Alþýðublaðið - 11.01.1968, Qupperneq 3
m
SpilakvöSd
Fyrsta spilakvöld Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á þessu ári verður
haldið í Lídó í kvöld kl. 8,30.
Stjórnandi Gunnar Vagnsson.
Sigurður Guðmundsson skrifstofustjóri flytur ávarp. Auk venjulegra kvöld
verðlauna verða veitt verðlaun fyrir þriggja kvölda keppni.
Ath.: Þeir sem koma fyrir kl. 8,30 þurfa ekki að borga rúllugjald.
Sigrurður Þórarinsson.
Mynd þessi er af teikningru af Heklugosinu árið 1845.) Teikn
inguna gerði Oddur Erlendsson er þá bjó í námunda fjallsins,
Myndin er varðveitt í handriti á Landsbókasafninu.
A MANUDAG og þriðjudag fer
fram fyrsti hluti forsetakosninga
í Finnlandi.. Þá verða kosnir í
kjördæmum .landsins 300 kjör-
menn, sem síðan eiga að koma
sér saman um fyrir 15. febrúar,
hver verði valdamesti stjórnmála
maður Finnlands næstu 6 ár. —
Þrátt fyrir, að þessi gangur mála
veiti finnskum kjósendum aðeins
óbein áhrif á forsetakjörið, munu
þeir í kosningum á mánudag og
þriðjudag ráða meiru. Frambjóð
endur til kjörmannsembættanna
hafa nefnilega fyrirfram lýst af-
stöðu sinni til þess máls, sem
framar öðru setur svip á kosn-
ingarnar, þ. e., hvort Kekkonen,
núverandi fórseti, verður endur-
kjörinn eða ekki.
í raun og veru hefur þetta mál
þó þegar verið afgreitt. í byrjun
ársins 1967 bundust 3 stærstu
stjórnmálaflokkar Finnlands sam
tökum um að styðja framboð
| Kekkonens til forsetakjörs. End
| urkjör hans er því nokkuð tryggt
! þar sem þessir flokkar hafa sam-
anlagt mikinn meirihluta kjós-
enda. Kekkonen hefur nú verið
forseti í 12 ár.
Þrátt fyrir þetta hefur ríkt
mikil forvitni um það hvaða af-
stöðu Hægri flokkarnir i landinu
ins um kjör Kekkonens. — Þeir
höfnuðu þátttöku í því, en að því
er virðist munu þeir ekki.berjast
gegn kjöri hans. Þó hefur íhalds
sami samfylkingarflokkurinn og
nokkrir þingmenn úr hægri
armi Sænska þjóðarflokksins á-
kvæðið að styðja sinn eiginn frarh
bjóðanda, Matti Virkkunen, aðal-
bankastjóra í stærsta einkabanká
landsins.
muni aka til kosningabandalags-
Frá flokkslegu sjónarmiði virð
ist því endurkjör Kekkonens
tryggt. Gallup-skoðanakannanir
undanfarna mánuði hafa einnig
sýnt, að hann nýtur fylgis þjóð-
arinnar. Spurningin er aðeins
hve mikill verður sigur hans.
RIT UM SURTS-
EY OG HEKLU
Vísindafélag íslendinga hefur fyrir skömmu gefið út þrjú
rit: The Eruptions if Hekla in historical times, eftir dr. Sig-
urð' Þórarinsson: lceland and Mid-Ocean Ridges, safn erinda,
sem flutt voru á ráðstefnu Jarfræðingafélags íslands á s.l.
ári; og loks þriðja hefti fjórða bindis, af ritinu Greinar og1
innilieldur það tvær ritgerðir um grasafræði, fyrri greinin er
eftir Ingólf Davíðsson en sú síðari eftir Sturlu Friðriksson ogj
Björn Johnsen.
Formaður Vísindafélags Is-
lendinga dr. Sturla Friðriks
sin ásamt dr. Sigurði Þórar-
inssyni og Sveinbirni Björns-
syni kynntu ritin og út-
breiðslu þeirra fyrir blaða-
mönnum í gær.
Erupton of Hekla in histor-
ical flmes, er I. heftið í rit-
gerðasafninu um Heklugosið
1947-1948, en flest síðari
númer safnsins eru áður kom
in út. í ritinu gerir dr. Sigurð
ur Þórarinsson ýtarlega grein
fyrir öllum gosum. sem orð
ið hafa í Heklu eftir að sög-
ur hófust hérlendis og fram
að síðasta gosi. Hefur höfund
ur í því skyni kannað gaum.
gæfilega skráðar heimildir
um Heklugos fyrri alda og
vitnar óspart til þeirra í rit-
inu. Þá greinir höfundur frá
athugunum sínum á gosefnj
frá ýmsum Heklugosum og
gefur yfirlit yfir þær ösku-
lagsrannsóknir, sem hann hef
ur fengizt við um árabil
Óskulagatímabil höfundar er
orðið mjög þýðingarmikið við
aldursákvarðanir í jarðvegá-
og jarðfræði, gróðursögu og
fornleifafræði, og er bókin«
því grundvallarrjt þessarar
rannsóknaraðferðár. Ritið er
um 200 blaðsíður og eru í
því fjöldi Ijósmynda og teikn
inga til skýringa. Á forsíðu
ritsins er teikning af Heklu-
gosinu 1845 eftir Odd Erlends
son, sem bjó í námunda við
fjallið.
Iceland an Mid Ocecean
Ridges, er safn erinda, sem
flutt voru á ráðstefmi Jarð-
fræðafélags íslands ...27.
febrúar til 8. marz 1967, en
Sveinbjörn Björnsson jarð-
eðlisfræðingur hefur séð ,um
lítgáfu bókarinnar. í bókina
skrifa 12 höfundar samtals 18
greinar um rannsóknir á sviði
jarðfræði, jarðeðlisfræði og
bergfræðj, einkum með tiiiiti
til þeirra þátta þessara fraeða,
sem varða stöðu íslands á mót
Framhald á 11. síðu. t
börn af 59, sem slösuöust í umferö-
inni í Reykjavík á s.l. ári, voru 6 ára
Gg yngri.
í DAG
tekur til starfa umferðarskólinn „UNGIR VEGFAREND-
UR“. Skólinn er bréfaskóli, og er þátttaka heimil öllum
börnum í Reyhjavík, Kópavogi, Hafnarfírði, Garffahreppi,
Seltjarnarneshreppi og Mosfellssveit, á aldrinum 3. 4, 5 og
6 ára, fóreldrum þeirra aff kostnaðarlausu.
í vetur munu þau börn, sem gerast þátttakendur, fá tvær
til þrjár sendingar frá skólanum, auk þess smá gjöf á af-
mælisdaginn.
Þátttökueyðublöff liggja frammi í dag og á morgun i
mjólkurbúffum og öffrum þeim verzluuum, sem selja mjólk
á höfuðborgarsvæffinu.
Allar nánari upplýsingar veitir fræffslu- og upplýsinga-
skrifstofa umferffarnefndar Reykjavíkur, sími 83320. ' ‘
11. janúar 1968 — ALÞÝOUBLAÐIÐ ^
tffff . i' r Wf TfWV 'f'1T "rr’y-r-*- ■-