Alþýðublaðið - 11.01.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 11.01.1968, Blaðsíða 6
ÁTÖK í Jemen hafa nú stað- ið í meira en 5 ár. Oft hefur verið tilkýnnt að átökunum væri lokið, en þau hafa blossað upþ jafnharðan og nú virðast þau vera á hástigi. Liðssveitir Egypta eru farn- ar eftir að hafa mistekizt að bjarga lýðveldisstjóm Sallals. sem steypti konungsvaldinu í landinu fyrir 5 árum. Og það er ekki ólíklegt að Egyptar finni til sama léttis og Bretar, er síðustu brezku hermennirnir komu heim frá. Suðurarabíusam bandinu, sem nú er orðið sjálf- stætt ríki. Konungshillar hcrsveitir sækja fram í Jemen. Hinn nýi maður. En stríðið í Jemen hættir ekki þótt Egyptar kölluðu Hð sitt heim og Sallal væri settur frá völdum. Eftirmaður hans, Ahmad Noman, sem er fulltrúi þriðja aflsins í Jemen, mitt á milli lýðveldissinna og konungs- manna vildi koma friði á með tilstuðlun 'þríríkja nefndarinn- ar, sem komið var á fót á fundi æðstu manna Arabaríkjanna í Khartoum. Ekki virðist þó vilji hans ætla ná fram að ganga, þar sem hann stendur höllum fæti gegn á- sækni Amri, marskálks og fyrir liða lýðveldissinna, sem engu vill vægja fyrir konungssinnum. Þetta er konungsinnum full- kunnugt um og stuðningsmanni þeirra, Feisal konungi í Saudi- Arabíu, líka. Bardagar hafa aukizt og harðnað í ríkum mæli og virðast aldrei hafa verið við tækari en nú. Hin endurskipulagða lýðveldis s.tjórn í Sana, höfuðborg Jem- en, sendir nú hvert hjálparkall ið á fætur öðru til Arabaríkj- anna meðan sveitir konungs- sinna eru um það bil að um- kringja borgina. Og Arabarík- in með Irak í broddi fylkingar hvetja sífellt til vopnahlés og nýrra samningaviðræðna. Samkvæmt fréttum rússnesku fréttastofunnar Tass hafa kon- ungssinnar nú lokað öllum helztu samgönguæðum til borg arinnar og halda stöðugt uppi hörðum loftárásum. Allt bendir til þess að mikill skortur ó nauðsynjum geri nú vart við sig í höfuðborginni og konungs sinnar muni áður en langt um liður hertaka Sana án tillits til möguleika á samnjngaviðræð- um. Friðarráðstefna Ákveðið hefur verið, að und irbúningsfriðarráðstefna komi saman í Beirut 12 þ.m. Þangað hefur verið boðið 5 fulltrúum lýðveldissinna. 5 fulltrúum kon- ungssinna og 5 fulltrúum lýð- veldisafla utan Jemen. Ýmis- legt bendir þó til að konungs sinnar muni ekki taka þátt í ráð stefnunni. Þeir kæra sig ekki um neina samninga nú. Þejr ætla að vinna sinn fullnaðar- sigur. Fyrir skömmu gáfu konungs sinnar út yfirlýsingu, þar sem segir, að þeir hafi ekki fengið neitt boð um að mæta á friðar- ráðstefnuna í Beirut. Þríríkja- nefndin, sem i eru íran, Mar- okko og Sudan, hefur aðeins haft samband við lýðveldissinna stjórnina í Sana, en ekki við hinn réttborna konung Jemen, A1 Badr, eða stuðningsmenn hans. Að öllum líkindum dvelur A1 Badr nú í Saudi-Arabíu. Leiguliðar Jafnframt því sem stríðið í Jemen er harðara en fyrr. hef ur það einnig fengið á sig nýj an svip að nokkru. Það er ekkl lengur átök milli lýðveldis og konungsveldis eingöngu, heldur einnig milli stórveldanna í ausri og vestri. Pravda, málgagn rúss neska kommúnistaflokksins. skýrði frá því ekki alls fyrir löngu, að málaliðar frá Banda- ríkjunum, Belgíu og Vestur- Þýzkalandi yrðu æ meir áber- andi í sveitum konungssinna í Jemen. Um sama leyti hófu 24 rússneskir herflugmenn þátttöku í bardögunum með sveitum lýð veldissinna. Pravda hefur rétt fyrir sér. Hvítum leiguliðum fjölgar sí- fellt í liði konungssinna, en ó- sagt skal látið hvaðan þeir fá kaup sitt. Á hinn bóginn er það staðreynd, að afskipti Rússa af stríðinu verða stöðugt meiri. Það er því ekki ólíklegt að strið ið í Jemen verði áður en langt um líður alheimsdeiluefni. Endurs. úr Berlingi. Þetta er kort yfir Jemen, og m.a. sýnir það þrjá staði þar sem, flugvélar frá Sovét-Rússlandi eru hafðar og notaðar til árása: Sann, Taiz og Hodeida. Ur heih HÁVAÐIFR, HÆTTULEGU HÁVAÐI sem myndast í heima húsum vegna notkunar ýmiss konar heimilistækja eins og t.d. hrærivéla, ryksuga og eldhús vifta, getur haft hin óæskileg ustu áhrif á igeðheilsu fjölskyldu meðlimanna, þó einkum á heilsu húsmóðurinnar. Dr. Lee E. Farr segir í grein í ritinu Journal of the Ameri can Medical Associaton að mörg hinna nýtízku eldhúsa séu líkust smækkaðri mynd af gömlu og hávaðasömu gufuafl verksmiðjunum sem í notkun voru á fyrrihluta aldarinnar. Viftur, ryksugur, þvottavélar og önnur heimilistæki valda há vaða sem síðan endurómar í stálvöskum og borðum, plastþilj um og ýmsum hlutum úr málm og gerviefnum sem í eldhúsinu eru. Dr. Farr segir að húsmóð í BANDARÍKJUNUM á þe olíurík berglög nokkur hu feta dýpi. Olíumagnið er tonni af grjóti. Og lieild; var sinnum meira en öll i um. Myndirnar sýna hveri að vinna þessa olíu, me< undir berglaginu og búa sígur niður í. Lofti yrði sí unni upp um hliðargöngin. 6 11. janúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.