og Ein- ar hefur að undanförnu haft mjög hljótt um sig vegna breyt- ingar á skipan hennar. í lok ágúst gerðist þau tíðindi að hljómsveitarstjóri Póniks, Magnús Eiríksson, gítaristi, lét af störfum. Við hljómsveitar- stjórn tóku þeir Úlfar Sigmars- son og Björn Björnsson. En nú vantaði nýjan gítarleikara og varð úr, að Kristinn Sigmars- son skyldi kríndur sem Pónik meðlimur, en Kristinft er reynd ar bróðir Úlfars. Nú var sezt niður og „diskú- terað“. Síðan hófust æfingar, sem standa enn yfir að nokkru leyti. Kristinn lék síðast með Lúdó sextett, þá á bassagítar. Annars er pilturinn fjölhæfur hljóð- færaleikari; auk bassans á hann hægt með píanóleik og síðast en ekki sízt fæst hann við trompet blástur. Fagna allir í hljóm- sveitinni hinum nýja meðlim og vænta góðs af þessari breytingu. Má nú búast við, að Reyk- víkingar fái að heyra til Póniks reglulega á næstunni, auk bess sem þeir munu skemmta úti ú landsbyggðinni. Fyrir jól er væntanleg ný plata með þeim félögum. UPPTÖKIN að saltsuðu við hverahita á íslandi átti Skúli Magnússon. Árið 1752 kom hann til Kaupmannahafnar með nokk- uð af sjávarvatni til rannsókn- ar og reyndist það 6 gráður. — Keypti hann þá saltpönnur fyrir 26 ríkisdalj til að gera tilraun- ir með saltsuðu heima, en það reyndist ekki svara kostnaði að sjóða salt með því að brenna mó eða viði. Lét hann Eggert Ól- afsson og Bjarna Pálsson gera tilraun með saltsuðu við hvera- hita á Reykhólum. Guðmundur Finnbogason seg- ir þannig frá í bók sinni Iðn- sögu íslands bls. 37 í síðara bindi: 200 ár og rúmlega það eru lið- in síðan framkvæmdamaðurinn og brautryðjandinn Skúli Magn ússon keypti isaltpönnur, en fyrstu tillögur um saltsuðu hér á landi í stóru sniði gerði Gísli Magnússon (Vísi-Gísli), er vildi koma upp fjórum saltbrennslu- stofnunum, einni í hverjum fjórðungi landsins. (Iðnsaga ís- lands, II. bindi). Fyrir nokkrum árum var tals- vert unnið að rannsóknum og athugunum á möguleikum á salt- vinnslu í Krísuvík og vann Bald- ur Líndal efnafræðingur, ásamt ýmsum öðrum þar mikið og þarft verk. — Einnig gerðu þýzkir verkfræðingar þar nokkra athug- un og lögðu til, að ef gufan frá hverunum í Krísuvík eða við Sveifluháls reyndist vera nægj- anlega mikil, þá ætti að flytja hana til Hafnarfjarðar og koma þar upp saltvinnslu. — Einn- ig væri athugandi um hitaveitu fyrir Hafnarfjörð, ef gufuaflið væri nægjanlegt. Allt voru þetta athuganir og á'ætlanir, en ekkert varð úr — frekar en svo oft áður. Ástæð- urnar eru eflaust margar og verður ekki farið út í þá sálma nánar; málið er enn óleyst. EFTIR JAKOB JÓNSSON: m felst í jarðhit SALl Nú er farið að harðna á daln- um víða um land — ekki síður í Hafnarfirði eh annars staðar. Er því kominn tími til að taka máiið — saltvinnslu og hitaveitu — aftur itil athugunar og freista þess að koma því í höfn. Hafnfirðingar ættu að sjálf- sögðu að hafa hér forystu, enda eru hér miklir hagsmunir þeirra á ferðinni og Hafnarfjarðarbær er eigandi Krísuvíkur. — Á sín- um tíma réði framsýnn banka- stjóri, Ilelgi Guðmundsson, nokkru um það að Hafnarfjörður eignaðist Krísuvík. Einar Bene- diktsson sliáld, sá einnig hversu miklir möguleikar eru þar á ■ ■■■■■■■■■■ESDrnBBUESBBaBBBallBaB ()■■■*■ VÆNTANLEG fermingarbörn næsta árs eru nú að byrja að ganga til spurninga. Sjálfsagt hiakka allir prestar til þess að sjá framan í hóp barna, sem hann fær tækifæri til að ræða við tvisvar í viku mikinn hluta vetrar. Hver veit, nema hann sé nú að eignast vini, sem verði honum tryggir til æviloka? Á okkar tímum er mikið talað um, að þörf sé á æskulýðsstarfi. Stundum er talað um æskulýðs- vandamál, eins og þau börn og unglingar, sem nú eru að vaxa upp, séu meiri vanmetakindur en fyrri kynslóðir. Að halda líku fram, er hróplegt ranglæti. Hitt er auðvitað rétt, að það uppeldis- starf, sem fram for. verður að hafa annan tilgang en þann ein- an að troða í börnin alls konar vísindum, með fullri virðingu fyrir þekkingunni á öllum svið- um. Það er skapgerðar-uppeldið, sem hafa ber f huga fyrst og frcmst. Og meðal þýðingarmestu þátta þess er trúar-uppeldið, því að það miðar að því að innræta unglingunum heilbrigt viðhorf við tilverunni, siðferðilegt hug- rekki og tillit til annarra manna. En alveg eins og annað nám,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.