Alþýðublaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 11
JólablaS AlþýSublaffsins - 1967
11
Barnagaman * -x
JÓLAFÖNDUR
LANGAR ykkur ekki til að
gera borðskraut eða skraut á
.iólatréð fyrir jólin? Það er ekki
ýkja-dýrt að framleiða slíka muni
heima fyrir og án efa leyfir
mamma ykkur að gera það, ef
þið gætið fyllstu varúðar með
lím og álíka.
Áður en þið hefjist handa,
eigið þið að breiða dagblað ofan
á borðið, svo að engin hætta
sé á að límið skemmi fyrir for-
eldrum ykkar dýr húsgögn.
Efnið í englana er filt, sem
klippt er eftir þríhyrningnum
(merktur A). Filtið á að vera í
skrautlegum litum og það er
límt saman á bakinu með filt-
lími, þannig, að pilsið verði
hringur að neðan, sem engill-
inn getur staðið á.
Vængirnir (merktir B) eru
klipptir úr gullpappír. Þeir eru
fallegastir tvöfaldir og límdir
saman í miðjunni með venjulegu
hveitilími (þá má ekki bera lím-
ið þykkt á).
Næst takið þið ermarnar. Þær
eru klipptar úr filti og merktar
með C. Ermarnar snúa andspæn-
is hvor annarri og þið verðið að
gæta þess vel að klippa þær
þannig.
Þá kemur röðin að höndun-
um sjálfum, en þær eru klipptar
úr ljósbleiku filti og límdar und-
ir ermamar.
Svo setjum við engilinn sam-
an. Fyrst eru hendurnar límdar
á bakið undir vængina. Þegar
límið er þurrt eru vængimir
festir yfir, þannig að samskeyt-
in sjást ekki.
Og þá kemur röðin að liöfð-
inu. — í snyrtivöruverzlun-
um og lyfjabúðum fást litlar
baðmullarkúlur, sem eru þéttar
í sér. Á kúlurnar málið þið augu,
nef og munn, festið svo á kollinn
agnarlitilli Bmklessu og setjið
ofan á hana svonefnt „engla-
hár,” sem fæst í bóka- og rit-
fangaverzlunum. Síðan stingið
þið eldspýtu inn í baðmullarkúl-
una og látið hana loks ofan í
hálsinn á englinum. Ef opið við
hálsmálið er of vítt, skuluð þið
vefja baðmull um spýtuna, áður
en þið stingið henni ofan í opið.
Ef mamma ykkar á afganga
af blúndum úr gömlu koddaveri,
VIÐ fengum skemmtilegt bréf
frá 7 ára telpu á Dalvík. Hún
heitir BIRNA S. INGÓLFS-
DÓTTIR og á heima á HÓLA-
TORGI 1, DALVÍK.
Ef allar 7 ára telpur skrifa
eins vel og Birna og eru jafn
góðar í réttritun og hún, hafa
kennarar ekki eins mikið að
gera í dag og þeir höfðu, þeg-
ar við vomm lítil. Og nú fáið
þið að heyra bréfið hennar
Birnu:
Kæri þáttur!
Mig langar til að segja þér
frá því, sem ég gerði í sumar.
Mamma mín var ráðskona og
ég og elzta systir mín fórum
með henni og litli bróðir minn,
sem ég átti að passa. Við bjugg-
um í gömlu húsi. Það var 11
maríuerluhreiður uppi á lofti
og ungar í. Mér fannst gaman
að horfa á mömmuna fara upp
í gluggann til þeirra með nef-
ið fullt af flugum og fiðrild-
um. Á næsta bæ var fallegur
hundur, sem hét Lappi. Hann < i
varð svo hændur að okkur, að
við þurftum að láta sækja hann
til okkar. Við áttum lítinn kisa, ’ i
sem var svo hræddur við}
Lappa.
Vertu bless, þín
Birna S. Ingólfsdóttir.
('
er fallegt að líma þá neðan á
pilsið og gera engilinn mun
fínni. Þessir englar eru aðal-
Iega ætlaðir sem borðskraut enda
eru þeir nokkuð stórir.
Ef þið minnkið teikninguna
Btið eitt, verða þeir fallegir á
jólatré. Ljósið glitrar skemmti-
lega á gullvængina og ef þið gæt-
ið þess að festa bandið undir
vængina áður en þið límið þá
á, snúast englarnir í hringi á
greinunum.
En það ér Bka hægt að gera
fleira við þessa engla. Það má
nota þá til að búa til óróa, sem
gæti hangið í loftinu í herberg-
inu ykkar og minnt ykkur á jól-
ín.
Það er dálítil þolinmæðis-
vinna að búa til óróa og bezt
að fara varlega með þá til að
böndin flækist ekki saman.
Óróar henta bezt yfir ofni eða
nálægt ljósi, því að þeir byggj-
ast allir á því að heitt eða kalt
loft streymi um þá á víxl. Þá.
hreyfast þeir, snúast í hringk
og dansa um. Þeir geta ekki ver-
ið kyrrir fremur en óróleg böriv
enda hafa þeir hlotið nafn sitt
af þessu.
Óróar eru hengdir upp á fleirl
mismunandi vegu. Sumir em
kringlóttir og þá annað hvort úr
léttum bambus, sem beygður er
í hring eða vír, sem vafinn er
með kreppappír. Sumir eru
byggðir upp úr þverslám úr ör-
þunnum bambus og þá eru hlut-
irnir hengdir á greinarnar í mif>
Ef þið ætlið að búa til engla-
óróa verðið þið að minnast þess,
að hafa englana allt að helm-
ingi minni en eins og þeir era
hérna á síðunni. Á bakið límið
þið svo þráð (tvöfalda lykkju)
undir vængina. Lykkjunni er
síðan vafið um þverslána (eða
hringinn) og þess gætt mjög vel
að flækja þráðunum ekki saman.
Loks hengið þið óróann i loft-
ið eða yfir ofninn.
Ef þið eigið filtafganga er
skemmtilegt að búa til teppl
undir jólatrésfótinn. Þá klippiS
þið út myndir af jólasveinum,
eplum, hjörtum, kertum og öðru,
sem ykkur finnst jólalegt. Þess-
ar myndir getið þið fundið I
gömlum litabókum eða á jóla».
pappír.
í teppið er bezt að nota hess-
íanstriga og líma myndirnar á
með filtlími. Svo skuluð þið
biðja mömmu að falda teppið 1
saumavélinni sinni með rauðu.
skábandi.
Ef þið farið út { að nota hencí-
ur eða andlit í öðrum litum
verðið þið að muna eftir að hafa
þau heldur lengri þannig, a?l
hægt sé að líma búkinn og húf-
una yfir efsta hluta andlits og
handa.
Byrjið þið á að teikna upp á
pappír og svo getið þið búið tii
snið, þegar þið eruð sannfærd
um að nú séuð þið komin me9.
rétta sniðið. Það er betra aðk
æfa sig svolítið fyrst en act
skemma dýrt efni og gráta svcx.
Frh. á 10. síðu.