Alþýðublaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 12
iiiiimiiiiiiiiiiiiiiimmBiLLiJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitHiiiimiiiiiiiiii iiimimMimiimiiiimiiiiiiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiimimiiiiiimHiiitiiifumiimÍjfimimmtHitiimiiiimiiiiiiimiiimimiiuiiniiitiMmMiiiMiiiiimmiiHiiiimmmmim! 12 JólablaS Alþýðublaffsins 1967 LHIMIMIIIIIMIIimmillllHU 11 l'IllulllllMIIIMMIMIIIIIIMIIIIIIIIIIIlll mmimiiiiiiiii Hér sjáið j)ér nú þann ... Verð SIERA-sjónvarpstækjanna er eitt hag- kvæmasta, sem boðið er. SIERA ER VIÐURKENND GÆÐAFRAMLEIÐSLA UM allan heim. ★ ÚRVALS TÆKNI ★ AFBRAGÐS MYND ★ SÉRLEG TÓN- GÆÐI. EINKAUMBOÐ A ISLANDI: DRÁTTARVÉLAR H.F. Hafnarstræti 23 Söluumboð: KAUPFÉLÖG UM LAND ALLT. Stillingar og viðgerðir: RADIOSTOFAN, ÓÐINSGÖTU 2. iiiimiiiiiiimiii»ftriiiim(H>)l.,,.:imiiHiniMiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiHM)iiiiiiii lll■llllllilllMMMIIIIIIIIIII■lllillllll■IIIIIIIIIIMIIIIMMMlii Framhald úr opnu. Kaupinhafn á dögum herra Mar- teins, aS Oddur bauðst til að sýna honum Selárdal. Hinn vildi það. Oddur tók þá einn stein og hélt á honum í þá áttina sem ísland var frá, og sagðist ekki betur hafa vitað, en hann hefði séð Selárdal, Kristínu og börn- in, og hvern mann sitjá óg vera þar, hver átti að vera. Það sagði sá maður, sem var sveinn hjá Oddi Gottskálkssyni í Reykholti, sá hét Guðmundur og var Þórisson, að í einn tíma hefði það skeð í Reykholti, að Oddur hefði verið úti í kirkju staddur, og vinnumaður hans einn. Þar kom hrafn með miklu krúnki, og settist á skemmu þar næsta. Þá sagði maðurinn: „Ég vilda eg vissi, hvað hrafninn segir.” Oddur mælti: „Hvern góða hefur þú þar af?” En sé þér það forvitni, þá segist hann kroppa úr þér augun á morgun og í þetta mund, og það annað, að ostur sé í glugganum á skemmunni og gæti hann ekki náð honum, og sé hann ekki þar, svo lýgur hann allt.” Og svo reyndist, að osturinn var þar. Um morguninn reið þessi vinnu- maður til Snældubeinsstaða í Reykholtsdal, að sækja hest. Sá hestur sem hann teymdi kippti honum af baki ofan í ána. Hann rak ofan á eina eyri, og fannst þegar hrafn var að kroppa úr honum augun, og var síðan köll- uð Hrafnseyri og er kölluð svo enn í dag.” Heimildir greina, að Oddur hafi orðið forspár um dauða sinn, svo sem um aðra hluti, og hafi hann sagt fyrir um hann og hverjum atburðum hann yrði. Þremur árum áður en hann bar að, bað hann marga að heita eftir sér og var það gert. — Skömmu áður en hann dó, var hann við jarðarför í Reykholti. Þá mælti hann þcssi orð: „Hér sjáið þér nú þann, sem feigast- ur er yðar allra.” Um fráfærur árið 1556, fór Oddur af stað frá Reynistað, og var ferðinni heitið suður í Borgarfjörð og þaðan til Bessa- staða, en síðan ætlaði lögmaður til alþingis. Þegar hann kom í Borgarfjörð, ætlaði hann að fara með skpi til Bessastaða og flytja þangað gjöld sín. En ekki gaf á sjó í hálfan mánuð, og var þá lögmann farið að lengja byrj- arins, enda var tími orðinn naumur til stefnu að ná í tæka tíð til alþingis. Tók hann þá það ráð að halda áfram landveg fyrir Hvalfjörð. Gekk ferðin vel þar til kom að Laxá í Kjós. Lögmaður hafði frítt og gott föruneyti, reynda og vana ferða- menn, auk presta sinna, síra Einars Hallgrímssonar, síðast á Útskálum og sr. Guðmundar síð ast prests á Staðastað föður- bróður Guðbrandar biskups Þor- lákssonar. Er mælt, að þegar þeir komu að Laxá, hafi lögmað- ur mælt: „Stundin er komin, nem maðurinn eigi.” Riðu menn hans fyrir út í ána, en hann á eftir. Þegar hann var kominn út í ána, hrasaði heStur hans, og féll Oddur af baki í ána. Rak hann á eyri skammt fyrir neð- an. Komst hann upp á eyrina, en í því slóst kápa hans yíir höfuð hans, og við það kastað- ist hann aftur 1 ána, og rak lengra niður eftir. Brugðu þá fylgdarmenn hans við og náðu honum fljótt, og var hann méð lífsmarki. Tjöiduðu þeir yfir hann samstundis. Hann hafði bækur tvær í barminum, bæna- bók og reikningsbók yfir tekjur klaustursins á' Reynistað og sýslunnar. Voru þær þurrar og bendir það til þess, að liann háfi ekki verið lengi í ánni. Um miðnætti vaknaði Oddúr og kvaðst vera illa lerkaðúr. Menn hans sögðu honum, liver'n- ig farið hefði. Litlu siðar talaði hann aftur til þeirra, og kvaðst hann nú mundu Andast. Bað hann þá bera öllum vinum sín- um kveðju sína og lagði svo fyrir, að hann yrði grafinn í Skálholti, fram undan predik- unarstólnum. Síðan andaðist Oddur. Fylgdarmenn lians létu smíða um hann kistu og fluttu likið í Skálholt. Ekki gátu þeir fengið honum legstað, þar sem hann kaus, sökum þess, að þar var of grýtt. Var hann grafinn í krossstúku, svo nærri Gissuri biskupi Einarssyni sem unnt var. Oddi Gottskálkssyni er svo lýst, að hann hafi verið iðju- maður mikill og starfsmaður, þegar hann átti ekki öl og hon- um voru ekki tafir gerðar af öðrum mönnum, segir Þormóð- ur Ásmundsson í Bræðratungu, og þá hafi hann nálega ekki öðru sinnt en bókum, hafi hann annað hvort setið við að lesa, skrifa eða þýða bækur. Oddur var hár maður vexti, gildur eftir hæð og fríður sýn- um. Hann var sannur höfðingi að allri gerð óáleitinn og rétt- sýnn, svo að menn lofuðu hann jafnt af verkum sínum 1 emb- ætti og hinum miklu brautryðj- endastörfum, er hann vann með þýðingum sínum, og höfðu mik- ii og varanleg áhrif í íslenzkri menningu. Sennilegt er, að eng- inn siðskiptamannanna á íslandi hafi í raun réttri haft eins mik- il og varanleg áhrif á menn- ingu þjóðarinnar og Oddur lög- maður, þrátt fyrir það, að hann tók aldrei vígslu né predikaði í kirkju. Heimildir: Safn til sögu ís- lands, Menn og menntir, ís- lenzkar æviskrár, Annálar og ísl. l'ornbréfasafn. Áuglýsingasíminn er 14906

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.