Alþýðublaðið - 18.01.1968, Side 12
(MmiiiiiiiiimniiiiiiiMiiiiiiiiimmiiiHiiuitjMiiiiiiiiiiiiiiMuiNiiiHiiiimidmmiHiiiiiiimiMiiiiiiiiiiiimiiiiiiuiiiiii'
n ;
Háið er táknið, sem hvarvetna má sjá
og hvarvetna fyrir mannieg augu ber.
Og ég er alltaf að hugsa um þetta há
um h-bjartan daginn og velta því fyrir mér.
Og jafnvel um h-nótt hjarta mitt slær sér á lær 1
og hissast hvað tákn þetta Ijómandi fallega skín, I
en h-fjöllin eldsnemma urðu mér hugumkær f
og alltaf síðan mitt tóbak og brennivín,
Og dægurljóðin um háið hljóma í dag, f
og h-menningin biómgast, voldug og glæst: 1
Ómar er búinn að yrkja h-stemmdan brag
og Árelíus kemur sjálfsagt næst. |
~IIIIIIIIIWIMMMIH«!MI 11111111111111111III MMMUMMHHHIIMMIMMMIMIIIMIMIMIIMMMMIIimMIMMMI IIIIIMIMMMMMIMM11111*
Þaff er einhver spekin?ur í
útlöndum, sem hefur safft, að
vökl greti boffið spillimra
heim, en hjá því fari hins
vegar ekki að valdamissir
geri baö. Þetta eru greini-
lega sannindi, það þarf ekki
annað en líta á Framsókn.
Þessi inflúenza virðist vera
eins og krían. Hinir og aðrir
þykjast verffa varir við hana,
áffur en hún er opinberiega
komin til landsins.
— Nú er flensan loksins komin.
Nú bíffur maffur bara í spenningi
eftir að kennarablókin legrgist.
Nú er það komið
margeftirspurða litaða glerið
margar gerðir, fallegt munstur.
Hamrað gler, margar gerðir.
Tvöfalf einangrunargler, margir verð-
j flokkar.
\ Einfalt gler, allar þykktir.
t • '
1 Glerisetningar, gluggalistar og undir-
I burður o.m.fl.
i \ ] • '
Gluggaþjónustan
| Hátúni 27. - Sími 12880.
■ ■ i
giegi
Heili og hugsun
NÝLEGA var þess getið í fréttum að rafeindaheili einn,
bandarískur, hefði kjörið heimsins bezta kjaftshöggvaveitand-
ann. Heilinn var mataður á ýmsum væntanlegum lilutlausum
upplýsingum um feril þeh-ra mörgu er til greina komu sem
berendur þessa virðingai-verða titils (synd að hnefaleikar
skuli ekki vera leyfðir hér með lögum, Það má bóka að ein-
hver undaneldinga þeirra frísku víkinga er námu hér land
fyrir löngu, hefðu örugglega náð langt í 'þessari grein, ef
dæma má af fréttum sem berast af sjálfsbjargarviðleitni
ungra íslendinga á Danagrund) og vann hann síðan úr upp-
lýsingunum samkvæmt beztu vitund og lagði loks álit sitt á
borðið.
Álit heilans er vafalaust metið mikils og því ugglaust trú-
að sera nýju neti úr úrvals nælonefni frá Nippon. Ef rétt
hermir í fréttum fékk kappinn sem heilinn hafði mestar mæt-
ur á tug þúsunda af bandarískum dollaraseðlum (1 banda-
ríkjadollar 57,07 ísl. krónur) plús belti mikið sem skreytt
var heimsins flottustu eðalsteinum.
Já, það má með sanni segja, að þessir rafeindaheilar eru
sannkölluð furðuverk. Því er jafnvel haldið fram, að innan
tiltölulega fárra áratuga verði öll jarðarkringlan og það sem
á henni dvelur, að lúta að vilja rafeindaheila, og fara í einu
og öllu eftir duttlungum þeirra hverju sinni, (Það væri huggu
legt ef einhver af mikilvægari heilunum brjálaði&t og tækl
til við að fíflast gagnstætt skynsamlegri hugsun og allir þekkja
söguna um fluguna, sem settist á eitt tannhjól slíks heila.
Þyngd flugunnar seinkaði örlítið gangi hans, og að lokum
fór allt að ganga úrskeiðis unz allt heila heimsgramsið sigldj
hraðbyri veg allra veraldar). Gvuð minn góður á himnum,
hrópa í örvæníingu einhver veiklunduð meðalmenni. En þetta
er í rauninni allt í lagi. Við skulum a.m.k. vona að heilarnir
leggi saman og finni öruggt ráð til útrýmingar flugum, sem
samkvæmt ofanskráðu mega teljast óvinir þeirra.
Þá má og skjóta því að, að áreiðanlega má mennta einhvern
góðan heila í sálfræði rafeindaheila, til að tryggja að aðrir
heilar sturiist ekki og leiði okkur í glötun. Það væri nefni-
lega ekkert fráleitt að hugsa sér að stór og valdamikill heili
fengi vald sitt á heilann og tæki til að þjást af mikilhe'ila-
brjálæði (sbr. mikilmennskubrjálæði sumra valdamikilla þjóð-
arleiðtoga, fyrr og síðar).
Þrátt fyrir allt er undarlegt að hugsa til þess, að eiga von
á því að geía hætt að hugsa og láta rafoindaheila skipuleggja
allt fyrir sig. Þó vefst sú hugsun oft fyrir mér, að ef nú
rafeindaheilarnir fengju þá dellu á heilann að hætta að hugsa
og tækju að láta gera það fyrir sig einnig og svo koll af
kolii. Þá væri sú hætta yfirvofandi að hugsunin færi um það
marga milliliði að hún súrnaði á leiðinni.
HÁKARL.
Það er sannleikanum sam-
kvæmt aff segja, aff menn séu
skepnur. Aff segja, aff skepn
ur séu kvikindi er fullkomlega
rétt, Þess vegna segi ég, aff
þaff sé fullkominn sannleikur,
aff allir menn séu kvikindi.