Alþýðublaðið - 04.01.1968, Blaðsíða 3
Þotan verður að lenda í Reykjavík til að komast í hús.
NNANLANDSFLUGI
Þotan lendir í Reykjavík
Innanlandsflug hefur gengið afar stirðlega síðustu daga vegna ill
viðris, frost og fannkomu. Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flug-’
félags íslands, tjáði blaðinu síðdegis í gær, að innanlandsflug fél-
agsins hefði gengið fremur erfiðlega í frostinu. Þó kvað hann, a'ð
flogið hefði verið fyrri hluta dags í gær til ísafjarðar, Sauðárkróks.’
og Hornafjarðar. Hins vegar hefði Akureyrarflugvöllur verið lokaður
fram eftir degi, en um 350 farþegar hefðu beðið nyðra og um
citt liundrað farþegar syðra.
láta Debray
íausan I skiptum
Síðdegis í gær hefur Akureyrar
flugvöllur opnazt að nýju og væri
ráðgert að fljúga þangað 5 ferð
ir í gærkvöldi, en til flutninganna
yrðu notaðar þrjár vélar félagsins,
Blikfaxi, Snæfaxi og Sólfaxi. Sömu
leiðis væri áætlað að fljúga til
Egilsstaða.
Sveinn kvað millilandaflug Flug
félags íslands hafa gengið með
afbrigðum vel, og Gullfaxi, þota
félagsins, stæði sig mun betur en
bjartsýnustu menn hafi þorað að
vona í upphafi.
Sveinn upplýsti, að þotan myndi
lenda í Reykjavík í gærkvöldi, en
hún væri látin lenda í Reykjavík,
þar er ekki fengist flugskýli fyrir
hana á Keflavíkurflugvelli. Nú
væri hins vegar komið upp ílug-
skýli á Reykjavíkurflugvelli, sem
þotan kæmist inn í, og í þessu skýli
hafi hún verið yfir hátíðarnar.
Kvað Sveinn þess mikla þörf, að
þotan kæmist í húsaskjól á milli
ferða, þegar eitthvað væri að veðri
sérstaklega í frosti og fannkomu.
Það kostaði mikið fé og yrðu af
því talsverðar tafir, þegar hreinsa
þyrfti snjó af vélinni, eftir að hún
hefði staðið úti næturlangt eða
lengur í snjókomu og gaddi.
Ziirich 3. 1. (ntb-reuter).
Forseti Bólivíu, Rene Barrien
itos Ortuno, gaf í skyn í gær, að
hann hefði hug á að leysa franska
blaðamanninn Regis Debray, sem
nú afplánar 30 ára fangclisdóm
á Bólivíu, úr haldi geng því að
Bólivíumanni, sem situr í fang-
■elsi á Kúbu, verði veitt frelsi í
staðinn.
Barrientos forseti, sem nú ligg
ur á sjúkraliúsi í Zurich, tjaði
fréttamönnum þetta á fundi, sem
hann hélt í gær. Blivíumaðurinn,
hann hélt í gær. Bólivíumaðúrin,
ir Debray, nefnist Hubert Matos
og var á sínum tíma samstarfs-
maður Fidels Castros. Matos er
talinn einn af frum.kvöðlum bylt
ingarinnar á Kúbu, en var dæmd
ur í 20 ára fangelsi árið 1959 fyr
ir að reyna að grafa undan bylt
ingunni..
Debray var dæmdur af herdóm
stól fyrir þátttöku í skæruhern-
aði í Bólivíu undir stjórn foringj
ans Che Guevara, sem var góður
vinur Castros.
Færð víða slæm
vegna veðurofsa
"VEGNA .veðurofsans undanfarna
daga hefur færð norðanlands ver
ið afar slæm. Samkvæmt upplýs-
ingum Vegagerðarinnar í gær
var Holtavörðuheiði lokuð til
íSiglufjarðar, en þar bíða nú ’ÍO
til 80 manns tepptir eftir fari til
ar-
gangur af
kynningarriti
Kynningarritið Welcome to Ice-
land fyrir árið 1968 er nýkomið
út. Útgefandi þess er Anders Ny-
borg A/S í Kaupmannahöfn, en
ritinu er dreift í flugvélum Flug
félags íslands og skrifstofum
þess og í sendiráðum íslands cr-
lendis.
Ritið er 138 bls. að stærð, lit-
prentað og rikt að myndum, Auk
ýmiss konar upplýsinga fyrir
ferðamenn rita eftirtaldir menn
í ritið: Þór Guðjónsson veiöi-
m'álastjóri um lax- og silungs-
veiði á íslandi; dr. Finnur Guð
mundsson um íslenzkt fuglalíf;
Mats Wibe I.und á þar tvær grein
ar, önnur nefnist sumarleyfi á ís
landi — ný spennandi reynsla,
og 'hin er um Bessastaði; Geir
Hallgrímsson borgarstjóri ritar
um Reykjavík; Þorvarður Alfons-
son um iðnað á íslandi og Björn
Þorsteinsson um Færeyjar. Þá er
hluti ritsins einnig helgaður
ferðalögum til Grænlands.
