Alþýðublaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 6
Ný, sterk forysta í Tékkóslóvakíu ALLT bcndir til að valdamissir Antonins Novotnys, sena kalla má síðasta Stalínistann, eigi eft ir að haf'a mikil áhrif í Tékkó- slóvakíu og öðrum löndum Aust ur-Evrópu, jafnvel x Kreml. Formannaskipti í Tékkóslóva- kíska koiomúnistaflokknum eru meira en venjuleg mannaskipti. iÞau innleiða einnig nýja stefnu í stað hinnar gömlu. Víðtækra hreytinga er að vænta í öllum helztu embættum Tékkóslóva- kíu, nýir menn komast til á- ihrifa og með þeim nýjar hug- sjónir. Moskva hefur ekki getað hindrað þetta. Heimsókn Brez- nevs, aðalritara rússneska komm únistafl., til Prag bjargaði ekki Novotny, og Pólverjar, A-Þjóð- verjar og Rússar bíða nú kvíða blandnir strauma þeirra, sem formannaskiptin geta leitt út fyrir landamæri Tékkóslóvakíu. Hinn nýi formaður kommú- nistaflokksins í Tékkóslóvakiu, Alexander Dubcek var að mestu óþekktur maður í Tékkóslóva- kíu áður en hann fékk embætt- ið. Hann er 46 ára gamall og því yngsti flokksmaðurinn í Austur Evrópu. Þrátt fyrir það er hann líklegur lirautryðjandi nýrrar þróunar og að minnsta kosti er hann iJákn nýs tíma. Aldur Dubceks er eftirtektar- verður, en þó er hin nýja stefna hans í efnahags- og stjórn málum, sem nú hefur sigrað,enn eftirtektarverðari, þar sem hún brýtur að miklu leyti í bága við þá stefnu, sem hingað til hefur verið fylgt í landinu. Auk bess er hann Slóvaki, en Slóvaki hef ur aldrei áðuV haft á hendi æðsta embætti landsins. Dubeek fluttist 4 ára gamall með foreldrum sínum til Rúss - lands, þar sem hann átti heima til ársins 1938. Þá sneri hann aftur til Tékkóslóvakíu ásamt bróður sínum Juliusi og gerðist áberandi sem ólöglegur, kommú nistískur áróðursmaður, bæði í Skoda-verksmiðjunum og í heimahéruðum sínum. í upp- reisn Slóvaka gegn hinni fasis- tísku, þýzksinnuðu Titostjórn 1944 voru báðir bræðurnir orðn ir flokksforingjar, en Julíus féll í átökunum. Eftir stríðið gerðist Dubcek einn helzti áhrifamaður við upp byggingu kommúnistaflokks Slóvaka. Árið 1951 fór hann til Prag sem þjóðþingsmaður, og skömmu seinna varð hann einn þriggja aðalritara kommúnista- flokksins. 1963 var hann kos- inn í miðstjórn flokksins í stað eins trús fylgismanns Novotnys. ys. Sama ár varð hann foruað ur flokksins í Slóvakíu. Dubcek naut jafnan mikils trausts, en var óþekktur bæði meðal þjóðarinnar og erlendis. Þegar gagnrýnin innan mið- stjómarinnar á formennsku Novotnys hófst að ráði fyrir 4 mánuðum, bjóst varla nokkur maður við því, að Slóvakinn Du bcek yrði eftirmaður hans. En það varð hann samt sem áð- ur og það var merki mikillar breytingar. Jafnframt því, sem Novotny hefur látið af for- mennsku hafa þegar tveir ráð- herrar hætt þeim starfa sínum og tekið við sendiherraembætt- um, þeir Jozef Lenart, forsætis ráðherra, og Vaclav David, ut anríkLsráðherra. Við embætti forsætisráðherra tekur Oldfich Cernik og er það talið táknrænt um það, sem koma skal. Stefna hans í efna hagsmálum þykir lipurleg og A. Novotny. Oldfich Cernik, forsætisráðherra. £ 12. janúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIQ rökræn. Talið er að Cernik hafi haft úrslitaáhrif í valdabarátt- unni við Novotny. Annar valda mikill maður verður án efa Ota Sik prófessor, faðir hinnar nýju endurbótastefnu í efna- hagsmálum. Alexander Dubcek hefur haft hröð handtök. Hann hefur þeg ar gert allviðamiklar ráðstafan- ir til að tryggja meirihluta sinn í miðstjórn flokksins, sem er nú %. Þeir nýju menn, sem nú komast í valdastöður, hafa allir fylgt Dubcek dyggilega í valdabaráttunni undanfarið. S'kömmu eftir valdatöku Du- bceks