Alþýðublaðið - 30.11.1967, Side 7
Oskar Jónsson:
KUGLEIDIKGAR UM NÝJAR
AWINNUGREINAR k iSLANDI
Það orkar ekki tvímælis að
framleiðsla okkar íslendinga er
mun einhæfari en flestra Evrópu
þjóða og mun einhæfari en
þeirra þjóða, sem við höfum
mest viðskipti við. Af því leið-
ir aftur að útflutningur þjóðar-
innar er afar einhæfur. Er því
mikil nauðsyn á að leita eftir
nýjum leiðum til að fjölga at-
vinnugreinum í landinu og
skapa þannig fjölbreytni í út-
flutningsframleiðslunni og nm
leið að tryggja atvinnuöryggið.
Og þá spyrja menn eðlilega: Ern.
þeir möguleikar fyrir hendi? Ég
svara því hiklaust játandi og
meira að segja margir, en hér
verða aðeins nefndir nokkrir,
sem sá er þetta ritar hefur alveg
sérstakan áhuga fyrir.
Öilum mun kunnugt um kísil-
gúrinn, sem nú fer bráðlega að
birtast í útflutningsskýrslunum
og -einnig ekki langt undan gjald
eyristekjur af Álverksmiði-
unni við Straumsvík. Ber að
fagna slíkum stórátökum og
þakka, og þá ekki sízt þeim
sem þar hafa haft myndarlega
forgöngu um. Og væri sannar.
lega óskandi að fleiri slíkar stór
virkjanir kæmu fljótlega í kjöl
far, þeirra tveggja, sem hér voru
nefndar.
En fleira er matur en feitt-
kjöt, sagðí karlinn, á ég þar
við að ennþá eru ónýttir marg-
ir möguleikar, sumir bíða við
bæjardyrnar. T.d. eru hér við
land mjög miklar skelfisksnám
ur, misjafnlega þó eftir lands-
hlutum. Væri mikil þörf á því
að rannsaka möguleika á verð-
mæti skelfisksins með því að
breyta honum í arðbæra útflutn
ingsvöru.
í öllum eða flestum fjörð-
úm, sem skerast inn í Vestfjarða
kjálkann frá Látrabjargi norð-
ur til Straumness norðan við ísa
fjarðardjúp, eru mjög miklar
námur af kúfiski, sem nú er
ekki lengur nýttur, en ear um
og eftir s.l. aldamót mikið not
aður til beitu við línuveiðar þar
vestra. En með tilkomu frysti-
húsanna og aukningu síldveiða
hefir hann fengið að hvíla í
friði í fjörðunum þar Vest-
ra. Þótt ég nefni þessa staði
getur hann verið á miklu fleiri
stöðum hér við land.
Ungur að árum var ég oft við
að afla kúfisksins, bæði til sölu
og eins í eigin þarfir til beitu
og þekki því vel svæðin vestra
og það mikla magn, sem bíður
þess að verða nýtt og gert að
verðmætri útflutningsvöru.
Öllum hinum eldri sjómönn-
um hér við Faxaflóa mun
kunnugt um að á tímum ára-
skipanna hér við Flóann, var
kræklingur mikið notaður í
beitu. Aðallega var hann sóttur
upp í Hvalfjörð og engin líkindi
til að hann sé ekki enn þar
fyrir hendi. Var hann fluttur
þaðan á vorin í heilum báts-
förmum til veiðistöðvanna á
Suðurnesjum og víðar.
Sagt hefir mér verið af þeim
manni, sem manna best kann
skil á skelfiski við íslands
strendur að kræklingurinn sé að
allega við suðvesturströndina, en
minna annarstaðar við landið.
En þetta mun ekki fullrannsak-
að ennþá. En sá er munur ó
kræklingi og kúfiski að krækl-
inginn má rækta með mjög 6-
dýrri og frumstæðri aðferð. Það
gera t.d. Frakkar og hafa miög
aukið framleiðslu hans með
ræktun fisksins. Kræklingur, til
reiddur á ýmsa vegu, þykir hið
mesta lostæti, enda nemur nú
framleiðsla Frakkanna tugmilljón
um franka árlega. Mun Faxa-
flói vera hinn ákjósanlegasti stað
ur til kræklingsræktar. Ekki
þarf að hugsa mikið fyrir fóður
kostnaðinum, aðeins útbúa skVt
yrði fyrir uppvexti hans og við
komu. Og ég efast heldúr ekki
um að hér á landi eru svo margir
vel menntaðir fiskifræðingar og
kunnáttumenn í niðursuðuiðn-
aði, að ekki þyrfti hugmynd nð
stöðvast vegna þess að kunnáttu
menn vanti. En hitt væri sjálf
sagt að styrkja einhvern, sem
áhuga hefði á kræklingsrækt til
að læra af þeim frönsku sitt
hvað í þessari iðn.
Fyrir nokkrum árum var kú-
fiskur frystur til útflutnings *;1
Bandaríkja Norður-Ameríku.
Ekki mun sá útflutningur hafa
lánazt og þá ekki sízt fyrir það,
að í skelfiski þessum eru eitur-
ÁSKRIFTARSÍMIER 14900
Alþýðublaðið
efni, sem eru yfir það hámark.
sem heitbrigðisyfirvöld þar í
landi hafa sett mjög strangar
reglur um. Féll því þessi út.
flutningur niður. En fyrir at-
beina eins vestfirzks dugn-
aðarmanns, var gerð tilraun
með að sjóða kúfiskinn niður í
dósir og var það gert undir um-
sjón og eftirliti dr. Jakobs Sig-
urðssonar rétt í þann mund er
Fiskiðjuver ríkisins var selt o.g
niðursuðu hætt. En eigi að s.'ð
ur lánaðist þessi sending vel og
við niðursuðuna var eitruiún
það lítil að hún var fyrir neðan
leyfilegt hámark í U.S.A., endi
algerlega skaðlaus. Verðið. som
fékkst fyrir þessa sendingu gaf
vonir um að hér væri fyrir
hendi ný atvinnugrein, en sem
því miður hefir ekki ennþá orð.
ið.
En hér má ekki láta staðar
numið. Persónulega hef ég þá
sterku trú að gera megi kúfisk
inn vestfirzka að arðbærri út-
flutningsvöru. Áður fyrr var
hans aflað með mjög frúmstæð-
um aðferðum en með nútíma
tækni veit ég að veiðiskapurinn
yrði mjög ódýr og þá ekki sízt
fyrir það að öflun hans færi að-
allega fram á fjörðum inni þar
vestra og mætti drýgja vetrar
vinnuna allnokkuð. Á Vestfjörð
um eru fremur smáar niðursuðu
verksmiðjur og gætu þó samt
annazt tilraun. allar til að byrja
með, þ.e.a.s. soðið hann niður i
dósir. Hins vegar ef atvinnu-
grein þessi gæfi góðan árangur,
mætti annaðhvort auka þar a£.
köstin eða flytja hann milli
landshluta þar sem afkastageta
niðursuðuverksmiðja er næg. —
Kúfiskurinn þolir nefnilega
geymslu í nokkra daga, en þá
í ferskum sjó. En það myndi
vera með þessa veiði eins og
rækjuna, að ekki mætti ofgar.ga
á stofninn og yrðu veiðarnar að
vera undir vísindalegu eftirliti
eins og til dæmis rækjuveiðar.
Mig minnir að Sigurður
Bjarnason alþm. hafi hreyft
þessu máli á Alþingi fyrir nokk
rum árum og jafnvel að sam-
þykkt hafi verið gerð um ath. í
þá átt, sem hér hefir verið rætt
um, en ég vissi ekki hvort nokk
uð hefði gerzt frekar í málinu.
