Alþýðublaðið - 30.11.1967, Blaðsíða 15
Jón Ármann
Framhald af 3. síðu.
ar að menn muni láta skynsemi
ráða, en ekki rasa um ráð fram
með kröfum, sem ómögulegt er
að fá framgengt nema með því
að auka til muna verðbólgu og
glundroða í íslenzku efnahags-
kerfi.
Við treystum því, að almenn-
ingur vilji standa áfram að baki
okkar í viðleitni til þess að hafa
hér frjálsa verzlun og athafnir
með fullri ábvrgð hvers þegns,
er tekur á sig af fúsum vilja
þær skyldur, sem lýðveldið legg
ur honum á herðar. Þess vegna
mun Alþýðuflokkurinn standá
fast um núverandi stjórn og
stjórnarstefnu.
Jón Ármann gerði sérstak-
lega að umræðuefni aukningu
síldarflotans, úr 21,113 lestum
1969 í 33.933 lestir 1967. Meðal
stærð skipanna hefur aukizt úr
82 jlestum í 223 lestir, verð
Þeirra hækkað úr 5-6 milljónum
í 18-22 milljónir.
Sýndj hann fram á, hve mikl
ar tekjur þessi nýju skip þyrftu
— og væri því óraunhæft að
segja, að verðlag afurða væri
eins og meðalverð fyrir 5-7 ár-
um, því tilkostnaðurinn væri
miklu meiri.
hingað áður með ýmsum félags-
liðum.
í fararstjórn eru Bocek, for-
Tékkóslóvaíku, 1. Knotek, formað
Tékkóslóvaíku, I. Knotek, formað
ur Tækninefndar tékkneska sam-
bandsins, dr. med. Jeschke, og B.
König, þjálfari.
Aðgöngumiðasala að leikjun-
um hefst í Bókaverzlún Lárusar
Blöndal á Slflilavörðustíg og í
Vesturveri í dag. Verð aðgöngu-
miða er það sama og áður, 125
krónur fyrir fullorðna og 50 kr.
fyrir börn.
Iþrótt'r '
Fran’hald af 11. síðu.
anlegar væru breytingar í síðari
leiknum á mánudag. Liðið, sem
hér er birt leikur fyrri leikinn.
Vonandi gengur allt vel, en val-
ið er í einstaka tilfellum vafa-
samt:
★ Þriffji og f 'órði Ieikurinn.
Leiknir verða þriðji og fjórði
landsleikir þjóðanna, fyrst léku
Tékkar og íslendingar í HM 1958
og Tékkar sigruðu með 27 mörk-
um gegn 17. í HM 1961 lauk við-
ureign íslendinga og Tékka með
jafntefli, 15:15. — Leikurinn a
sunnudag 'hefst kl. 16, en kl. 15
hefst leikur unglinga, en lands-
liðsnefnd velur bæði liðin. — Á
mánudag hefst landsleikurinn kl.
20.15, en leikur unglinga kl. 19.15.
Svíinn Lennart Larsson dæmir
báða leilflina, en markadómarar
verða Magnús V. Pétursson og
Vafur Benediktsson í fyrri leikn-
um og Björn Kristjánsson og
Reýnir Ólafsson í síðari leiknum.
'íekkamir koma á laugardags-
kvöld og dvelja á Hótel Sögu. Á
surínudagskvöld sitja þeir boð
Menntamálaráðuneytisins og á
■þriðjudag verður boð inni hjá
tékkneska sendifulltrúanum.
Tékkneska liðið fer utan á
fimmtudag og leikur við Norð-
menn í Osló á föstudag og síðan
fara Tékkarnir til Kaupmanna-
hafnar og leilfla við Dani á mánu
dag.
* Téltkneska liðið.
Alls verða 17 manns í tékk-
nes'ka flokknum, en eftirtaldir
leikmenn koma hingað: Arnost,
Skarvan, Havlík, Herman, Duda,
Mares, Rázek, Frolo, Benes Bruna,
Koríecný, Gregor og Cinner. —
Fletetir þessara leikmanna léku
með tékkneskfi landsliðinu, sem
vann heimsmeistaratitilinn í
fyrra og sjö þeirra hafa komið
Ræ^a Emils
Framhald af 1. síffu.
synlegt þótti að lækka gengi ís-
lenzku krónunnar svo ofsalega
ekki einu sinni, heldur í tvígang.
Það skyldi maður þó ekki halda,
að stjórnarstefnan á undanförn-
um árum hafi verið mjög slæm,
því að 3 ár áður hafði Fram-
sóknarflokkurinn verið í ríkis-
stjórninni og ráðið stefnunni
eins og aðrir, er þar áttu sæti,
og skildi maður ætla, að þá hefði
betur verið ráðið en nú hefir
verið gert. En þetta fór nú svona
samt.
