Alþýðublaðið - 03.12.1967, Blaðsíða 7
Sunnudags Alþýðublaðið - 3. desember 1967
Myndirnar eru allar teknar í Rannsóknarstöð Hjartaverndar í Reykja
vík. Læknarnir Ólafur Ólafsson og Nikulás Sigfússon eru lengst lil
vinstri ásamt starfss. Næst er Elínborg Ingólfsdóttir yfirh. Lengst
til hægri er Þorsteinn Þorsteinsson lífefnafræðingur sem stjórnar
efnarannsóknarstofu stöðvarinnar.
stofnunarinnar og stutt okkur
með góðum ráðum.
Loks hefur verið ráðin Vi
dags hjúkrunarkona, Svandís
Jónsdóttir, sem mun starfa að
röntgenmyndatöku og gera
öndunar- og augnþrýstingsmæl-
ingar, og ritari, Oddný Vil-
hjálmsdóttir. Ásmundur Brekk-
an yfirlæknir mun lesa röntgen
myndir. Snorri P. Snorrason sér
fræðingur í hjartasjúkdómum,
Guðmundur Björnsson augn-
læknir og Sigmundur Magnús-
son yfirlæknir hafa veitt verð-
■mæta aðsstoð.
Síðast en ekki sízt ber að
nefna framkvæmdastjórn fé-
lagsins, prófessorana Sigurð
Samúelsson og Davíð Davíðs-
son, ásamt Sigurliða Kristjáns-
syni kaupm., Óskari Jónss. fr.
kv.stj. og Pétri Benediktssyni
bankastjóra.
4. spurning:
Hvers vegna þarf að vanda
svo mjög til undirbúnings rann
sóknarinnar?
Svar:
Allur undirbúningur miðast
við, að rannsókn á hverjum ein
staklingi taki sem stytztan tíma
og að biðtími sé stutur eða
enginn. Þetta er nauðsynlegt,
þar eð fólki verður boðið til
stöðvarinnar. Yfirleitt sækir
fólk ekki stöðina líkt og það
vitjar læknis, enda kennir meir1
hluti fólksins sér ekki meins.
Gildi rannsóknarinnar byggist
á því, að sem flestir mæti, og
er þess vegna nauðsynlegt, að
öll þjónusta sé góð. Við erum
að leita að eiginleikum fólks
og breytum í lífi þess, er hugs
anlega geta valdið t. d. krans-
æðasjúkdómum. Ef aðeins hluti
þeirra, er boðnir eru, kemur,
er ekki hægt að draga neinar á-
lyktanir um allan hópinn, þar
eð sá hópur getur verið búinn
öðrum eiginleikum og lifað við
aðrar aðstæður en sá hópur,
er ekki kemur.
Það er því von okkar, að
fólk þiggi boðið og komi til
rannsóknarinnar.
5. spurning:
Er aðstaða til rannsókna góð
hér á landi?
Svar:
Alþjóðaheiibrigðisstofnunin
styður rannsóknina meðal ann
ars vegna þess, að aðstæður eru
taldar góðar. Orsökin er góð al
menn menntun, góðar samgöng
ur og síðast en ekki sízt, að ör
uggar upplýsingar finnast um
hvern einstakling á íslandi, og
á ég þar við þjóðskrá okkar. Það
er því auðvelt að ná til allra
þeirra, er boðið verður til rann
sóknarinnar. Mér er sagt, að
það sé bara Tasmania, sem hef
ur eins góða skráningu og við.
Bandarískir læknar þykjast
heppnir, ef hægt er að ná til
70% þeirra, er boðið er.
6. spurning:
Er líklegt, að niðurstöður
rannsóknarinnar muni hafa al-
þjóðaþýðingu?
Svar:
Ef svo væri ekki myndi Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin varla
styðja þessa rannsókn. Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin hefur stutt
og stuðlað að sams konar rann-
sóknum í 9 Evrópulöndum, og
ætlunin er, að niðurstöður
verði síðar bornar saman. Vitað
er, að tíðni t.d. kransæðasjúk-
dóma er mjög misjöfn í ýmsum
löndum, og með því að bera
saman eiginleika íbúanna og
breytur og venjur, er fólkið lif
skilning okkar og e.t.v. ráða gát
una um orsakir hjarta- og æða
sjúkdóma.
7. spurning:
Verður um að ræða frjálsa
aðsókn að rannsóknarstöðinni,
jafnframt því að hóprannsóknir
eru framkvæmdar.
Svar:
Hér er fyrst og fremst um
kerfisbundna rannsókn að ræða,
og ríður mikið á að ljúka fyrsta
Framhald 11. síffu.
Baðherbergisskápar
Fallegir
vandaðir
n /ríírrlrnlftirit*
Fjölbreytt úrval Laugavegi 15,
VERÐ ÓBREYTT Simi 1 33 33
Norsk og ensk skífa
mjög falleg á tröppur, gólf og veggi fyrirliggj
andi. Einnig granít, marmari og travertine.
Gamalt verð.
S. HELGASON H.F.
Súðarvogi 20. — Sími 36177.
Hlutafjárútboð
Stálvík H.F. hefur ákveðið að auka hlutafé
sitt. Lysthafendur gjöri svo vel að hafa sam-
band við skrifstofu félagsins í símum
51900 og 51619.
BLOMAVERZLUN
MICHELSENS
ER / ÁRS
'%
afslátt af öllum
og gefum við 20
POTTABLÓMUM
gjafavörum og jólavörum
á mánudag og þriðjudag.
Blómaverzlun Mishelsens
Suðurlandsbraut 10 — Sími 31099.
Áskriftarsími
Alþýðublaðsins