Þetta er í sjöunda sinn sem
Iandkynningarritið Welcome to
Iceland kemur út, en það er prent
að á þremur tungumálum, ensku,
þýzku og dönsku.
Wasnington og London 3. 1. (ntb-reuter)
Gullforði Bandaríkjanna í Fort Knox minnkaði um 1175 milljónir
dollara árið 1967. Bandariska fjármálaráðuneytið tilkynnti i gær,
að höfuðorsökin fyrir þessu væri gengislækkunin á brezka pundinu.
Skerðing gullforðans eftir að
pundið var lækkað þann 18. nóv.
er talin nema 925 milljónum doll
ara. Ennfremur var 450 milljón-
um dollara veitt frá Fort Knox
þann 28. des. til Bretlands, en
það var liður í hjálparaðgerðum
Bandaríkjanna við gullmarkað-
inn í Bretlandi.
Eftir allt þetta nemur gullforð
inn í Fort Knox 12 milljörðum
dollara og hefur hann aldrei ver
ið minni um 30 ára skeið. Fjár-
málaráðuneytið hefur bentá, að
minnkun gullforðans árið 1967
er tvöfalt meiri, en árið 1966 og
nokkuð minni en árið 1965. Þá
minnkaði gullforðinn um 1665
milljónir dollara.
Búizt var við þessari tilkynn-
ingu frá fjármálaráðuneytinu, en
ekki var vitað hve mikið tapið í
■desember var. Síðan Frakkland
hætti framlögum sínum til al-
þjóða gullsjóðsins, hafa Banda-
ríkin staðið undir 59% af tapinu.
Sjó^urinn var stofnaður 1961,
til þess að staðfesta verð gulls-
ins.
Reykjavíkur.
Á föstudag verður gerð tilraun
til að opna leiðina milli Reykja-
víkur og Akureyrar, en í gær var
vonskuveöur í Eyjafirði og i
Húnavatnssýslu var varla stíg-
andi út úr húsi. Einnig verður á
föstudag gerð tilraun til »0
opna leiðina Akiueyri-Húsavík.
í gærmorgun lögðu nokkrir bil
ar upp frá Varmahlíð í Skaga-
firði til Blöndóss, og gekk ferðin
seint vegna þungrar færðar og
veðurs.
Sunnan >og suðvestan lands var
umferð með eðlilegum hætti.
Fært var frá Reykjavík um Hval
fjörð upp í Borgarfjörð.
Á austurlandi var veður slæmt
í gær. Oddskarð opnaðist um
stundarsakir í fyrradag en lokað
ist fljótt aftur. í gær var veður
svo vont á Austurlandi að illmögu
legt var að freista þess að opna
vegi.
LÍKLE6T AÐ ÍSINN AUKIST
Vegna slæms skyggnis í gær
voru litlar fregnir af ísnum, norð
ur af landinu. Þó bárust þær
fregnir frá Siglufirði að vaxandi
ísek væri inn fjörðinn. Þá hefur
ísrek aukizt mjög NA af llorni
og er siglingaleiðin fyrir Horn
og vestur fyrir Rif hættuleg í
myrkri vegna ísjaka sém sjást
illa í radar.
Páll Bergþórsson veðurfræðing
ur tjáði blaðinu í gær að vindátt
in benti til þess að ísinn myndi
aukast. Sjórinn kólnar ört fyrir
norðurlandi og auðvelt fyrir ís
inn að reka sunnar áh þess að
bráðna.
Færri útköHf
en meira tjón
RÚNAR Bjarnason slökkviliðs
stjóri tjjáði blaðinu í gær, að
þrátt fyrir þá staðreyd, að á
síðasta ári hafi orðið gífur-
lega mikið tjón vegna elds-
voða í Reykjavík, þá hafi út-
köll slökkvilið,sins á- síðasta
ári verið færri en mörg und
; anfarin ár.
Sagði slökkviliðsstjóri, að
-alls 'hafi slökkviliðið verið
kvatt út 408 sinnum á árinu
1967 og þurfi að leita allt til
ársins 1961 til að finna færri
-útköll -á einu ári. - - ■
Árið 1966 voru útköll slökk-
viliðsihs 486, en ái-jð 1965
voru þau hvorkj meira né
minna en 534 talsins.
Desembermánuður er alla
jafnan sá mánuður órsins, sem
annríki er mest hjá slökkvilið
inu. í síðasta desembermánuði
urðu útköll slökkviliðsins
færri en dæmi eru til um i
fjölda mörg ár. Alls urðu út-
köllin 34. Ekki eru dæmi um
færri útköll.í desembermánuðj
síðan árið 1951. Útköll slökk.
viliðsins i desember 1965 vomi
61 talsins..
Að lokuni sagði Rúnar
Bjarnason slökkviliðsstjóri.. hS
hann vonaði, að þelta boðaði
gott og að í hönd fáeru belri
tímar.
T. janúar 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ %