Alþýðublaðið - 09.01.1968, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.01.1968, Blaðsíða 7
i Myndirnar hér að ofan eru teknjar úr hinni stórmerku rannsóknarstöð Hjartaverndar og sýna fólk við störf. Lengst til hægri er Þorsteinn Þorsteinsson lífefna- fræðingur yfirmaður efnarannsóknarstofu, þá kemur Niltulás Sigfússon læknir og Ólafur Ólafsson læknir. Samúelsson. Þessir sérfræðingar og ráðej.'if ar Hjartaverndar hafa unnið um fimm mánaða skeið við skipulagn- ingu á öllum rannsóknum stóðv arinnar til úrvinnslu í rafreikni, áður en rannsóknir og læknis- skoðun á þátttakendum hófust. Á þennan hátt verður að lokinni rannsókn hægt að fá útskrift af sjúkrasögu og öllum rannsókn- um. Hver þátttakandi í rannsókn inni þarf að svara um 300 spurn ingum og þegar við bætist læknis rannsókn, allar blóð- og þvag- rannsóknir eru hinir einstöku þættir orðnir um 700. Auðsætt er, að hér er um að ræða mjög umfangsmikla gagna- söfnun, sem vart væri hugsanleg án notkunar nýrrar tækni, sem tekin hefir verið upp, en margt í því sambandi er algjör nýjung á sviði læknisfræði hér á landi. Á ég þar sérstaklega við notkun sjálfvirks efnamælis og rafreikn is. Á þennan hátt verður marg- háttuð úrvinnsla möguleg. Þann- ig verður t.d. hægt að sýna fram á fylgni einstakra þátta og meta gildi hinna ýmsu starfsaðferða á visindalegan hátt. Rannsóknarstöðin hefir nú starfað um tveggja og hálfs mán aða skeið, og rannsakaðir hafa verið um 500 manns. Fyrsta hóp rannsókn okkar telur um 3000 karla á aldrinum 34 til 60 ára. Nánar tiltekið 16 aldursflokkar á þessu aldursskeiði, og valinn Vh úr hverjum aldursflokki eftir á- kveðnum fæðingardögum. Fullyrða má, að innan fárra mánaða liggi fyrir svo ítarlegar niðurstöður, að hægt verði að draga af þeim ábj'ggilegar álykt anir. Stjórn Hjartaverndar von- ast til þess, að aðrar heilbrigðis- stofnanir landsins geti notið góðs af þessu brautryðjenda- starfi og í náinni framtíð verði hægt að nýta betur þær starfs- aðferðir, sem hér er verið að reyna. Þ’á Iiyggst Hjartavernd færa starfsemi sína út á landsbyggð- ina á næstu árum. Takist þétta, sjáum við hylla undir nýjan þátt til þess að bæta að nokkru úr skorti á læknaþjónustu í dreif- býlinu. Ég lýk þessum orðum mínum með þökkum til gefenda Rann- sóknarstöðvarinnar, til ráða- manna þjóðarinnar og til allra þeirra, sem lagt hafa samtökun- um lið fjárhagslega, og á annan hátt, og vonandi megna þau störf, sem hér eru unnin, að launa traust þeirra með því að leggja verulegan skerf til heilsu farslegra hóprannsókna, sem hafi í för með sér bætt heilsufar þjóð ar okkar. Ég lýsi því hér yfir, að starf- semi Rannsóknarstöðvar Hjarta- verndar er nú hafin. MYNDARLEGA AF STAÐ Verkamannafélagið DAGSBRÚN Fé/agsvisf í Lindarbæ í kvöld kl. 9 hefst 17 kvölda keppnis fímabil, auk séi-stakra| kvöldverðlauna, verða veitt glæsileg heildarverðlaun, er sá hlýtur sem flesta slagi fær á keppnistímabilinu en verð’i 2 eða fleiri jafnir verður dregið á milli þeirra. Félagsvistin verður alla þriðjudaga í vetur í Lindarbæ og hefst kl. 9 e.h. VERKAMANNAFÉLAGIB DAGSBRÚN. FÍATE/GENDUR Félag íslenzkra bifreiðaeigenda og Félag Fíateigenda gangast fyrr kvöldnámskeiðum í meðferð og viðhaldi Fíat-bifreiða, ásamt umferðarfræðslu, dagana 15. — 23, janúar 1968. Dagskrá námskeiðsins verður þannig: 1. Um bílinn 2. Akstur í hálku og myrkri 3. Um Fíatbílinn 4. Umferðarfræðsla 5. Tæknilegar leiðbeiningar með athugun á hverri bílgerð fyrir sig. Innritun væntanlegra þátttakenda er hjá Félagi íslenzkra bifreiðaeigenda, Eiríksgötu 5. simar 33614 — 38355. NAUÐUNGARUPPBOÐ Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og ýmissa lögmanna verða neðangreindar bifreiðir og vélknúin ökutæki seld á nauðungaruppboði, til lúkningar lögtaks- og fjárnámskröf um, mánudag 15. janúar n.k. kl. 10 árdegis að Síðumúla 20 (Vöku hf.). Greiðsla fari fram við hamarshögg. R 22 R 123 R 1609, R 3557, R 4047 R 4162 R 4180 R 4919 R 5370 R 5371 R 6345 R 6619 R 6688 R 6918 R 7090 R 7424 R 7620 R 9007 R 10200 R 10362 R 10823 R 10921 R 11281 R 11393 R 11554 R 11605 R 11860 R 13243 R 13279 R 13410 R 13468 R 14523 R 14933 R 15278 R 15524 R 15575 R 15610 R 15736 R 16051 R 16383 R 16490 R 17026 R 17089 R 17315 R 17928 R 17955 R 18174 R 18278 R 18395 19013R R 19318 R 19363 R 19428 R 19451 R 19643 R 19914 R 20044 R 20295 R 20372 R 20389 R 20425 R 20499 R 20521 R 20602 R 20728 R 22125 R 22136 G 2789, G 2869 L 944 V<*|ks* wagen Pick-up bifreið, árg. 1963, jarðýta International D.T. 9, árg. 1957, Borgarfógetaembættið í Reykjavík ALLIANCE FRANCAISE Frönskunámskeiðin hefjast bráðlega. — Kennt í mörgum flokkum. Innritun og upplýsingar i Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar & Co., Hafnarstræti 9, símar 11939 og 13133. Væntanlegir nemendur komi til viðtals í háskólann 33 kennslustofu á 2 hæð) föstudaginn 12. janúar kl. 6,15. Alliance Francaise. Áskriftasími Aiþýðubiaðsins er 14900 — ALÞÝÐUBLAÐiD 9. janúar 1968

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.