Þess er þö skylt að geta„ að
fyrrj gengisfellingin, í september
1949, var gerð í sambandi við;
að Bretar felldu gengi síns ster
lingspunds, og fylgdum við þvl
þá, en heldur ekki meira, en lét
um -óleyst vandamál okkar eigin
efnahagslífs, og leiddi það til
þess, að gengisfellingin í marz
1950 var gerð, réttum sex mánuð
um síðar.
Þarna er störfum Framsóknar-
flokksins rétt lýst. Þeir bera
vantrauststillögu á Sjálfstæð-
isflokkinn til þess að komast {
ríkisstjórn en þegar þeir eru
komnir þá samþykkja þeir sömu
gengislækkunina og Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði áður lagt til!
En ég hygg, að með því verði
enginn vandi leystur nema ef
til vill sá, sem er Framsóknar
flokknum á liöndum, vegna þess
að hann á ekki sæti í ríkisstjórn
inni.
Spegill samtíöar
Framhald af 2. síffu.
Bókin skiptist í Þrjá megin-
f’okka: Fyrst koma greinar um
hitt og þetta fólk, bæði sér-
kennilegt og venjulegt fólk —
að bví er Steingrímur segir
sjálfur. Þá koma viðtöl og kynni
Steingríms af ýmsum þekktum
listamönnum, en síðast koma ell-
efu greinar um hin og þessi íyr
irbæri í samfélaginu.
Steingrímur sagði í samtali
við blaðamann í gær, að allar
þessar greinar væru skrifaðar
frá sjónarhóli leitandi blaða-
manns.
Steingrímur segir um þessa
nýju bók sína, Spegill samtíðar,
að hún sé bergmál frá blaða-
mennskuferli sinum. Má bað
með sanni segja.
Þess skal getið, að í blaðinu
á morgun birtist viðtal við Stein
grírri Sigurðsson um einstaka
kafla bókarinnar og auk þess
ýmis lífsviðhorf þessa merka, fjöl
hæfa listamanns.
Minning
Framhald af 5. síffu.
sökum verið í brennidepli um-
ræðna og átaka á sviði efnahags
snála og stjórnmála alla tíð síðan
1939. Má því segja með sanni, að
fáar og jafnvel engar nefndir hér
á landi gegni ábyrgðarmeira og
viðkvæmara hlutverki en Kaup-
lagsnefnd. Það talar sínu máli
um hæfileika og mannlkosti
Björns E. Árnasonar, að hann
skyldi vera formaður þessarar
nefndar í 22M> ár og til dauða-
dags. Enginn maður heldur slíku
starfi í nærri 30 ár, nema hann
njóti óskoraðs trausts í öllum
herbúðum og hafi aukl þess til
að bera reynslu og þekkingu, sem
er aðeins fáum gefin.
Á samstarf okkar Björns bar
aldrei skugga og það, sem ég á
honum að þakka frá umliðnum
árum, verður ekki rakið hér, en
sérstaklega minnist ég þess, hve
vel 'hann tók mér, miklu yngri
og reynsluminni manni, í upphafi
samstarfs okkar.
Björn var mjög hár vexti, ris-
mikill og sópaði að honum hvar
sem hann fór. Hann var mikið
karlmenni, sem lét fátt á sig fá,
eins og þrautseigja hans í miklum
veikindum síðustu árin sýndi. —
Björn var þægilegur maður í um-
gengni, hressilegur og bjó yfir,
ríkri kímnigáfu, enda var vina-
og kunningjahópur hans stór. —
Hann sýndi festu í skiptum við
menn, þegar það 'átti við, en öll
mál sótti hann með drengskap
og hærgætni.
Hinn 3. febrúar 1923 kvæntist
Björn eftirlifandi konu sinni,
Margréti Ásgeirsdóttur, hrepp-
stjóra á Arngerðareyri, Guð-
mundssonar, hinni ágætustu
konu. Þau eignuðust tvö börn,
Árna endurskoðanda, sem kvænt-
ur er Ingibjörgu Jónsdóttur og
Aðalbjörgu, sem gift er Skúla
Guðmundssyni verkfræðingi. —
Frú Margrét bjó manni ísnum
friðsælt og fagurt heimili, sem
var gott heim að sækja. Og hún
var honum ómetanleg stoð og
stytta síðustu árin í veikindum
hans. Þrátt fyrir þau, hélt 'hann
reisn sinni og sálax'kröftum til
síðustu stundar.
Vinir og samstarfmenn Björns
E. Árnasonar kveðja hann með
söknuði og þakka honum góða
samfylgd.
