Alþýðublaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 4
Bitstjóri: Benedikt Gröndal. Simar: 14900 — 14903. — Auglýsingasimi: 14908 ~ AÖsetur: Alþýðuhúsið við Hveríisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja AlþýjBu- blaðsins. Sími 14905. ~ Áskriftargjald kr, 120,00. — í lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Skáldin i Sovét ÞAU ÁTÖK, sem nú eiga sér stað milli rithöfunda og stjóm- valda í Sovétríkjunum, vekja heimsathygli. Því miður eru ung ir andans menn enn fangelsaðir, dregnir fyrir rétt og oft á tíð- um dæmdir til þungrar refsing- ar. Það er eðlilegt að umbrot mannlegs frelsis tverði á sviði bókmennta með Rússum. Þeir eru í eðli sínu Ijóðelskir og skáld hneigðir. Svo hefur stjórnarfar í landi þeirra frá tímum keisar- anna til þessa dags verið með þeim hætti, að fólkið beinir að skáldskap og listum þeirri orku og þeim áhuga, sem oft fer í pex og pólitík í lýðræðisríkjum. Stefna sovézkra yfirvalda í þess um efnum virðist ákaflega óhyggi leg og getur vart byggzt á öðru en ótta við aukið frelsi - þótt mjög hafi verið slakað á kló harð stjórnarinnar. Enda þótt rithöf- undarnir gagnrýni margt í um- hverfi sínu, eins og fólk gerir um allan heim, munu þeir undan- tekningalítið vera einlægir fylgis menn flokks og stjórnkerfis Sovét ríkjanna og miklir ættjarðarvin- ir. Fyrir fáum árum hefðu rithöf- undamir horfið þegjandi og hljóðlaust í fangelsi eða inn í ei- lífðina. Nú er sem betur fer hægt að fylgjast nokkurn veginn með því sem gerist. Og samúð manna um öll lönd er með rithöfundun um. Sjónvarp FRÁSAGNIR og auglýsingar dagblaða benda til þess, 'að enn sé mögulegt að sjá útsendingu sjónvarpsstöðvar vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli á mörgum stöðum í Reykjavík og á Suður- nesjum. Svo hefur virzt sem farsæl lausn hafi fengizt á þessu máli, og hefur verið hljótt um það langa hríð. Þó kemur það kunn- ugum ekki á óvart 'að erfitt reynist að takmarka sjónvarps- sendinguna við Keflavíkurflug- völl með skermum einum. Takist það ekki án frekari drátt ar, er aðeins um tvær leiðir að ræða. Varnarliðið verður að setja upp lokað símakerfi fyrir sjón- varp sitt, eða loka stöðinni alger lega. Það er ekki ráðlegt að skemmta skrattanum með því að vekja þetta deilumál til lífs á ný. j;;?y .4. ■ ^ - \ kÉjJJ. \yAUJ& RCH*• 'k'Xz- , • - •f-v wiMm ftsýfí'ij - 'V' OCEÁN. OF T. MAITER r&oyy* Heals' :icli’r* 4r~ S£A -or - ■ f J t. fyfyfypíCAMBRí ’i5> --•■'''•í^fe íiLÍAIIGNIUS-fe* n; >•- u c.ríuuV' >i-Íhaí»ihge»'i V" tííi STORMS, CÖPE«NICUS sla f«ICGQU>’ "EPKAÉá- CLÖUDSr%} 'fiSIMfiDÍ mmm YCHO'. LENDIN6- ARSTAÐIR Á MÁNANUM RÆTT ER um að reynt verði að senda mann til mán- ans innan tveggja ára. Og nú er verkefniö það að velja hæíilegan stað til lendingar. Margs þarf að gæta í því efni og mánafararnir fyrstu þurfa að gerþekkja staðinn. í fyrstu voru taldir koma til greina um 30 staðir. Um ýmis legt er að velja, og nú hafa menn fengið svo mikið af mánamyndum að fyllt gæti margar bækur. Seinna voru valair átta staðir úr þessum þrjatíu. og sagt er að i feb.