Alþýðublaðið - 18.01.1968, Page 3
Flensan örugg-
lega komin hér
Fullvíst þykir! nú að Asíuin-
flúensan sé komin til landsins.
Hafa nokkrir Reykvikingrar tekið
veikina. en erfitt er að segja um,
að svo stöddu, hversu útbreidd
hún er.
Aðstöðarborgarlæknir, tjáði
blaðinu í gær, að enn væri ekki
Ihægt að nefna innflúensuna far
aldur. Þá sagði hann að þau til
felli er vitað væri um, væru frem
Það var vor
ÞAÐ VAR VOR nefnist ljóða-
bók eftír Guðbjart Ólafsson, sem
nú er nýkomin út. Höfundur bók
arinnar var sonur hjónanna Dóru
Guðbjartsdóttur og Ólafs Jó-
hannessonar prófessors, en hann
lézt snemma á síðasta ári 91
ára að aldri. í bókinni er 28 ljóð
auk þess nokkrar myndir eftir
Guðbjart. Andrés Kristjánsson
ritstjór'i ritar formálsorð að bók-
inni, en hún er prentuð í Prent
smiðjunni Eddu h.f. og gefin út
af bókaútgáfunni Von. Auglýs-
Ingastofa Gísla B. Björnsson lief-
ur annast ytri gerð bókarinnar
sem er hið snyrtilegasta.
ur væg. Inflúensan lýisr sér
með höfuðverkjum, beinverkjum
og hita, sem væri allhár fyrstu
daganaí, en lækkaði fljótt. In-
flúensunni fylgir í mörgum til-
fellum kvef. Aðstoðarborgarlækn
ir sagði að á Bretlandi væri al-
gengast að læknar gæfu Asperín
við inflúensunni, en hér væri
Magnyl algengast.
Éldur í bíla-
verksíæði
Um kl. 12.15 í gærdag var
slökkvilið Hvolsvallar kvatt að
Rauðalæk í Holtahreppi, en þar
hafði komið upp eldur í bílaverk
stæði Kaupfélags Árnesinga.
Slökkviliðið var um eina klukku
stund að ráða niðurlögum elds-
ins, og varð mikið tjón á húsinu.
Þá urðu miklar skemmdir á verk
færum verkstæðisins og einnig á
varahlutalager. Eldsupptök voru
ókunn í gær, en líkur benda til
þess að hér hafi verið um sjálfs
íkveikju að ræða og ekki er vit
að um að neinn hafi verið nálægt
er eldurinn kom upp.
Eldur í þak-
KL. 16.15 í gærdag var slökkvi-
liðinu í Reykjavík tilkynnt, að
eldur hefði kviknað í húsinu
Hverfisgata 104. Er það kom á
staðinn kom í ljós, að eldur log
aði í herbergi í risi hússins, en
herbergið var notað sem
geymsla. Greiðlega gekk að kom
agt að eldinum, en ásamt því að
Framhald a 10. síðu.
Per Olof Sundman sem í
gær hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs er maður á
miðjum aldri, fæddur 1022 í
Vaxholm þar sem hann býr
enn í dag. Sundman byrjaði
seint að skrifa, fyrsta bók hans
Jagarna, Veiðimennirnir, kom
út 1957, en vakti þeim mun
meiri athygli þegar með þess-
ari fyrstu bók. Hefur hann
áður verlð orðaður við verð-
laun Norðurlandaráðs og enn-
fremur við hin alþjóðlegu lror-
mentorbókmenntaverðlaun. Áð
ur en ritstörf hans hófust lagði
Per Olof Sundman á marga
hluti gjörva hönd, meðal ann-
ars rak hann um skeið Iiótel
í Jormliennorður á Jamtalandi
Þar norður frá' gerast fyrstu
sögur hans, Jiigarna sem áður
var nefnd, stuttar sögur, og
skáldsagan Undersökningen,
Rannsóknin, 1958, sem greinir
frá rannsókn á ferli drykkju-
sjúklings í litlu þorpi, sem ná-
granna hans, formanni áfeng-
isvarnarnefndar í þorpinu er
falið að gera. Sundman skrifar
mjög auðkennilegan stíl, hiut-
lægan, nákvæmnislegan, leitast
við að lýsa því og því einu sem
„aliir“ gætu séð og heyrt og
reynt í sporum sögumanns,
forðast hverskonar ,,sálfræði“;
þetta er listbragð sem strangt
tekið á ætt sína að rekja til
íslendingasagna, en ekki er vit-
að hvort Sundman er kunnugur
þeim. Það er því ofur-eðiilegt
að hann hefur í seinni tíð tek-
ið að semja skáldsögur eftir
raunverulegum atburðum.