Klemens Tryggvason.
rekenda. Það ber réttsýni og þol
inmæði Björns fagurt vitni, að
öll þessi ár hefur aðeins örfáum
sinríum þurft að greiða atkvæði
í nefndinni, og aðeins einu sinni
þannig að um djúptækan ágrein-
ing hafi verið að ræða. Birni var
starfið í Kauplagsnefnd mjög
hjartfólgið, og jafnvel síðari ár-
in, þegar hið mikla starfsþrek
hans minnkaði, slakaði hann aldr
ei á kröfum til sjálfs síns um að
fylgjast nákvæmlega með öllum
atriðum. Frá mörgum fundargerð
um var gengið við sjúkrabeð hans
heima eða á sjúkrahúsi. Síðustu
fundargerð nefndarinnar undir-
ritaði hann á Landspítalanum fá
um dögum fyrir dauða sinn.
Við undirritaðir, sem um
margra ára skeið vorum sam-
verkamenn Björns í Kauplags-
nefnd, vottum fjölskyldu hans og
öðrum aðstandendum innilega
samúð okkar.
Við minnumst meff söknuði
hins' réttsýna manns og karlmenn
isins Björns E. Árnasonar.
Björgvin Signrffsson.
Torfi Ásgeirsson.
James Callaghan var fyrst kjör
inn á þing fyrir Verkamanna-
flokkinn árið 1945. í fyrstu rík-
isstjórn Verkamannaflokksins var
Ihann gerður ritari í samgöngu-
málaráðuneytinu og á itímabilinu
1950—51 hafði hann á hendi sömu
stöðu í hermálaráðuneytinu. —
Fylgi Callaghans innan Verka-
mannaflökksirís fór stöðugt vax-
andi og þegar Gaitskell, þáver-
andi formaður flokksins dó 1963,
var hann einn þeirra, sem líkleg-
astir þóttu í formannssætið. Við
kosningar um formann varð Wil
son samt hlutskarpastur eins og
kurínugt er.
Jón Þnrsiesnsson
Framhald af 3. síffu.
réttinga og framleiðslu ýmis
konar vamings. Gengislækkunin
verði innlimdum framleiðendum
styrkur til að auka samkeppnis-
hæfnt og framleiðni fyrirtækja
sinna og muni þannig renna nýj
um stoðum undir innlenda at-
. . <
vinnuveei.
Callaghan
Framhald af 1. síffu.
öruggur. Þar sem gengi pundsins
hefði verið fellt þvert ofan í
staðhæfingar hans, væri eðlilegt
að annar maður tæki við fjár-
málaráðherraembættinu.
Wilson, forsætisráðherra, hef-
ur jafnan sagt, að Callaghan
mundi ekki segja af sér, en fæst-
ir stjórnmálafréttaritarar hafa
tekið þau ummæli alvarlega. —
Margir töldu að Callaghan kynni
að taka við embætti utanríkisráð-
herra í stað Georges Brown, sem
yrði þá gerður að formanni þing-
flokks Verkamannaflokksins. J-
Þetta hefur nú rey rangt og
í tilkynningu ríkisstjórnarinnar
er sérstaklega tekið fram að
Brown muni halda áfram að vera
utanríkisráðherra.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍM£ 32-101.
TrúlofuBarhrlngaií
Guðn. »orsteiniBS<»5 >
rnllsmlðu? )
Bankastra*i>
t
Lokað
Vegna jarðarfarar heiðursfélaga félagsins,
Björns E. Árnasonar, verða skrifstofur fél-
agsmanna lokaðar efir hádegi í dag.
Félag löggiltra endurskoðenda.
BJÖRN E. ÁRNASON var for-
maður Kauplagsnefndar frá því
sú nefnd var stofnuð í apríl 1939
og til dauðadags, en þeirri nefnd
er falið, með aðstoð Hagstofunn-
ar að reikna vísitölu framfærslu
kostnaðar. Auk formanns, sem
tilnefndur er af hæstarétti, sitja
i nefndinni fulltrúi Alþýðusam-
bandsins og fulltrúi Vinnuveit-
endasambandsins.
í meira en fjórðung aldar eða
rúm 28 ár þurfti Björn að ná
samkomulagi við fulltrúa laun-
þega og fulltrúa atvinnurekenda
um vafaatriði varffandi útreikn-
ing þessarar vísitölu, sem mest-
allan' tímann hefúr haft mikla
þýðingu fyrir kjör launþega og
þá einnig fyrir tilkostnað atvinnu
Hjartkær e'ginmaður minn
ÍSLEIKUR ÞORSTEINSSON.
söðlasmiður, Lokastíg 10,
andaðist á el’iheimilinu Grund, 28. þ. m. Jarðarförin auglýst
síðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Fanney Þórarinsdóttir.
30. nóvember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 15