Alþýðublaðið - 17.02.1968, Síða 2
Frétta-
skeyti
Rtómvopn í Khe Sanh?
,★ Fullbright, formaður ut-
tqríkismálanefndar Bandaríkja
þings, segir að túlka megi um
nwel'i Wheelers hershöfðingja
á þá leið að vel geti svo far-
íð aö atómvopn verði notuð til
að verja Khe Sanh.
Klögumálin ganga á víxl
★ Bæði Jórdan og ísraei
hafa kært hvort annað fyrir
öryggisráð'i S.Þ. Kennir hvor
hinum um að liafa byrjað,
V
Lækkun kosningaaldurs
★ Ríkisstjórn Finnlands
tlyggst lækka kosníngaaldur-
inn úr 21 niður í tuttugu ár.
SAS vill lækkun
★ SAS flugfélagið hyggst
lækka fargjöld sín til USA um
25% t'il mótvægis ferðamanna
i.katti Bandaríkjastjórnar, nái
lækunin fram að ganga í ÍATA
fundi.
Lætur af embætti
★ Mc Namara lætur af starfi
varnamálaráðherra 29. febrú-
ár og mun þá eftirmaður hans
Clifford taka við embætti,
Saiiimála
• ★ De Gaulle segír samband
Frakka og Þjóðverja hafa
Ótyrkzt undanfarið vegna valda
baráttu Sovétríkjanna og USA
feftir viðræðufund sinn við
Brant utanríkisráðhcrra Þýzka
iáhds.
Hergögn N. Víetnam
★ Að sögn Bandaríkjastjórn
ar mun Norður Víetnam hafa
7000 gagneldflaugar, og 28 her
fylki, sem hvert um sig er bú
ið sex eldflaugum.
Innganga í E6E
★ De GauIIe og Kíesinger,
kanzlari V.Þýzkalands hafa
iýst yfir vilja sínum að Bret.
ar og aðrar þjóðir öðlist inn
göngu í Efnahagsbandalag
Evrópu.
ÍJarizt í Húe
★ Harðir bardagar geisa
cnn í Húe og er vígstaðan ó-
breytt.
S-rfSur óhugsandi
★ Gromyko, utanríkisráð-
ráðherra Sovétrík|anna segir
fflðaviðræður í Víetnam ó-
húgsandi meðan Bandaríkja-
i tjórn haldi fast við núverandi
utefnu í Víetnamstyrjöldinni.
I'allnir í Húe.
★ Samkv. upplýsingum
Raígonstjórnar hafa 22504
Norður Víatnamar fallið i bar
dögunum um Húe.
UNDANFARNA daga hafa
átt sér stað umræður um livað
hugsanlegt væri að gera á kom-
andi síldarvertíð til þess að
tryggja sem mesta söltun síldar.
Ég held, að öllum sem fylgjast
með í síldveiðum okkar og ann-
arra þjóða, sé ljóst, að til ein-
hverra sérstakra ráðstafana
þurfi að grípa, ef við eigum að
halda áfram að salta síld á venju-
legum tíma í júlí og ágúst.
Því miður benda allar líkur til
þess, að síldin muni liggja í
meira en 3ja sólarhringa sigl-
ingu frá Austfjörðum. Veiðar
svo langt í burtu munu leiða
af sér stórkostlegt vandamál,
ekki aðeins varðandi veiðarnar
sjálfar heldur einnig varðe.ndi
nýtingu hráefnisins. Þetta er
svo viðamikið og stórt vandamál,
að það verður ekki leyst af nein-
um einum aðila sérstaklega. —
Þetta er flestum ljóst, en þó
ekki öllum sem skilja mættu.
Á Alþingi hafa átt sér stað
umræður um síldarútvegsnefnd
og breytingu á lögum nr. 62 frá
21. apríl 1962 um S.Ú.N. Þessi
nýju viðhorf í sildveiðum. og
verkun síldar spunnust inn í
umræður.
Tilefni frumvarpsins um
breytingu á S.Ú.N. var upphaf-
lega krafa frá síldarsaltendum
um endurskoðun laga um nefnd-
ina. Sjávarútvegsmálaráðherra
skipaði 2. ágúst sl. nefnd sjö
manna til þess eins og segir í
gögnum til sjávarútvegsnefndar
„að gera t'Éögur um framtíðar
skipulag verkaðrar síldar til út-
landa.”