Mikla athygli vakti skáld-
saga hans Expeditionen, Leið-
angurinn sem kom út 1962,
byggð á leiðangri Stanleys
landkönnuðar til bjargar Emin
Pasja innan úr miðri Afríku
Stanleys og Livingstone árið
1887. Um nýjustu sögu Sund
réesmans, verðlaunabókina
Ingenjör Andrées luftfard,
hefur verið sagt að þar komi
fram öll efnisatriði heimild-
anna og sé rétt með farið með
þau öll, — en sagan er Þar
fyrir ekki „sönn saga“ heldur
mikilsháttar skáldskapur.
Salomon Augustus Antírée
verkfræðingur lagði upp í flug-
ferð sína frá Svalbarða sum-
arið 1897 árið eftir að lauk
leiðangri Friðþjófs Nansens til
Norðurheimskautsins, en hug-
mynd Andrées var að fljógja
í loftbelg yfir pólinn. Nansen
sneri heim sigurvegari úr
frækilegri ferð, heimskunnur
maður; og bar fundi þcssara
ólíku landkönnuða saman í
Tromsö norður í Noregi við
heimkomu Nansens; Andrée
hafði þá orðið að hætta -við
sína fyrstu tilraun til ferðar-
innar yfir pólinn. Hún var end-
urtekin ári síðar eftir vandleg-
an undirbúning. Þá steig And-
rée .loks upp í loftbelg sínum
frá' Svalbarða við þriðja maanr
og hvarf eins og loftið hefði
gleypt hann. Það var ekki fyrr
en árið 1930 að líkamsléifar
þeirra félaga fundust í síðfista
náttstað þeirra, ásamt dagbók-
um sem tveir þeirra höfðu hald
ið um ferðina, aðalheimildum
Sundmans í sögunni, og þar
með endanleg vitneskja um ör-
lög þeirra. Flugferðin í loft-
belgnum hafði staðið liálfan
þriðja sólarhring og mistekizt
með öllu að hafa stjórn á bon-
um, en ætlunin var að láta
suðlæga vinda fleyta honum
5’fir pólinn; ferðinni lauk í
staðinn einhvers staðar í auðn
um íshafsins þar sem lofcbelg-
urinn strandaði endanlega, en
þeir félagar björguðust ailir
heilir á húfi. Þaðan hófst. enda-
laus ganga þeirra í átt til lands
yfir ísinn sem virtist stöðugt
reka á móti þeim—henni lauk
sem sagt ekki fyrr en 1930.
Sagan er lögð í munn Knut
Frænkel verkfræðingi sem
slóst í för með Andrée eftir
fyrstu tilraun hans, en hann
var sá leiðangursmanna sem
lifði lengst; báðir hinir Vil-
helm Strindberg og Andrée
sjálfur héldu dagbækur í auðn-
inni, en Frænkei gerði það
ekki.
Per Olof Sundman kynntist
Framhald á 10. síðu
Bridgespclarar
Spilum í Ingólfskaffi n.k. laugardag, 20 janúar, kl. 2 eftir hádegi.