úar verði eftir aðeins þrír til fjórir. Þegar lagt verður upp í hina sögulegu för til mánans verða mer.n að hafa í huga fleiri en einn stað sem hægt er að lenda á. Afstaðan til sólar- innar þarf að vera sérstök, þannig að sem bezt sjáist til mánalandslagsins. Sólin þarf að vera í 13-30 gráðu hæð á bak við Apollo-geimfarið sem þessi fyrsta sigling um hin bláu djúp milli stjarnanna verð ur farin í. Mörkin milli birtu og skugga flytjast frá austri til vesturs um 13 gráður á o Mulige minelandingsplasser hverjum jarðardegi (ekki mánadegi sem er 28 jarðdag- ar). Ef skilyrðin verða ekki heppileg þegar að er komið á einhverjum ákveðnum stað ylli @Surveyor-landingsplasser O Ranger-landingsplasser AP Newsfealures það mánaðar töf ef ekki væri- aðrir staðir sem þá væri unnt að halla sér að með því einu að bíða tvo daga eða svo. Fyrsta lendingin mun fara fram á stað þar sem landjð er sem allra flatast og helzt engin gíg eða fjallakambar í nánd. Slík flatneskja þarf Framhald á 10. síðu. VIÐ I IVIÓT 1 MÆLUM Þau skötuhjúin Valdimar og Þórunn Ashkenazy hafa sýnt okkur mikinn sóma með tíðum heimsóknum og nú síðast fest kaup á húsi hér í bæ. Þykiv þeim þrátt fyrir ólætin í okkur allan ársins hring, sem hér sé friðsælt að vera í þeim frístund og sem snillingurinn getur tek- ið frá tónleikahaldi. — O — Fréttamaður sjónvarps orðaði það við Þórunni, hvort maður hennar hefði hug á að gerast ís* lenzkur ríkisborgari. í því sam bandi færðist í tal, að gerði ungi maðurinn það og fengi hann borgararéttinn, þyrfti hann samkvæmt íslenzkum lögum að skipta um nafn. Hann héti ekkl lengur Ashkenazy heldur Vald- imar Davíðsson. Það er að vísu sómasainlegt nafn, en þó hljóta allir að siá, að slíkar kúnstir með frægan listamann eru svo smásmugulegar og skammarleg ar, að engu tali tckur. — O — Þessi nafnbreytingarlög eru jafn grimmileg um annað fólk, scm ekki er frægt og oft hefur flutzt hingað til lands af því að lífsbaráttan hefur veriff of hörð eða erfið annars staðar. Það er svívirðing að krcfjast þess af fullt.íða karlj eða konu, að breyta nafni sínu. Því eru þessi Iög þjóðinni til skainmar og ber að afnema þau við fyrsta tæki- færi. Mun raunar vera nefnd í því máli á vegum rikisstjórn- arinnar, eins og flestum öðrum mannlegum vandamálum. — O — Allt það fólk, sem fær íslenzk an ríkisborgararétt, á að halda þeim nöfnum, sem því liafa ver ið í bernsku gefin eða það lief- ur af gildum ástæðum tekið sér. Um börn þessa fólks, sem fæðast hér á landi og alast hér upp, er allt öðru máli að gegna. Þeim er greiði gerður með því að gefa þeim nöfn, sem falla vel að því umhverfi, sem örlögin ætla þeim að lifa í. — O — Hingað til hafa lögin sem bet ur fer ekki verið tekin alvar- lega, svo að þau hafa Iíklega ekki valdið eins niiklum sárinrl- um og vel hefði mátt ætla. Fólk brosir að flestum liinna ís lenzku heita, sem menn skyndi- lega skarta eftir að Alþingi hef ur hátíðlega veitt þeim borg- ararétt. Nöfnin festast yfirleitt ekki, sérstaklega ekki ef um kunnan mann er að ræða. 4 12. janúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐID

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.