í þessa nefnd voru valdir 2
þingmenn, þeir Jón Skaptason
og Sverrir Júlíusson. Hinir voru:
Erlendur Þorsteinsson, Sveinn
Benediktsson, Margeir Jónsson,
Jón L. Þórðarson, Jón Þ. Árna-
son og Tryggvi Helgason.
Árangur eða niðurstaða nefnd-
arinnar um þetta mikla vanda-
mál og framtíðarskipulag verk-
aðrar síldar til útlanda var þessi.
„Samþykkt er að setja í reglu-
gerð ákvæði um að a.m.k. einn
aðalfundur verði haldinn með
saltendum árlega í maí eða í
júní.
Samkomulag varð um að
leggja til að 1. gr. laganna nr.
62, 1962, orðist svo: Síldarútvegs-
nefnd skipuleggur og hefur eftir-
lit með verkum saltaðrar síld-
ar, svo og með útflutningi henn-
ar eins og nánar er kveðið á
um í lögum þessum.
Nefndin skal skipuð átta
mönnum til 3ja ára í senn sem
liér segir: (Talið upp hverjir til-
nefni mennina):
Séu atkvæði jöfn við at-
kvæðagreiðslu í nefndinni
ræður atkvæði formanns úrslit-
um.
Nefndin skal hafa skrifstoíur
í Reykjavík, Siglufirði og á
Austurlandi.
Nefndin ræður sér starfsíólk.
Ráðherra ákveður laun. ncfnd-
armanna og greiðast þau aí' tekj-
um nefndarinnar.”
Sjávarútvegsnefnd efri deild-
ar Alþingis flufti frumvarpið að
beiðni ráðherra, en nefndar-
menn tóku fram, að þeir hefðu
óbundnar hendur um stuöning
við það.
í umræðum á Alþingi um
frumvarpið fyrir skömmu mælti
ég m. a. eftirfarandi:
„Það er mikið vandaverk, sem
liggur fyrir að ná sem mestri
síld í söltun fyrir þjóðarbúið, og
það verður ekki leyst, nema
gera sér grein fyrir því, að það
þarf átak, og það þarf nýtt skipu-
lag og það þarf nýja hugsun frá
síldarútvegsneefnd í því ofni að
Eftir Jón Ármann
Héðinsson
ná því markmiði, sem nauðsyn-
legt er. Síldin mun örugglega
liggja, því miður, langt írá'
landi. Það eru allar líkur sem
benda til þess, og það verður að
koma fram einhver hreyfing og
einhver vilji, til þess að ná þeirri
síld í land eða salta hana um
borð í bátunum. Ennþá hefi ég
ekki séð eða heyrt frá síldar-
útvegsnefnd svo mikið sem að
hún rétti upp litla putta til þess
að nálgast þetta mark, sem er
lífsskilyrði fyrir gjaldeyristekjur
okkar, að gert sé verulegt átak
í áttina að tryggja það, að sölt-
un sé stöðug og eins mikil og
unnt er.”
Siðar segi ég: „Því að það er
vitað mál, aff nú sækja aðrar
þjóðir fram í því að salta á haf
inu og það er staðreynd, að
verksmiðjan, sem hefur verið
við ströndina eða verkunarstöð-
in hefur færzt bæði á freðfiskj
út á hafið og er að byrja að
gera það á saltsíld líka. — Og
fuli ástæða er til þess, aö síld-
arútvegsnefnd efni til ráðstefnu
með þeim aðilum, sem hagsmuna
hafa að gæta, til þess að mæta
• þeim vanda sem við blasir.”
Er ég tók til máls í seinna
sinn, sagði ég þetta m. a. (2
dögum seinna, en umræðum var
frestað í taili): „Ég vil hér í
nokkrum orðum í framhaldi af
því, sem sagt var við þessar
umræður í fyi-radag, bæta við
og undirstrika það, að ég lel, á-
samt mörgum fleirum, að nýtt
viðhorf blasi við, varðandi það
að tryggja söltun á síld hér á
landi eða um borð í skipum úti
á hafi.
