Alþýðublaðið - 23.11.1967, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 23.11.1967, Blaðsíða 8
m TOGARAR komnir af ’hafi og lagstir í lognið. Möstur vísa upp eins og vera ber en stefnan er niður í bókunum. Þar er hver botninn niður af öðrum eins og himnarnir hver upp af öðrum. En einhvern veginn get ég ekki að mér gert að finnast gömlu nýsköpunartogararnir fegurstir allra skipa. Þrátt fyrir ryðið, síðurnar hamraðar af ó- teljandi milljón hleraskellum og lamstri stórsjóa. Þeir eru mark aðir sömu rúnum og karlarnir, sem stigið hafa ölduna á þilför- um þeirra, sumir allt síðan í nýsköpun. í Hafnarfirði er veðursældin. Sumum verður jafnvel að orði, að þar sé lognværð yfir mann- fólkinu. Það er óréttlátur dóm- ur, því þó að húsin spegli sinn fríða svip í lognsævinu, er þó altént eilíf bræla í bæjarstjórn- armálum og yfirleitt öllum þeim málum þar sem nýtízku vinnu- vélum verður ekki komið við. En það er vissullega fleira fallegt í Hafnarfirði en togararn ir. Til dæmis er fátt fríðara en hvtítur trillubátur ó lognbáru, ekki nema það væru tveir 'hvít- ir trillubátar á lognbáru. Þeir eru líkastir svönum. Þeir spegl sig í gárunum og hugsa: ,Sjáum til: Lítið hefur mér farið aftur síðan í fyrra. Súðin er hvít og gljáandi, nema að þama er svo- lítil skella í einu borðinu. Lík- lega síðan ég slitnaði upp í vetur og lagðist á ótætis linull- unginn í fjörunni. Eiginlega er ég hissa á að kallinn skuli ekki vera búinn að kippa mér í land og klína á þetta. Kannski iætur ’hann verða af því núna undir veturinn!" Svo geispar hann værðarlega, snýr sér örlítið um bólið og kúr ir sig fastar að spegilmynd sinni. Til þess að taka mynd af frí- kirkjunni í Hafnaríirð^ þalrf vængjaðan ljósmyndara, en slík ur fótógraf þekkist ekki einu sinni i útlandinu. Uppáhalds- -sátmur fríkirkjufólks í Hafnar- firði hlýtur að vera: „Vor Guð er borg á bjargi ,traust,“ en ég er ekkert viss um að sá sálmur hljómi eins vel í eyrum á fó- getaskrifstofunni nú til dags. Oft er talað um þessa og þessa háborg menningar á hin- £,23. nóvembec 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.