Alþýðublaðið - 30.11.1967, Blaðsíða 9
í útvarpsumræðunum frá Alþingi í fyrrakvöld flutti Gylfi Þ. Gíslason
tæSu, sem vakti mikla athygli. Fjallaði hún um þá pólitík, sem fram-
sóknarmenn og kommúnistaleiðtogarnir í Alþýðubandalaginu hafa rekið
! stjórnarandstöðu undanfarin ár og reka enn. Fletti Gylfi ofan af því,
hvernig þeir hafa látSð pólitíska valdabaráttu ganga fyrir hagsmunum
íilþýðunnar. Ræðan er óvenju opinská og á erindi til allra, sem áhuga
hafa á íslenzkum stjórnmálum — ekki sízt lausn þeirra vandamála, sem
þjóðin er nú að glíma við.
þjóðin hefði sýnt vantraust, auk
in stjórnmálaítök.
Snið&anga reglur lýðræðis-
ins.
Ég vil hvetja alla þá, sem mál
mitt heyra, til þess að hugleiða
vandlega, hversu alvarlega hluti
hér er í raun og veru um að
ræða. Framsóknarforingjarnir
og kommúnistaleiðtogarnir eru
í sannleika sagt flð sniðganga
’leikreglur lýðræðis, þeir eru að
storka þeim meiri hluta kjós-
enda, sem hefur hafnað forystu
þeirra í frjálsum kosningum.
Þeir eru í raun og veru að segja
við þennan meiri hluta: Það
skiptir engu máli, hvaða ríkis-
stjórn þið viljið hafa og hvaða
stjórnarstefnu þið viljið láta
fylgja. Verkfallsvopnið er svo
sterkt, að sé því beitt kröftug
lega, þá verður ríkisstjórnin
að víkja og kalla á stjómarand
stöðuna til hjálpar, þannig fá-
um við hlutdeild í völdunum
og aðstöðu til þess að fram-
kvæma að einhverju leyti okkar
stefnu, hver svo sem niðurstaða
kosninganna hefur orðið.
Hér er að sjálfsögðu um al-
gjörlega ólýðræðislegan hugsun
arhátt og verknað að ræða. Það
er í sjálfu sér ekki undrunar-
efni, að kommúnistar skuli
hugsa þannig og ' breyta í sam
ræmi við það. Þeir hafa' ekki
einu sinni i orði ýmsir hverjir
fallizt á leikreglur lýðræðis og
þingræðis, og telja þau þjóðfé-
lög til fyrirmyndar, þar- • sem
hvorki ríkir lýðræði né þing-
ræði. En hitt hljóta menn að
undrast, að leiðtogar Framsókn
arflokksins skuli gefa kommú-
nistaforingjunum neitt eftir í
ákefð sinni við þessa iðju. Það
ætti að vera alvarlegt umhugs-
unarefni fyrir almenna fylgis-
menn Framsóknarflokksins, sem
ég efast ekki um, að séu yfir-
leitt góðir lýðræðissinnar. Er
þeim í raun og veru að skapi,
að foringjar þeirra hegði sér
eins og þeir gera? Er þeim að
skapi, að ekki skuli ganga hníf-
urjnn milli Framsóknarforyst-
unnar og kommúnistaleiðtog-
anna? Er það i samræmi við
vilja þeirra, að samtímis því,
sem ýmsir verkalýðsleiðtogar í
Alþýðubandalaginu taka ábyrga
afstöðu og láta ’hagsmuni laun-
þeganna ráða gerðum sínum,
— en ekki stjórnmálasjónar-
mið, þá skuli bókstaflega eng-
inn Framsóknarforingi hafa á-
huga á neinu öðru en pólitískum.
hráskinnaleik og valdabraski.
*** Þegar Framsókn er með
gengislækkun.
Sú vantrauststillaga, sem hér
er til umræðu, er í orði kveðnu
borin fram vegna þess, áð gengi
krónunnar hefur verið lækkað.
Fyrsti flutningsmaður hennar
er fbrmaður Framsóknarflokks-
in', Eysteinn Jónsson. í sjón-
varpsþætti um daginn spurði
fréttamaður Eystein Jónsson,
hvort Framsóknarflokkurinn
hafi verið fylgjandi gengislækk
un, áður en Bretar felldu sterl-
ingspundið. Eysteinn Jónsson
tók þessu fjarri, og lét nónast
í ljós undrun yfir því, að nokkr
um skuli geta dottið annað eins
í hug. En það er sannarlega
ekkert undarlegt, þótt mönnum
detti í hug, að Framsóknarflokk
urinn sé í raun og veru fylgj-
andi gengislækkuninni og
myndi jafnvel hafa haft hana
meiri, ef hann ’hefði mátt ráða.