var samþykkt ályktun, þar sem lögð er áherzla á að menn séu vaidir tii embættis- starfa, sem hafi skilning á fram förum og fylgi endurbótastefnu í efnahagsmálum. Talið er, að viðskiptaumræður við Bonn- stjórnina, sem Novotny lét fella niður,! verði nú teknar upp að nýjií. Hefur þetta vald- ið nokkrum í áhyggjum í Pól- landi og þói sérstaklega í Aust ur-Þýzkalandli. Ulbricht reyndi af öllum mætti að hindra fall Novotnys, jafnvel þótt þeir séu engir vin ir. í því skyni sendi hann val inn sendimann til Prag. En allt varð það samt árangurslaust. Það var einnig Ulbricht, sem fékk Breznev til að heimsækja Prag. Greinilegt er að Ul- bricht og stjórn hans óttast hina nýju strauma, sem nú skella yf ir A-Evrópu, og þess vegna reyn ir hann að fá Moskvu til að spyrna við fótum. Ný stefna brýtur sér leið í Austur-Evrópu. Ceausescú í Rú meníu hóf fyrstur merki henn ar. Dubcek í Tékkóslóvakíu lyft ir því nú enn ’hærra. Alexander Dubcek Hinn sterki í Prag. Novitny hylltur af flokksbræðrum í garði Hradchin-kastalans. Nu er hann valdlaus þó að hann haldi forseta nafni. SOVÉT - GRÍN Það er gömul staðreynd. að Rússar eru menn gamansam- ir, og virðist umhleypinga- samt stjórnarfar keisara og kommúnista ekki hafa spiUt þessari gáfu þeirra, nema síð- ur sé\ Fyrir nokki-um dögum birti Kaupmannahafnarblaðið „Berlinske Aftenavis” nokk- rar skopsögur, sem sagðar eru í Sovét um þessar mundir. Að vísu eru sumar þeirra gamhr húsgangar, en vera má að les 2ndur hafi ekki heyrt svo að hér fara nokkur dæmi um sögurnar á eftir. — O — Rússar hafa um þessar mund ir mikla fyrirlitningu á Kín- verjum og gorti þeirra um hið mikla vald sitt í anda Maos. Sagan segir, að snemma morg uns hinn 7. nóvember, þegar halda átti hina miklu afmælis hátíð byitingarinnar, hafi Brez hnev fengið tilkynningu um, að Kínverjar ætluðu að gera ’nnrás í Sovétríkin kl. 10 ár- degis. Breshnev gaf þegar út eftirfarandi tilskipun: Hersýn- ingunni a Rauða torginu er frestað frá kl. 10 til kl 10 15. —- O —- Ekki ríkir eins mikil rúss- nesk bjartsýni í annarri sögu um binn hugsanlega ófrið miili Sovétríkjanna og Kír.a. Þar segir, að bardagar hafi haf izt, og fyrsta daginn hafa sovéf menn tekið milljón Kínverja til fanga. Annan daginn tóku sovétmenn 5 milljónir kín- verskra fanga. Hinn þriðja tóku þeir 15 milljónir fanga. Þá urðu Sovétríkin að gefast upp, því kínversku fangamir átu upp allan mat Rauða hers ins. — O -— 1 sumum sögum er pólitísk- ur broddur í garð beggja stór- veldanna Ein er á þá lund, að Ameríkumaður hafi spurt: — Er það satt, að allir geti fengið -keyptan bíl í Sovétríkj unum? Rússinn svaraði: — Er það satt, að það þið skjótið blökkumenn í Banda- ríkjunum? — O — Margar sögur hafa verið sagðar um ófriðinn milli Israel og Arabaríkja. Ein er á þá lund, að israelskir herforingj ar hafi rætt um, hvort þeir ættu að ráðast inn í Sýrland næsta morgun. Þá spurði einn þeirra: — Hvað eigum við þá að gera eftir hádegi á morgun? — O — Og loks þessi: Hvað dreymir Nasser um? Svar: Að það komi nýr Móses og fari burt með alla Gyðingana. — O — Sumar sögurnar bera með sér djúpa lífsbaráttu. Ein seg ir frá því, cr fyrsti maðurinn komst ljfandi til tunglsins. Hann var auðvitað Rússi. Fyrsta spumingin, sem send var til hans frá jörðunni, var þessi: — Er nokkurt líf þarna uppi — Nei, ekki hér heldur. svaraði hann. — O — Ýmsar sögur segja óánægðir menn á kostnað sovétkerfis- ins og þá um leið í hag and- stæðingum þess. Maður nokk- ur spurði: Af hverju eru Bandarík- in alltaf á barmi hruns? — Tii að sjá betur niður ti! okkar, var svarið. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.