Alþýðublaðið - 10.02.1968, Blaðsíða 11
Athugið
Símanúmer okkar er breytt
í 83385«
Langholtsbakarí,
Langholtsvegi 152.
Eldhús
Getum bætt við okkur hin-
um ódýru, fallegu eldhús-
innréttingum. Munið hina
vinsælu baðskápa. Ódýrt,
vandað. Sími 82817.
Ekta ioðhúfur
mjög fallegar á börn og
unglinga. Kjusulag, með
dúskum. — Póstsendum. —
Kleppsvegi 68, 3 h. t. v.
Sími 30138.
Bifreiðastjórar
Gerum við allar tegundir
bifreiða. — Sérgrein hemla
viðgerðir, hemlavarahlutir.
hemlastilling h.f.
Súðavogi 14. — Sími 30135.
Rafvirkjar
Fotoselluofnar.
Rakvélatenglar
Mótorrofar
Höfuðrofar, Rofar, Tenglir.
Varhús, Vartappar.
Sjálfvirk rör, Vír, Kapall,
margar gerðir.
Lampar í baðherbergi,
ganga, geymslur í
Handlampar
Vegg-, loft og lampafalir
inntaksrör, járnrör,
1“ ll/4“ m“ og 2“.
Einangrunarband, margir
lítir og önnur smávara.
— Allt á einum stað. —
— Rafmagnsvöru- —
■x — búðin sf. —
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670
— Næg bílastæði. —
BÍLAKAUP
15812 — 23900
Höfum kaupendur að flest-
urri tegundum og árgerðum
af nýlegum bifreiðum.
Vinsamlegast látið skrá bif-
reiðina sem fyrst.
BBLAKAUP
S í M A R:
15812 — 23900
Skúlagötu 55 við Rauðará.
TórJist
Framhald af 4. síðu.
hætt við, að þeir muni brenna
fljótt upp. Einn þessara fítona,
sem mesta athygli hafa vakið
fyrir snilligáfu á sviði tónlist-
ar og óhemjuskap í einkalífi, er
Indverjinn Zubin Metha. Hann
er aðeins 31 árs og er nú setzt
ur að í U.S.A. Hann er fast-
ur stjórnandi symfíníuhljóm-
sveitarinnar í Los Angeles.
Hann varð með yngstu mönnum
sem höfðu nokkru sinni stjórn-
að fílharmóníuhljómsveitum
Berlínar og Vínar. Hann hreif
áheyrendur á tónlistarhátíðinni
í Saltzburg með verkum Brahms
og Stravinskis. Tuttugu og
fjögra ára varð hann stjórnandi
symfóníuhljómsveitar Montreal-
borgar og árið eftir tók liann
við sama starfa í Los Angeles.
Tók þá við liljómsveit í molum,
hljómsveit, sem ekki hafði haft
fastan stjórnanda í fjögur ár.
„Hún gat leikið hvað sem var,
en hún hafði engan stíl, var
holhljóma og alveg óöguð“,
sagði Metha. Hann var fyrstur
svo ungra manna að stjórna
tveimur meiri háttar hljómsveit
um, amerískum og eini maður
þar um slóðir til að stjórna
tveimur stórhljómsveitum í einu,
en það gerði hann á heimssýn-
ingunni í Montreal í fyrra. Þá’
lóku hljómsveitirnar Symfóníu
Fantastique eftir Berlioz. Inn-
an tíu ára frá því að hann lauk
námi hefur hann náð á tindinn
á mettíma. Haft er eftir Orm-
andy að hann álíti Metha lang-
bezta unga hljómsveitarsjtóra
vorra tíma. G.P.
Rætt vÉð prest
Framhald af 5. síðu.
veitir ekki fullnaðarsvör við öll-
um spurningum, sem sjóslysin
vekja, — en kristin trú hvetur
til að hjálpa og bjarga, hvar
sem verða má. Þegar ég rifja
upp kynni mín af slysavamar-
málum, sé ég fyrir mér all-stór-
an hóp af fólki, sem ég beinlín
is veit, að hefur fengið áhuga
á björgun og öryggismálum, af
1 ví að það hafði einhverntíma
á ævinni sjálft staðið í svipuð-
um kporum og þeir, sem nú
Ryrgja bæði erlenda og innlenda
sjómenn. Þessi þjónusta er rétta
svarið — svar kristindómsins.
