Alþýðublaðið - 17.02.1968, Síða 1
Laugardagur 17. febrúar 1968 — 49. árg. 36. tbl. — Ver5 kr. 7
Glerhlífin, sem nú hefur verið' sett upp í einum Hreyfils-bíl.
Samvinnufélagið Hreyfill og bifreiðastjórar á
stöð félagsins hafa nú ákveðið að greiða eitt-
hunðrað þúsund krónur, hverjum þeim sem gefi
upplysingar er leitt geta til handtöku morðingja
Gunnars Tryggvasonar bifreiðastjóra, sem skotinn
var til bana 18. janúar s.L, en Alþýðublaðið skýrði
frá því fyrir fáeinum dögum, að bifreiðastjórar
væru að yfirvega slíkt. Þá hefur nú verið sett ör-
yggisgler milli fram— og aftursætis í eina
leigubifreið af Hreyfli til reynzlu, og er ver
ið að kanna, hvort slíkt gæti orðið til að auka
öryggi bifreiðastjóra.
Stefán Ó. Magnússon, fram-
kvaemdastjóri Hreyfils, sagði á
fundi með fréttamönnum í
gær, að morð Gunnars S.
Tryggvass. hefði vakið mik-
inn óhug meðal leigubílstjóra,
og hafi komið upp háværar
raddir um það, að auka þyrfti
öryggisútbúnað ieigubifreiða
til muna. Þannig hefði öryggis
gler og milliskilrúm milli bíl-
stjóra og farþega í aftursæti
mikla þýðingu. Kæmi það í
veg fyrir hvers konar truflan-
ir, sem bíistjórinn yrði að öðr
um kosti fyrir. Annað tilfóeki-
legt ráð væri til, én það væri
að setja „öryggistón1' í tal-
stöð bifreiðanna, þá lcæmi af-
greiðslunúmer bifreiðarinnar
fram á skífu á bifreiðastöð-
inni. Stefán kvað þetta hafa
verið tekið upp í ríkum mæli
í Þýzkalandi, en þar hafi fleiri
leigubílstjórar verið myrtir í
starfi en í nokkru öðru Evrópu
landi.
Stefán sagði, að ef til vill
væri ekki til nein einhlýt
vörn gegn slíkum 'atburðum
sem morðinu á Gunnari heitn
um. Það er vilji okkar, að allt
verði gert til þess að upplýsa
þetta hryllilega morðmál og
þess vegna höfum við ákveðið
að leggja fram 100 þúsund
króna upphæð til höfuðs morð
ingjanum, sagði Stefán.
Á aðalfundi s.f. Hreyfils,
sem haldinn var 6. febrúar s.
1. var eftir farandi samþykkt:
„Aðalfundur s.f. Hreyfils,
haldinn 6. febr. 1968, harmar
hin hryllilegu atvik í sambandi
við dauða Gunnars Tryggva-
sonar, bifreiðastjóra á Hreyfli
og að ekki skuli hafa tekizt að
finna þann seka.
Vegna þessa atburðar telj-
um við nauðsynlegt, að allt það
sé gjört. sem í mannlegu valdi
stendur til að auka öryggi bif
Framhald á 5. síðu.
Trausti er
talinn
Vélbáturinn Trausti frá Súðavík er nú talinn aí. Leitin að bátnum
hefur staðið yfir í þrjá sólarhringa, en engan árangur borið.
Með Trausta fórust eftirtaldir menn: Jón Magnússon, sk'ipstjóri,
ísafirði 36 ára, ókvæntur, Jón Ólafsson, vélstjóri, Garðsstöðum Ögur
hreppi, 33 ára, ókvæntur, Halldór Júlíusson, Svartahamri Áíftafirði.
30 ára, kvæntur og sex barna faðir og Eðvarð Guðleifsson, Kle’ifum
Súðavík, 45 ára, ókvæntur.
Trausti ís-54 var 40 lesta eikarbátur, smíðaður í Reykjavík árið
1956. Eigandi bátsins var Þorgrímur h.f. á Súðavík.
Samningavið-
ræður hefjast
Fyrsti viðræðufundur A S í og
fullfrúa vinnuveitenda fór fram
í gær og lögðu fulltrúar A S í
þar fram kröfur sínar um verð
lagsbætur á laun og gerðu grein |
fyrir þeim kröfum, en A S í hef
ui" nú feugið umhoð margra
verkalýðsfélaga til samningsgerð
ar. Næstj viðræðufundur verður
haldinn á miðvikudaginn, en nú
uffi. helgina munu mörg verkalýðs
félög halda fundi og marka af-
stöðu sína til samningamálanna.
Alþýðublaðinu barst, í gær frétta
tilkynning frá A S í um þessi mál,
og fer hún hér á eftir:
Með ályktun þeirri um kjara-
mál, sem samþykkt var einróma
á 30. þingi samþandsins, sem lauk
'störfum 1. þ.m. var megináherzla
lögð á að verkalýðssamtökin ein
beittu afli sínu að því verkefni
að tryggja fullar vísi)öl ibætur á
kaup. Lík samþykkt va.' gerð á
þingi Verkamannasambands ís-
lands, sem haldið var að Alþýðu
sambandsþingi loknu. í ályktun
beggja þessara þinga voru verka
lýðsfélögin kvödd til íið undirbúa
verkfallsaðgerðir hinn 1 marz n.
k., ef nauðsyn reyndist 1 I þess að
ná' fram þessari meginkröfu sam
takanna.
Framhald á 5. síðu.
Embættisbústaðir
afnumdir í þé
Lagt hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp
um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins og er þar gert ráð
fyrir, að embættisbustaðir í þéttbýli, aðrir en em-
bættissetur forseta íslands, biskupsbúðstaður í
Reykjavík og búðstaðir íslenzkra sendiherra íslands
erlendis, verði seldir, þegar núverandi leigutakar
hverfa úr því eða láta af embætti. Er gert ráð fyrir
því, að eftirleiðis leggi ríkið embættismönnum ekki
til bústaði, nema þar sem staðhættir kref jast þess, og
afnumin verði lagaskylda ríkisins til að byggja yfir
ákveðna starfsmenn.
Um embættisbústaði gilda nú þau lög falli öll úr gildi við gild
lagaákvæði úr ýmsum áttum, sem istöku þessara nýju laga, en þau
hafa orðið til við mismunandi að teiga að koma til framkvæmda 1.
stæður, og er gert ráð fyrir að Framliald á 5. síðu.