Alþýðublaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 1
Föstudagur 12. janúar 1968 — 49. árg. 8. tbl. — Verð kr. 7
í sumar og vor n.k. verða haldin hér á landi
allmörg alþjóðleg eða samnorræn mót og ráð-
stefnur. Alþýðublaðið hefur fengið upplýsing-
ar um 8 slík mót og má ætla að heildar-
tala erlendra þátttakenda verði á milli 1800
og 2000.
Stærsta mótið verður án efa
Nordisk byggedag, eða Nor-
rænn byggingadagur, en tala
erlendra þátttakenda á móti
því verða nálægt eitt þúsund
talsins. Að sögn Gunnlaugs
Pálssonar arkitekts sem er
íiamkvæmdastjóri mótsins,
sækja það aðilar er sinna bygg
ingamálum, á Norðurlöndum
bæði opinberir og einstak-
lingar. Leigt hefur verið skip
til að ílytja hluta mótsgesta, en
allstór hópur þeirra kemur
fljúgandi. Mótið verður haldið
seinni hluta ágústmánaðar og
er það eitt stærsta mót er liald
ið hefur verið hérlendis. Eins
og gefur að skilja hefur und-
irbúningur mótsins verið mik-
ill, og hefur Geir Zoega annazt
undirbúning að flutningi gest-
anna í samráði við Cooks fcrða
skrifstofurnar á Norðurlöndum.
Ráðherrafundur Nato verður
hér dagana 24.-25. júní næsL
komandi. Beinir þátttakendur
erlendir verða rétt innan við
300 talsins, en einnig má gera
ráð fyrir að til fundarins komi
á milli 100 og 200 erlendir
blaðamenn. Undirbúningur
fundarins stendur nú yfir.
Norræni sumarháskólinn
verður hér á lanúi dagana 2.—
11. ágúst á vegum Háskóla ís-
lands. Sumarháskólinn saman-
stendur af 104 leshringum frá
19 háskólum á Norðurlöndum.
í sumar er búizt við um 109
erlendum gestum. Á sumarmót
unum hittist fólk úr leshring-
unum og ræðir það sem kom-
ið hefur fram í liverjum les-
hring fyrir sig, hlýðir á fyrir-
Framhald af 3. siffu.
Frystihúsin fara
ekki af stað strax
Á aukafundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í
gær var tekin ákvörðun um, að hraðfr.hús innan sam
akanna hefji ekki rekstur fyrr en viðunandi rekstr-
argrundvöllur hefur fengizt. Eins og kunnugt er hef-
ir rekstur frystihúsa innan S.H. Iegið niðri að mestu
að undanförnu, í»ar sem samtökin hafa talið, að ekki
væri fyrir hendi rekstrargrundvöllur fyrir húsin.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
efndi til aukafundar í gær um
starfsgrundvöll hraðfrystihúsanna.
Fundurinn hófst klukkan 14 og
var fundarstjóri kjörinn Jón Árna
son, alþingismaður, Akranesi.
Björn Halldórsson, framkvæmda
stjóri, og Árni Finnbjörnsson,
sölustjóri, gerðu grein fyrir sölu-
Þingflokksfundir
BÆÐI Alþýðuflokkurtnn og
Sjálfstæðisflokkurinn héldu þing-
mannafundi í alþingishúsinu í
gær. Á fundum þessum var fjall-
að um ákvörðun fiskverðs, samn-
inga milli sjómanna og útgerðar-
manna og önnur skyld vandamál,
sem snerta útgerð og fiskvinnslu
inú í byrjun vertíðar.
og markaðsmálum, Einar G. Kvar-
an, framkvæmdastjóri, skýrði frá
framleiðslumálum og Eyjólíur ís-
feld Eyjólfsson fluttj skýrslu um
störf yfirnefndar Verðlagsráðs
sjávarútvegsins við ákvörðun fisks
verðs og um rekstursgrundvöll
hraðfrystihúsanna.
Umræður urðu um vandamál
hraðfrystiiðnaðarins og samþykkti
fundurinn eftirtaldar ályktanir:
Með skírskotun til samþykktar
aukafundar 23. október 1967 stað-
festir aukafundur S.H. haldinn 11.
janúar 1968 ákvkörðun stjórnar
S.H., um að hraðfrystihús innan
samtakanna hefji ekki rekstur
fyrr en viðunandi starfsgrundvöll
ur hefur fengizt. Jafnframt bein-
ir fundurinn þeim tilmælum til
þeirra hraðfrystihúsa, sem begar
hafa hafið fiskmóttöku, að þau
stöðvi rekstur eigi síðar en inn-
an 10 daga, hafi starfsgrundvöll-
ur ekki fengist innan þess tíma.
Aukafundi þessum verði ekki
slitið og er stjórninni falið að
boða til framhaldsfundar, ef hún
sér ástæðu til.
Aukafundur S.H. haldinn 11.
janúar, 1968 samþykkir að mót-
mæla framkomnu frumvarpi til
laga á Alþingi um breytingu á
lögum nr. 51, 10. júní 1964 um
tekjustofna sveitarfélaga.
Fundurinn felur stjórn og fram
kvæmdaráði S.H. að fylgja málinu
eftir og skýra afstöðu frysthús-
anna fyrir ríkisstjórn og Alþingi.