Guð styrki alla, sem nú þurfa
hjálpar við og blessi hvern líkn
andi hug og hönd.
Jakob Jónsson.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
BRAUÐHXJSlfí
SNACK BÁR
Laugavegi 126.
sími 24631.
^lenntamenn
Fjórir læknar svara því til, að
þeir hyggist hafa áframhaldandi
búsetu erlendis, en átta læknar
segja það óákveðið, hvort Þeir
muni setjast að á íslandi eða ekki.
Af 33 verkfræðingum ætla tólf
að setjast að á' íslandi, sjö eru
ákveðnir að eiga áframhaldandi
búsetu erlendis, en fjórtán eru
óráðnir.
Af 15 náttúrufræðingum eru sex
ákveðnir í að eiga búsetu á ís-
landi, þrír hafa ákveðið að hafa
áframhaldandi búsetu erlendis,
en sex eru óákveðnir.
Af þrettán aðilum annarra
greina eru sjö ákveðnir að hafa
búsetu hér á landi, einn er á'-
kveðinn að eiga áfram búsetu er-
lendis, en fimm eru óákveðnir.
Hlutfallstölur þessara niður-
staðna eru: Af 124 háskólamönn-
um, sem starfandi eru erlendis,
er 61,3% þeirra, sem áætla búsetu
hér á landi, 12.1% hyggjast búa
erlendis, en 26.6% þeirra eru ó-
ákveðnir, hvort þeir muni setj-
ast að hér á landi eða eiga á-
fram búsetu erlendis.
Læknar hafa að meðaltali
starfað samfellt erlendis í 6.1 ár.
Þeir, sem ætla að setjast að á
íslandi, — (51 af 63 eða 81%,
sbr. áðurgreindar tölur) — télja
sig að meðaltali eiga eftir að
dveljast erlendis í 3.4 ár. Verð-
ur því heildarbúseta læknanna ut-
an íslands tæpur áratugur, og ætla
má', að þeir séu almennt alflutt-
ir til íslands um fertugt.
Langflestir læknanna eru að
afla sér framhaldsmenntunar, og
athyglisvert er, að 48 læknar gefa
upp sem aðalástæðu fyrir búsetu
sinni erlendis, að þeir séu að afla
sér framhaldsmenntunar og ætla
þeir allir að setjast að á íslandi.
Að öðru leyti eru veigamestu
ástæður læknanna þær, að betri
starfsskilyrði séu erlendis en á
fslandi og hliðstæðar ástæður. —
Rétt er að geta þess, að aðeins
tveir læknar nefna hærri nettó-
laun sem aðalástæðu fyrir búsetu
sinni erlendis og tveir sem með-
virkandi ástæðu.
Varðandi læknana má í stuttu
máli draga þá ályktun, að þeir
sæki ekki til útlanda sökum lé-
legra launakjara á íslandi, heldur
fyrst og fremst til að leita sér
framhaldsmenntunar jafnhliða
starfi. í almennum athugasemd-
um gagnrýndu þeir hins vegar
mjög stárfsaöstöðu lækna hér á'
landi.
Verkfræðingar hafa að meðal-
'tali verið búsettir erlendis í 7.8
ár, en þeir, sem telja sig munu
setjast að á íslandi, eru yfirleitt
óákveðnir í því, eftir hve lang-
an tíma þeir flytjist búferlum til
landsins. Er því ekki óeðlilegt að
álykta, að ýmsar ytri aðstæður
gætu auðveldlega valdið því, að
þessir menn yrðu á'fram búsettir
utan fslands.
Algengustu ástæður verkfræð-
inganna til búsetu erlendis eru
betri starfsskilyrði og hliðstæðar
ástæður, svo og hærri nettólaun
en á íslandi. Af „öðrum ástæðum”
má nefna, að sex verkfræðingar
gefa upp sem aðalástæðu, að eig-
inkona sé erlend, og fjórir nefna
þetta sem meðvirkandi á'stæðu.