Það hefur nú komið Lljós, að
það eru fleiri en ég um þessa
skoðun, og m. a. síldarútvegs-
nefnd hefur séð ástæðu til þess
að boða til fundar með ntkkr-
um aðilum varðandi það vanda-
mál, sem liggur fyrir og veiður
sá fundur haldinn síðdegis í
dag. Þó deila menn um það,
hvað hlutverk síldarútvegs-
nefndar er víðtækt og segja
flestir eða allir fulltrúar í
nefndinni, að verk S.Ú.N. sé ein-
Jón Armami Héðinsson
faldlega að selja síldina, hafa
síðan eftirlit að nokkru leyti
með söitun, og búið. Eins og seg-
ir í tillögunum: Síldarútvegs-
nefnd skipuleggur og hefur eft-
irlit með verkun saltaðrar síld-
ar, svo og með útflutningi h.enn-
Framhald á bls. 11.
Kvenfélagskonur
Kvenfélag Alþýðuflokksins I Reykj'avllí heldur fund þriöjudaginn 20
febrúar kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. 1
Jón Þorsteinsson alþingismaður talar um byggingaráætlunina í BrsiSholti,
Félagsmái.
STJÓRNIN. 5 ;
Skíðaferð — Helgarfer#
Skíðaferð verður farin á vegum FUJ laugardaginn 17 febrúar n.k. kl. 3,
Farið verður frá bílastæðinu á Arnarhóli.
Farið veröur í skíðaskálann við Skálafell.
Alla nánari upplýsingar eru gefnar í símum 16724 og 15020. Eienig ker
að tilkynna þátttöku í sömu símum.
Svar til Ingvars Gísl asonar
Bæði Alþýðúblaðið og Tíminn
birfu í gær bréf frá Ingvari
Gíslasyni til Benedikts Gröndal
varðandi flutning á tillögunni
um Vietnam. Bcncdikt sendi
um hæl Tímanum eftirfarandi
svarbréf:
Hr. ritstjóri.
Tíminn birtir í dag (16/2) á
myndarlegan hátt bréf til mín
frá Ingvari Gíslasyni. Treysti ég
því, að blaðiö geri éins vel við
stutt svarbréf.
Ingvari hefur sárnað sú full-
yrðing, að ekki hafi fengið að
reyna á, hvort stjómarflökkarn
ir vildu gerást meðflutnings-
menn að tillögu lians og fleiri
þingmanna úm ófiriðinn í Víet-
nam.
Ingvar sýndi mér tillögnna,
og ég lýsti henni á þingflokks-
fundi Alþýðuflokksins. Hún
fékk vinsamlegar undirtektir
eins og viðbrögð Emils Jóns-
sonar bera vitni. Þó töldum við
ekki rétt að gerast meðflutn-
ingsmenn að slíkri tillögu, nema
stjórnarflokkamir báðir gerðu
það, og eru það eðlileg vinnu-
brögð. Þegar ég náði tali af
Pétri Sigurðssyni nokkru síðar,
sagði Ihann, að ekki hefði unn-
izt tími til að fjalla um málið
í Sjálfstæðisflokknum, en Ingv-
ar væri þá þegár búinn að leggja
fram tillöguna.
Allt gerðist þetta á fáum dög-
úm. Gat ekkj skipt máli, þött
þeir yrðu nokkrum fleiri, enda
hefur ófriður staðið í Vietnam
í rúmlega tvo áratugi án þess
að Ingvar flytti um hann til-
lögu fyrr en nú.
Sannleikur málsins er, að
Ingvar beið ekki eftir svari
stjórnarflokkanna. Ef honuiix
var raunverulega áhugamál að
fá þá í lið með sér, skorti hanh
þolinmæði til að ná því marki.
Viðbrögð utanríkisráðherra
sanna, að Ingvar lagði rangt mat
á viðhorf Alþýðuflokksins að
minnsta kosti.
Annars er pex um flutning
tillögunnar lítilvægt miðað við
efni Ihennar og málinu sízt til
framdráttar.
Virðingarfyllst,
Benedlkt Gröiidal.
ZúAkufehfW 196.6,ef #|#UB|.AÐIÐ