Væri hér tilvalið verkefni
fyrir Fiskimálasjóð að styrkja
tilraunir með framleiðslu á skel
fiski, sem flytja mætti á er-
lenda markaði, ef einhverjir
einstaklingar eða það opinbera
vildi. brjóta hér ‘ísinn.
Fyrir ca. þrem ártugum var
hvorki rækja eða humar til á út
flutningsskýrslunum, en 19G6
voru þau 3% af heildarútflutn-
inginum eða 160 millj. króna.
Þetta eru engar stórupphæðir,
en munar þó nokkru ef hægt
væri að fjölga vörutegundun
um. En bæði rækja og humar
gefa mikla atvinnu landverka-
fólki.
Svipull er sjávarafli, segir
gamalt máltæki og höfum við
íslendingar fyrr og síðar oft
fengið að kenna á því, væri því
sannarlega ekki úr vegi að líta
í fleiri áttir en gert hefir verið
og fjölga þeim tegundum, sem
geta gert útflutningsframleiðsl-
una fjölbreyttari.
Hefi ég rætt hér að framan
um skelfiskinn, en vil nú með
nokkrum orðum minnast á fiski
rælct, eða nánar tiltekið eina
hlið hennar.
Danir fluttu út 1965 fiskafurð
ir, sem þeir rækta í ósöltu
vatni, að magnj til um 11.000
lestir og hafði sú tala hækkað
frá því árið áður um 2.555 lest-
ir. Sagt er mér af fagfróðum
mönnum í þessarj iðn að gera
megi ráð fyrir að fob. verðmæti
þessa vatnafisks hafi verið í
kringum d.kr. 8 fyrir hvert kg.
Það blandast víst engum hugur
um að vatnið, sem Danir verða
að rækta fiskinn í, er mun óhoil
ara en hið hreina og tæra ís
Óskar Jónsson. v
lenzka vatn. Og þá vaknar sú
spurning hvers vegna höfum v;3
íslendingar látið þetta fram hjá
okkur fara? Aðallega munu Dan
ir rækta regnbogasilung, sem
er, eða hefir verið eftirsótt
heimsmarkaðsvara.
Fyrir nokkrum árum býrjuðu
Norðmenn að rækta silpnginn
í söltum sjó í það sem þeir kalla
á norsku „Flyedammer’* sem
mætti kalla á íslenzku flbttjarn
ir eða fiskiker. Þannig fi^kirækt
fer fram í ósöltu vatni. vStærð
þéssara flottjarna eru 2x5 mtr.
eða 10 mtr. að flatarmáli, á
liæð 2 mtr., alls 20 rúmijneirar.
Þarf vatnið að vera minnst 2;á
mtr. á dýpt.
1964 voru gerðar tilraunir á
nokkrum stöðum í Noregi með
þannig lagaða fiskirækt. Sagt
er frá tveimur tilraunum, önn
ur var gerð í Árefjorden við
Moss en hin við Kongsveinger.
Við Moss tókst tilraunin ágæt-
lega, drápust aðeins 16 seyði af
2000, sem látin voru í kerið, en
nokkru fleiri á hinum staðnum.
Var um kennt að gæði seyðanna
Tramhald á 14. síðu.
Óbreytt verð
Eigum ennþá takmarkaðar birgðir af
eftirtöldum hjólbörðum,
á cbreyttii verði:
520 x 13 kr. 668,—
590 x 13
640 x 13
670 x 13
520 x 14
560 x 14
590 x 14
560 x 15
640 x 15
500/525 x 16
600 x 16
650/670 x 16
550 x 17
650 x 20
750 x 20
— 815,—
— 930,—
— 970,—
— 735,—
— 810.—
— 860,—
— 845.—
— 1153,—
— 815,—
— 1201.—
— 1285,-
— 850,—
— 2158 —
— 3679.—
Gerið hagstæð kaup
SsSÐ' KORiSTJAN550N H.f.
U M 8 0 fl MJ • suðuriandsbraLit 2 • sími 35300
30. nóvember 1967 - AIÞÝÐUBLAÐIÐ J