Athyglisvert er, að af 25 verk-
fræðingum, sem dvalið hafa
skemur en tíu ár í útlöndum, ætl-
ar aðeins tæpur þriðjungur að
flytjast aftur til íslands, fjórir
setjast að erlendis, en þrettán
eru óráðnir. Segir þetta sína sögu
um óánægju þessara ungu verk-
fræðinga með launakjör og starfs-
aðstöðu ! hér á landi.
Af 18 náttúrufræðingum, sem
fullnægjandi upplýsingar fengust
um, bárust svör frá 15 í tíu þjóð-
löndum, en það eru sérstaklega
góðar undirtektir.
Náttúrufræðingar hafa að með-
altali verið búsettir erlendis í 6.5
ár. Sex þeirra ætla að setjast að
á íslandi, en óvíst hvenær. Má
af þessu draga svipaðar ályktanir
og um verkfræðingana.
Af ástæðum þeim, sem náttúru-
fræðingarnir nefna til búsetu er-
lendis, er öflun framhaldsmennl-
unar þyngst á metunum, en einn-
ig hafa laun og starfsskilyrði veru-
leg áhrif.
Lítill hugur er í náttúrufræð-
ingum að setjast að á íslandi.
Athyglisvert er í þessu efni, að
aðeins þrír af þeim sjö, sem telja
sig dvelja fyrst og fremst crlend-
is vegna framhaldsmenntunar,
ætla að setjast að á íslandi að
námi loknu.
FiskifélagiS
Framhald af 1. srfðu,
ur tekin ákvörðun um aðgérð
ir á næstunni.
4. Undirbúningur að smíði haf
rannsóknarskips hefur reynzt
vandasamari og tafsamari en
gert var ráð fyrir og hefur
nokkur dráttur orðið á mál-
inu. Skipsskrokkurinn verður
þó boðinn út á næstunni, en
um aðra hluti til skipsins hef
ur þegar verið samið.
5. Ákveðið hefur verið að gera
ráðstafanir til að efla Fisk-
veiðasjóð íslands, þannig að
hann verði betur fær um að
gegna hlutverki sínu en ver
ið hefur.
í ræðu sinni talaði ráðherr-
ann einnig nokkuð um starfsemi
Fiskifélags íslands og kvað það
þýðingarmikinn tengilið milli
ráðuneytis og sjávarútvegsins.
Fiskifélagið hefði jafnan haft for
göngu um aukna tækni f sjávar
útvegi og mætti kalla það ljós-
móður rannsóknarstofnana sjáv-
arútvegsins, bæði Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins og Haf
rannsóknastofnunarinnar.
K.F.UM.
Á morgun:
Kl. 10,30 f.h. Sunnudagaskólinn
við Amtmannsstíg. Drengja-
deildirnar Langagerði 1 og
í Félagsheimilinu við Hlað-
bæ í Árbæjarhverfi. — Bama
samkoma í Digranesskóla við
Álfhólfsveg í Kópavogi. —
Kl. 10.45 Drengjadeild Kirkju-
teigi 33.
1.30 e.h. V.D. og Y.D. drengja
við Amtmannsstíg. Drengja-
deildin við Holtaveg.
Kl. 8.30 Almenn samkoma í húsi
félagsins við Amtmannsstíg.
Sigurbjörn Guðmundsson,
verkfræðingur, talar. Stúlkna
söngur.
Allir velkomnir.
F.U.J. F.U.J.
Ráðstefna sú um aðstöðu ungs fólks til áhrifa
á stefnu Alþýðuflokksins, sem áformað var
að halda s.l. sunnudag, en var frestað vegna
veðurs, verður haldinn sunnudaginn 11. febrú
ar n.k. kl. 2 e.h. áð Félagsheimili múrara og
rafvirkja, Freyjugötu 27.
Til ráðstefnunnar hefur verið boðið sérstak-
lega stjórnum F.U.J. félaganna í nágrenninu,
stjórn S U.J. auk ýmissa 'annarra ungra jafn-
aðarmanna. —
Gestur ráðstefnunnar iverður Jón Þorsteins-
son, alþingismaður.
STJÓRN F.U.J. í REYKJAVÍK.
10. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐI0 \\