Framsóknarflokkurinn má ekki
halda, að menn muni ekki eitt-
hvað aftur í tímann. Fyrsta
gengislækkunin, sem gerð var
hér á landi, eftir að föst geng
isskráning var tekin upp, var
gengislækkunin vorið 1939. Þá
var Eysteinn Jónsson, viðskipta
málaráðhei»ra og ráðherra banka
máía. Hann flutti þá margar
ágætar ræður, bæði innan þings
og utan, um, að gengislækkunin
væri- skynsamlegasta leiðin út
úr þeim vanda, sem þá var við
að etja. Útgerð landsmanna
hafði þá um langt skeið verið
rekin með halla, vegna verð-
falls, sem sigldi í kjölfar heims
kreppunnar miklu og mi^si mik
ilvægra markaða vegna Spánar
styrjaldarinnar. Reynt hafði ver
ið að sigrast á erfiðleikunum
með ýmsum ráðum, m.a. ströng
um innflutnings- og gjaldeyris-
höftum. En allt kom fyrir ekki.
Vorið 1939 var talið óhjákvæmi
legt að lækka gengið, og var því
tvímælalaust rétt. Þá taldi Ey-
steinn Jónsson það líka rétt,
enda var hann ráðherra.
Næst var almenn gengislækk-
un gerð 1950. Hana bar að með
sérkennilegum hætti. Minni-
hlutastjórn Sjálfstæðisflokks-
ins hafði setið að völdum og bor
ið fram frumvarp um gengis-
lækkun, en þá var gengisskrán-
ingarvaldið í höndum Alþingis.
Framsóknarflokkurinn bar þá
fram vantraust á ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokksins vegna
gengislækkunarfrumvarpsins,
rétt eins og nú. Vantraustið var
samþykkt, enda var ríkisstjórn-
in þá í minnihlutastjórn. En
þegar eftir að vantraustið hafði
verið samþykkt, myndaði Fram
sóknarflokkurinn ríkisstjórn
með flokknum, sem hann hafði
verið að lýsa vantrausti á, og
samþykkti með Honum gengis-
lækkunarfrumvarpið, sem hafði
verið tilefni vantraustsins. í all
ri sögu Alþingis íslendinga hef
ur enginn stjórnmálaflokkur
hegðað sér með líkum hætti og
Framsóknarflokkurinn gerði í
þessu máli. Enginn íslenzkur
stjórnmálaflokkur hefur nokk-
urn tíma afhjúpað jafnberlega
málefnalausa tækifærismennsku
og Framsóknarflokkurinn gerði
í þetta sinn. Gengislækkunin
var röng, meðan Framsóknar-
flokkurinn var utan ríkisstjórn-
ar. En hún varð rétt 'á samri
stundu og 'hann var kominn í
ríkisstjórnina.
Auðvitað gleymist þetta ekki.
En með hliðsjón af því þarf for
maður Framsóknarflokksins
ekki að verða hissa, þótt hann
sé spurður, hvort Framsóknar-
flokkurinn hafi verið eða sé
kannske fylgjandi gengislækkun
inni nú.
Þegar ríkisstjórn Hermanns
Jónassonar átti við sem mesta
efnahagsörðugleika að etja, þá
örðugleika, sem að endingu
leiddu til falls hennar, gerðu all
Framhald á 10. síðu.
IRÆÐUNUM I FYRRAKVÖLD
Opnum á morgun
nýja matvöruverzlun ásamt söluturni að Búða
gerði 9i ]]
Opið frá kl. 8,30 — 23,30 alla daga vikunnar.
Leggjum áherzlu á góða þjónustu.
Reynið viðskiptin.
VÖRUVAL — VÖRUGÆÐI
S ÖEBECHSVERZLUN
Búðagerði 9.
Sími 32140.
Vetrarkápur
Rúskinnskápur — Pelsar með loðkrögum
í úrvali.
Kápu og dömubúðin
Laugavegi 46
/ dag og næstu daga
seljum við ítalskar brúður á niðursettu verði og
margt fleira.
Gjörið svo vel og lítið inn.
Frístundabúðin,
VELTUSUNDI 1.
Bílasprautun
Meistara i bílamálun
vantar strax
Upplýsingar í sima:
35740
í dag
Keflavik
Blaðberar óskast til að bera Alþýðublaðið
til áskrifenda í Keflavík.
Upplj|singar í síma 1122.
30. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAOIÐ $