Alþýðublaðið - 30.11.1967, Page 10

Alþýðublaðið - 30.11.1967, Page 10
RÆÐA GYLFA... Framhald úr opnu. ir ' stjórnarflokkarnir tillögur um lausn þeirra, þótt samstaða næðist ekki, svo sem kunnugt er. Vorið 1958 stakk Framsókn arflokkurinn upp á því, að lagt yrði almennt gjald á bæði út- flutning og innflutping, jafn- hátt á báða bóga. Jafngilti þetta að sjálfsögðu gengislækkun, og var bæði Framsóknarmönnum og okkur öllum hinum það jafn- Ijóst. Þá var gengislækkun m.ö. o. leið út úr vandanum. Það var rétt hjá Framsóknarmönnum, ’ enda voru þeir þá í stjórn. En þegar núverandi stjórnarflokk- ar lækkuðu gengið tæpum tveim árum seinna, var það orð ið alrangt, enda voru Framsókn armenn þá ekki í stjórn. A*. Einn ráffherrastóll — eða tveir? ’i Með hliðsjón af öllu þessu mega foringjar Framsóknar- flokksins hreint ekki verða hissa á því, þótt mönnum detti í hug, að þeir séu í raun og veru alls ekki á móti gengislækkun- inni, þótt þeir flytji vantraust á rikisstjórnina hennar vegrna. Vita í raun ogr veru ekki allir, sem þekkja dálítið til Framsókn arflokksins, að það hefði verið Irtill vandi að fá hann til þess að samþykkja grengislækkunina. Iáklegra hefði einn ráðherra- 5 stóll dugað. Engrinn vafi er á, j að tveir hefðu verið fullnægrj- andi. En ríkisstjórnin er þejrr- ij ar skoðunar, að grengislækkun- I iu sé iafn nauðsynlegr, hvort :■ sem Framsóknarflokkurinn er með henni oða móti. Meira máli skiptir þó hitt, að það er hægrara að láta grengislækkun- ina koma atvinnuvegunum að gragrni, að það er hægrara að verja þá, sem höllustum standa fæti, áföllum vegma gengrislækk- nnarjonar án Framsóknarflokks ins en með honum. Þess vegna látum við okkur í léttu rúmi iigrgrja, þótt hann tali gegn henni. Við vitum, að hún var nauðsvnleg. Við vitum Iíka, að það hefði verið auðvelt að fá Framsóknarflrftkinn í lið með henni. En við kærum okkur ekk ert um að grejffa þaff verff fyrir fylgri Framsóknarflokksins sem við þykjumst vita, að hann mundi setja upp. Viff kærum okkur ekki um að taka upp þá afturhaldsstefnu í efnahagrsmál um, sem Framsóknarflokkurinn affhyllist. Viff kæri-m okkur ekk ert um þaff aff grefa kost á að efla þá sérhag^muni. sem viff vitum, aff hann ber fyrir brjósti. Það er i sannleika sagt ö.mur- legt, hvílíkt hlutskipti næst- stærsti stjórnmálaflokkur þjóð- arinnar, Framsóknarflokkurinn, hefur kosið sér á síðari árum. Það er engu líkara en níu ára vist utan stjórnarráðsins hafi rænt forystu flokksins allri heil brigðri dómgreind og ábyrgðar- tilfinningunni í þokkabót. — Flokkurinn er orðinn harðasti kaupkröfuflokkur þjóðarinnar. Engin kauphækkunarkrafa er sett fram án þess að Framsókn arflokkurinn styðji hana. Sam- tímis styður hann allar kröfur atvinnurek(enda um aukna styrki úr ríkissjóði. •Hann heimtar auk in bankalán til atvinnurekenda og húsbyggjenda og lækkaða vexti. Jafnframt er hann á móti ráðstöfunum, sem ætlað er að auka sparifjármyndun. Hann 'krefst hækkaðs hlutar úr fisk- verði til sjómanna, samtímis því, að hann telur bátana hafa of lélega afkomu. Jafnframt tel ur hann frystihúsin berjast í bökkum og þurfa að fá aukinn ríkisstyrk. Hann ber fram til- lögur um stóraukin ríkisútgjöld samtímis því, að hann krefst lækkunar skatta og tolla. Hann ýtir undir óánægju kaupmanna með ólagningu sína og krefst afnáms verðlagseftirlits jafn- framt því, sem hann segir neyt- endur þurfa að fá lægra vöru- verð. Hann krefst hækkaðs verðs á landbúnaðarafurðum til þess að hækka kaup bændanna jafnframt því, sem hann hvíslar því að verkamanninum, að hann hljóti að sjá, hversu dýrtíðin sé voðaleg. Og þannig mætti lengi telja. Ef Framsóknarflokkurinn fréttir einhvers staðar af kröfu gerð, þá er hann komipn þang- að til þess að styðja hana. Ef Framsóknarflokkurinn fréttir af einhverjum hópi manna, sem 'hann telur að hægt sé að gera óánægða, þá er hann kominn þangað til þess að blása í glæð- urnar. Ef hann telur einhverj- ar líkur á verkfalli, þá hvetur hann til þess. Ef reynt er að ná sáttum í vinnudeilu, eins og í farmannadeilunni um daginn, þá reynir hann að koma í veg fyrir það. Framsókn verri en komm- únistar. Þetta er ótrúlegt, en það er því rriiður satt. Svona hefur eng inn flokkur hegðað sér áður á íslandi, ekki einu sinni komm- únistar. í hópi þeirra hafa oft reynzt vera menn, sem litið hafa á vandamál dagsins af ábyrgð- artilfinningu. Allar götur síðan Sósíalistaflokkurinn var stofn- aður hefur verið á allra vitorði, að sú fylking hefur verið sam- ansett af mönnum með mjög ólíkar skoðanir, og sá ágrein- ingur hefur hvað etir annað komið upp á yfirborðið. En því miður virðist enginn ágrein- ingur vera í þingliði Framsókn- arflokksins. Það virðist næstum ó'hugnanlega sammála um lýð- skrumið og ábyrgðarleysið. Svo grátt hefur níu ára dvöl utan ríkisstjórnar náð að leika Fram sóknarflokkinn. Góðir hlustendur! Þessi van- trauststillaga verður að sjálf- sögðu felld, og ríkistjórnin mun halda áfram störfum sínum í samræmi við mótaða stefnu. En því fer víðs fjarri, að sá þing- meirihluti, sem stendur að baki ríkisstjórnarinnar, hyggist nota vald sitt af yfirlæti. Okkur er ljóst, að þjóðin hefur orðið fyr- ir miklu áfalli í efnahags- málum. Við drögum enga dul á, að fram undan eru erfiðir tím- ar. Við komum fram af hrein- skilni og segjum þjóðinni, að hún verði að sætta sig við nokkra kjaraskerðingu í bráð. Okkur er ljóst, að gengislækkun er alvarlegur atburður. Einmitt þess vegna var e'kki gripið til hennar fyrr en hún var talin óhjákvæmileg og augljóslega langskynsamlegasta úrræðið. — Þegar slík alvara er á ferðinni, er okkur ljóst, að okkur ber að leita allra ráða til þess að öll framkvæmd gengislækkunarinn ar og ráðstafana í sambandi við hana sé sem sanngjörnust og réttlátust og allt sé gert til þess að áhrif hennar verði sem minnst hjá þeim, sem erfiðast eiga með að þola hana. Við ætlum okkur ekki þá dul, að viff í ríkisstjórninni eða stjórnarflokkunum vitum allan sannleika í þessum efnum. Þess vegna viljum viff gjarnan hafa sem nánust samráff viff þá að- ila, sem líklegast er, að gefið geti vísbendingar um, hvernig hægt sé að haga framkvæmda- atriðum skynsamlegast. Að því er hagsmuni launþega snertir, er liklegast að heildarsamtök þeirra geti hér gefiff góð ráð. Þess vegna hefur ríkjsstjórnin lagt á það áherzlu, að samstarf takist og haldist viff Alþýðusam band ísiands. — Ríkisstjórnin mun reyna að taka tillit til allra ábendinga og allra góðra ráffa, semi þaðan berast, «g líkleg væru til þess að létta Iaunþeg- um þær byrðar, sem nú þarf því miður aff leggja á herðar þeirra um sinn. Á sama hátt telur ríkisstjórnin sjálfsagt að liafa samráð viff samtök atvinnu rekenda, bæði í sjávarútvegi, iðnaffi og verzlun, sem og bændasamtökin, um þaff, með hvenjum. hætti fyllsta gagn geti orðið að gengisbreytingunni. — Ríkisstjórnin er því ekj;i heldur andvig aff hafa um þessi mál samvinnu við þá stjórnmála- flokka, sem eru í stjórnarand- stöðu. En slík samvinna má ekki byggjast á hrossakaupum, heldur á sameiginlegum skiln- ingi á vandamálum og sam- starfsvilja til þess að leysa þau. Alvörutímar eins og þeir, sem víð nú lifum, e.iga ekki að vera tími þjóðfélagsátaka og ófrjórra dejlna, heldur tímar samstarfs og sameiginiegs átaks til þess að koma þjóðarskútunni út úr þeim þunga straumi, sem hún hefur nú orðið að sigla gegn um hríð. Það getur tekizt. Það vdrður að takast. íslendingar hafa oft áður orðið fyrir mikl- um áföllum í efnahagsmálum. — Nægir í því sambandi að minna á lijreppuárin eftir 1930 og árin eftir 'heimsstyrjöldina síðari. Ég er að vísu þeirrar skoðunar, að þá hafi 'í bæði skiptin verið lát- ið dragast of lengi að grípa til þeirra ráðstafana sem dugðu. — En ég ásaka engan í því sam- bandi. Það er alltaf erfitt að taka afdrifaríkar ákvarðanjr. — Það hefur eínnig átt sér nokk- urn aðdraganda að þessu sinni, að hin endanlega ákvörðun væri tekin um að lækka gengi krón- unnar. En það er þó gert fyrr nú en nokkru sinni áður undir svipuðum kringumstæðum, — nema 1961. Einmitt það ætti að geta gefið fyrirheit um, að gengislækk/unin komi að því gagni, sem til er ætlazt. En frumskilyrði í því sambandi er, að ekki verði hækkun á fram- leiðslukostnaði innanlands fyrst um sinn. Ef það verður, er hag- ur útflutningsatvinnuveganna og iðnaðarins af gengislækkun- inni rokinn út í veður og vind, og vofa hallareksturs, greiðslu- halla og atvinnuleysis komin á kreik aftur, sú vofa, sem geng- islækkuninni einmitt er ætlað að halda frá dyrum okklar. Eins og ég sagði í upphafi máls míns, hef ég þá bjargföstu trú á dómgreind íslendinga, að þeir sjái og skilji, að við erum á réttri braut, að nú höfum við gert rétt, og að nú þurfum við um sinn að sætta okkur við minna en undanfarin ár, til þess að ný sókn geti hafizt fram á við, fyrir framförum og bætt- um lífskjörum. Við búum í góðu landi, sem okkur þykir vænt um, sjórinn er gjöfull, og við eigum auðlindir í hverum og fallvötn- um. En mesti auður okkar er þó fólkið sjálft, vel menntað, vel verki farið og harðduglegt. Þótt á móti blási um sinn, er því engin ástæða til þess að ör- vænta. Lífskjör okkar hafa ver- ið með því -bezta sem gerist f heiminum. Við eigum fullkomn- ari framleiðslutækfi en nokkurn tíma áður í sögu þjóðarinnar. Við erum því vel undir það búin að standast áföll. Það mun um við gera. Við munum sigr- ast á þeim erfiðleikum, sem nú hafa orðið á vegi okkar. Og frá þeim átökuið munum við koma stæltari en nokkru sinni fyrr. Bækur Framhald af 5. siðu. e.t.v. eftirminnileg að því skapi; annað fólk er áskapað heimi sög- unnar, náttúrlegt þar, — „það hefði alveg eins getað komið of- an úr f jallinu og dottið niður um strompinn,” eins og sagan segir sjálf. Bókin er ljómandi laglega úr garði gerð af Kristínu Þorkels- dóttur sem er með hagvirkustu bókagerðarmönnum um þessar mundir. En ekki kann ég við grímuna á kápu og kili bókar- innar, — hún heyrir áreiðanlega öðrum til en sauðaþjófum. Ó.J. TILKYNNING Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi há- marksverð á brenndu og möluðu kaffi frá inn- lendum framleiðendum: í heildsölu, pr. kg. í smásölu með söluskatti, pr. kg. Reykjavík, 28. nóv. 1967 Verðlagsstjórinn. kr. 73,60 ” 92,00 TILKYNNING Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi há- marksverð á „Jurta-smjörlíki” frá Afgreiðslu smjörlíkisgerðanna, frá og með 29. nóv. að telja: í heildsölu, hvert kg. í 500 gr. .... kr. 51,85 í smásölu með söluskai.ti hvert kg. 500 gr. — 63,00 í heildsölu hvert kg. , 250 gr. pk. • • — 52,85 í smásölu með söluskatti hvert kg. í 250 gr. pk............... — 64,00 í heildsölu hvert kg. í 250 gr. dósum — 55,25 í smásölu með söluskatti hvert kg. í 250 gr. dós........• • • •........ — 67,00 Óheimilt er þó að hækka smásöluverð á því smjörlíki, sem keypt er af smjörlíkisgerðum fyrir þann tírria. Reykjavík, 29, nóv. 1967. Verðlagsstjórinn. 30. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.