Stjórnandi: Guðmundur Kr. Sigurðsson. Gengið inn frá Ingólfsstræti.
Aliir velkomnir.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
Spilakvöld í Hafnarfirði.
Hin vinsælu spilakvöld Alþýðufiokksins í Hafnarfirði hefjast að nýju n.k.
í kvöld ki. 8,30 stundvíslega í Alþýðuhúsinu.
Spiluð verður félagsvist.
Ávarp kvöldsins flytur Emil Jónsson utanríkisráðherra. Sýndar verða lit-
skuggamyndir og kaffiveitingar fram bornar.
Stjórnandi spilakvöldanna er Gunnar Bjarnason.
Þetta er fyrsta spilakvöldið á þessu nýbyrjaða ári. Aðsókn að spila-
kvöldum þessum, hefir á undanförnum árum verið mjög mikil, og jafn
an spilað fyrir fullu húsi á tveimur hæðum. Það er ekki að efa, að
enn sem fyrr munu Hafnfirðingar og aðrir fjölmenna á spilakvöldin í
Alþýðuhúsinu í vetur.
Sætamiðapantanir eru afgreiddar f síma 50499.
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Á FUNDI Sjómannafélags Hafiv
arfjarðar 15. 1. 1968 um fisk-
verðið og kjaramálin. voru
samþykktar eftirfarandi tillög-
ur:
A. Félagsfundur í Sjómannafé-
lagi Hafnarfjarðar 15. 1, 1968
mótmælir því valdi, sem odda-
maður verðlagsráðs sjávarútvegs
ins hefur teklð. sér með því að
úrskurða fiskverð einsamall.
Fundurinn mótmælir einnig
því að nú skuli raunverulega
vera tekið upp tvöfalt fiskverð
og hlutaskiptunum þar með
breytt sjómönnum í óhag.
B. Fundurinn skorar á Alþingi
að breyta úrskurði oddamanns
verðlagsráðs sjávarútvegsins
þannig, að fjárupphæð- sú er út-
gerðarmönnum er ætluð sérstak-
lega, verði af þeim tekin og reikn
uð inn ■ í fiskverð, sem þá yrði
hækkað um 20% frá því sem það
var & síðastliðnu ári, bæði til
sjómanna og útgerðarmanna,
eins og fulltrúi sjómanna í yfir
nefnd verðlagsráðsins lagði til.
C. Félagsfundur í Sjómannafé-
lagi Hafnarfjarðar heimilar trún
aðarmannaráði að boða vinnu-
stöðvun á bátunum í samvinnu
við önnur sjómannaféiög ef þörf
er á, til að ná fram kröfum sjó
manna um kjaramálin.
Á fundinum var samninga-
nefnd sjómanna hvött til áð
leggja aðaiáherzlu á kröfurnar
um 1500 kr. upp í fæði, lagfæt-
jngu á skiptakjörum á trollbát-
um og aukna slysa og dánartrygg
ingu.
AFBROTIFÆREYJUM
Kaupitrannahöfn 1. 7. (ntb).
Lögreglustjórinn í Færeyj-
tnn- liefup birt skýrslu sína
um afbrot eyjarskeggja árið
1967. Eitt manndráp er talið
fram í skýrslunni og. er það í
fyrsta sinn i 100 ár, sem slík-
ur atburður gerist í Færeyj-
um. Var þar átt við morð
ungs pilts á fyrrverandi kær-
ustu sinni norskri, en hann
skaut hana í fyrra mcð fugla,-
byssu.
Samtals voru framin 289 af
brot árið 1967 og er það nokk
ur fjölgun frá í fyrra ír
skýrslunni eru taldir upp> 84
þjófnaðir, 36 nauðganir og g
annars konar kynferðbafbrot,
svo dæmi séu nefnd. Færey,4-
ingar eru nú rúm 32000 t;ils-
ins.
18/ janúar; 1968 - AltfÐUBUtfHE>. 3f >