Alþýðublaðið - 09.01.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 09.01.1968, Blaðsíða 6
Ippiií ; • m $æs§fli- 62 AÐILAR GÁFU 6 MILUÖF ÉG vil byrja á því að þakka fyrir hönd framkvæmdastjórnar Hjarta verndar Pétri Benediktssyni, ai- þingismanni og bankastjóra, þau hlýju orð, sem hann lét falla í garð samtaka vorra, en þó sér í lagi þann einstæða dugnað, sem fjáröfiunarnefnd hefir sýnt með starfi sínu, er henni tókst að safna yfir sex milljónum króna, en einmitt sú söfnun gjörði kleift að keyptar voru tvær hæðir hér í Lágmúla 9 og búa þá hæð, sem við sjáum hér, þeim innrétting um búnaði og tækjum, sem þarf til rekstrar þessarar rannsóknar stöðvar. í fjáröflunarnefnd Hjartavernd ar hafa starfað þessir menn: Baid vin Einarsson forstjóri, Eggert heitinn Kristjánsson forstjóri, Helgi heitinn Þorsteinsson for- stjóri, Kristján Jóhann Kristjáns son forstjóri, Loítur Bjarnason forstjóri, Pétur Benediktsson bankastjóri og Sigurliði Kristjáns son forstjóri. Þessir atorkumenn tóku fjármál samtakanna þegar í upphafi svo föstum tökum og af svo miklum dugnaði og fram sýni, að samtökin munu njóta þess um alla framtíð. Fyrst eftir stofnun samtakanna og þar til þau höfðu komið sér upp fastri skrifstofu, hvíldi dag leg stjórn og rekstur á herðum þeirra Eggerts heitins Kristjáns- sonar, forstjóra, Sigurliða Krist- jánssonar, forstjóra og Péturs Benediktssonar bankastjóra, og verða störf þeirra við húsakaup in, fjáröflun og skipulagningu samtakanna seint fullþökkuð. Bæði hér á landi og erlendis hai'a einstaklingar, félög og stofn anir beitt sér fyrir stórátökum á sviði menningar- og mannúðar- mála. Hér á landi eru mörg slík dæmi, sem við öll þekkjum. Sá skilningur og örlæti, sem Hjarta vernd hefur frá öndverðu mætt, er glöggt dæmi um stórhug og framsýni íslendinga, og þakka ég af alhug þann styrk, sem sam tökin hafa hlotið frá hinum fjöl mörgu gefendum. Ég leyfi mér að lesa upp nöfn þessara gefenda, en þau eru raun ar öll skráð á þá veggskreytingu, sem er hér andspænis okkur, og ávallt munu verða lyftstöng og uppörvun í því starfi, sem hér fer fram. Eftir að störf fjáröflunamefnd ar höfðu borið eins góðan árang ur og greint hefir verið frá, styrkti það mjög aðstöðu samtak- anna í umleitan þeirra um tekju stofn til reksturs rannsóknarstöðv arinnar. Mál þetta var rætt við alla ráðherra ríkisstjórnarinnar, og tóku þeir málefninu af hinri mestu velvild. Þeir tveir ráð- herrar, sem mest höfðu með mál okkar að gera, voru heilbrigðis- málaráðherra, Jóhann Hafstein og félagsmálaráðherra Eggert Þorsteinsson. Jóhann Hafstein, heilbrigðis- málaráðherra benti á þá leið, sem farin var í máli þessu, að samtökin snéru sér til heilbrigðis nefnda Alþingis. Hlaut beiðni Hjartaverndar um hluta af tappa gjaldi af öli og gosdrykkjum ein- róma samþykki heilbrigðisnefnda Alþingis og alþingismanna alira. Ég mun þá snúa mér að störf um Rannsóknarstöðvar Hjarta verndar og þeim vonum, sem stjórn samtakanna tengir við þau. Rannsóknarstöðin er nú full búin og mun öllum, sem hér eru, gefast kostur á að skoða hana hér á eftir. Kappkostað hefir veríð að búa stöðina hinum beztu tækj um, sem völ er á. Þegar stofnað er til starfsemi sem þessarar, má ekki tjalda íil einnar nætur, og er þá nauðsyn- legt að h'afa hentugar og rúm- góðar vistarverur. Enginn vafi leikur á því, að vel er fyrir þess um málum séð, þar sem samtökin eiga aðra hæð í þessu húsi, sem taka má í notkun, þegar umsvii'- in aukast og starfsemin vex. Til stöðvarinnar hafa verið ráðn ir tveir sérfræðingar í læknis- fræði og lífefnafræðingur, auk sérhæfðs starfsliðs. Auk þess nýt ur stöðin ráðlegginga fjölmargra Dr. Sigurður sérfræðinga á hinum ýmsu svið- um. Það er lálit mitt, að með val starfsliðs hafi mjög vel til tekizt og þau störf, sem þegar hafa vcr ið unnin, styðja það álit. Rannsóknarstöð Hjarataverndar var formlega vígð síðastliðinn laugardag, enda þótt stöðin hafi þegar starfað um sinn. Fram- kvæmdastjóri samtakanna, Jóhann Níelsson, setti athöfnina. Pét- ur Benediktsson bankastjóri flutti síðan skýrslu fjáröflunarnefndar, en hún hefur unnið mikið þrekvirki. Söfnuðust alls 6 milljónir króna, gefnar af 62 aðilum, en þar á meðal eru flest kunnustu fyrirtæki íslenzkrar verzlunar og iðnaðar. Nefndi Pétur í ræðu sinni ýmis dæmi þess, hve framtak einstaklinga hefði mikið gert fyrir hcilbrigðismál hér á landi og árnaði hjartarannsóknarstöðinni heilla. Þá flutti dr. Sigurður Samúelsson, formaður samtakanna, ræðu þá, er hér birtist í heild. Loks flutti Jóhann Hafstein heil- brigðismálaráðherra ræðu og þakkaði öllum þeim, sem eiga þátt í því myndarlega átaki, sem þarna hefur verið gert. Fagnaði hann því sérstaklega, að áformað væri að færa starfsemi Hjartavernd- ar út á land jafnskjótt og aðstæður leyfðu. HJARTAVERMD FER 0 9. janúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.