Alþýðublaðið - 23.03.1968, Page 5

Alþýðublaðið - 23.03.1968, Page 5
fyrrv. alþingismaður í DAG á frú Kristín Sigurðar- dóttir, fyrrum alþingismaður, sjötugsafmæli. Hún er fædd 23. marz 1898. Foreldrar hennar voru Sigurður Þórólfsson, skólastjóri á Hvítárbakka í Borgarfirði og fyrri kona hans Anna Guðmundsdóltir. Þegar Kristín var aðeins þriggja ára gömul, dó móðir hennar, og ólst hún eftir það upp hjá móð urforeldrum sínum Kristínu Árnadóttur og Guðmundi Ól- afssyni skipstjóra, sem búsett voru í Reykjavík. Árin 1913— 1915 stundaði Kristín. nám í Hvítárbakkaskóla hjá fcður sínum. En 1919 giftist hún Karli Óskari Bjarnasyni, vara slökkviliðsstjóra. Þau stofnuðu heimili sitt hér í borginni og bjuggu hér ávallt síðan, þar til Karl andaðist fyrir nokkr um árum. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið, sem öll eru á lífi. Kristín Sigurðardóttir er ein af þeim sárafáu íslenzku konum, sem átt hafa sæti á Alþingi. Hún var landskjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins 1949 — 1953, en varaþingmað ur 1953 — 1956, en sat þó oft- ast á þingi einnig það kjör- tímabil. Hún ' var einnig vara þingmaður 1942 — 1946. Auk iþingmennskunnar hefur Krist ín gegnt mörgum trúnaðar- störfum fyrir flokk sinn. hef ur t.d. árum saman verið í miðstjórn hans og var all mörg ár formaður landssambands Sjiálfst.æðiskvenna. Til viðbót- ar við þetta hefur Kristín starf að miög mikið að öðrum fé- lagsmálum. Hún var um skeið í barnaverndarnefnd Reykja- víkur og í mæðrastyrksnefnd. Hún var í stjórn áfengisvarna nefndar kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði, ýmist formaður ■eða ritari. í framkvæmdanefnd Hallveigarstaða hefur hún ver ið síðan 1945 sem fulltrúj bæj árstjórnar Reykjavíkur og for maður nefndarinnar frá 1950 þar til nú fyrir 1—2 árum að hún hefur orðið að láta af störf um vegna veikinda. Um- ára bil var hún mikið starfandi í Húsmæðrafélagi Reykjavíkur og sömuleiðis í Kvenréttinda félagi íslands, þar sem hún hef ur verið í stjórn sl. 15-ár. Af öllu þessu er auðséð að Krist ín Sigu.rðardóttir er mjög fé- lagslynd kona og áhugamálin hafa verið margvísleg og bein línis óþrjótandi, og er það ómetanlegt á þeim merk” timamótum ævinnar, sem hún nú stendur á, að geta litið yf- ir slíkan starfsdag fullan af áhugaverðum viðfangsefnum. Ég hef allmörg undanfarin ár Kristín Sigurðardótt'ir unnið með Kristínu á sviði fé- lagsmála að ýmsum sameigin- legum áhugamálum og vil ég nota tækifærið til að þakka henni fyrir gott og skemmti legt samstarf. Svo að síðustu óska ég afmælisbarninu heili- brigði og hamingju á komandi árum. Guðný Ilelgadóttir., HVERS Ég ræddi einu sinni við kunn ingja minn, sem var ákaflega hneykslaður á því, að kristin kirkja skyldi hafa krossinn að tákni sínu: „Mér finilst bað óskap legt að hafa mynd af deyjandi manni blasandi við fólkinu uppi yfir altarinu í annarri hverri kirkju,” sagði hann. Nú er því ekki að leyna, að á vissum tímabilum kristnisög- unnar hefir dýrkun þjáningar- innar orðið sjúkleg. Og oft liefir mér orðið hugsað til þess t.d. við lestur Passiusálmanna, að það væri ekki notalegur lestur, þeg- ar séra Hailgrímur útmáiar suma þætti þeirra písla, er Jesú hlaut að líða. En ætlaðist höfundurinn til þess, að fólk læsi Pássíusálm ana, án þess að finna til úndan þeim? Ég held ekki. Ég álít, að hann hafi viljað, að fólk yrði fyrir vsipuðum áhrifum og þegar lesnar eru fréttir frá Víetnam. En með þessu er ekki nema hálf sagan sögð. Þeirri spurningu er ósvarað, hvers vegna kirkjan hef ir valið píslartæki eins og kross inn sem heilagt tákn. Þjáningar mannanna eru margs konar. Ég hevrði einu sinni get ið um konu, sem varð veik af undarlegum sjúkdómi. Hún hætti að geta fundið til. Þó að hún legði höndina á logandi heita VEGNA eidstóna eða skæri sig á hníf, svo að úr blæddi, var hún ekki vör við það. Þjáningin var með öðrum orðum hættumerki, sem enginn getur án verið. Varnaðar merki. Rautt ljós í umferðinni. Þjáningin getur eir.nig verið öhjákváemileg, vegna þess, að ná þarf sérstöku marki, sem ekki verður náð án hennar. Þegar læknir skoðar sjúkling, óg kemst að þeirri niðurstöðu, að hann þurfi sérstaka meðíerð til að ná bata, spyr hann sig um leið „Þolir hann aðgerðina?” — Sumir vitrir menn hafa hald ið þvi fram, að vissum þætti í þroska mannssálarinnar verði hcldur ekki náð án þjáningar. ,,Á sorgarhafsins botni sann- leiks perlan skín. Þann sjóinn máttu kafa, ef hún skal verða þín”. Þessu sama hefir kristin dómurinn einnig haldið fram, þó að hér hafi farið sem oft áður, að mannshugurinn liafi misskilið kjarr? málsins, og um e;tt skeið hafi meiniætalifnaður og óeðli legar sjálfspyndingar þótt verð launa verðar fyrir guðs augliti. Vér geíum litið á þjáninguna frá einni lilið enn. Ég veit ekki hvort þú, sem lest þessar línur, hefir nokkurn tíma komið inn fyrir fangelsisveggi. Segjum, að þú lftir inn í fangaldefa og hitt KROSS? ir þar fullorðinn mann, sem lok aður er inni vissan tíma, sam- kvæmt ákvörðun dómsvaldsins i landinu. Það er engum pynding um beitt við fangann, en það ætti ekki að þurfa að útlista það, hve einangrunar- eða ófrelsis- tilfinningin getur o--5ið sár og viðkvæm. En þessi þjánir.g hefir verið lögð á manninn samkvæmt dómi, vegna þess að hann hefir brotið gildandi lög þjóðfélags- ins. Þess vegna hafa hugsandi menn, sem brutu heilann um þján ingu mannkynsins oft og tíðum spurt eitthvað á þessa leið: Er þjáning mánnkynsins af svipuð- um rótum runnin? Stafar hún ekki af því að mannkynið hafi brotið lögmál guðs í tilverunni - með öðrum orðum syndgað, svo að ég tali mál guðfræðinnar. í þessu sambandi hafa orðið til hugtök eins og „reiði” guðs, hegn ing guðs o.s.frv. Loks geíur þjáningin stafað af vonzku einhvers annars. Hreint og beint mannvonzku. Ég tel mig ekki í þeim flokki, sem ávallt og allsstaðar segir meira af illu en góðu í tilverunni. En kynni mín af mannfólkinu og mannlegri (ilveru hefir þrátt fyrir það vak ið hjá mér óhugnað, begar ég hugsa um það, hve mikio er af grimmd hjá fólki, sem annars vill láta kalla sig sómafólk. Stund um virðist dálítil breyting á lífs aðstöðu geta breytt elskulegu fólki í ára, sem einskis svífast gagnvart öðrum. Það er þessi mannvonzka, sem hefir orðið til þess að vekja og styðja þá trú, að í tilverunni sáu öfl, sem kölluð eru satanisk, djöfulleg. Þegar þannig er litið á orsök þjáningar og böls, mun flestum finnast ömurlegast, að þjáning in er lögð á hina saklausu, - bá, sem ekkert hafa til unnið Styrj aldir nútímans eru skýrt dæmi um það, hvernig börn og brjóst mylkingar, eða fólk, sem ekkert þráði heitar en lifa Hfi sínu í friði við alla menn, er sært, kval ið og deytt. Og þetta hefir auð- vitað átt sér stað á öllum tím- um. í rauninni merkir þetta, að líf manns sé svo samshmgið og samtengt, að gott og iilt hljóti að verða sameiginlegt, að minnsta kosti að vissu marki. Þeir, sem eiga illt skilið og hinir saklausu séu á sama bát. Komi einhyeri- . um til hugar að sökkva rkipinu, farist einnig þeir sem reyndu að halda því á floti. En það er undarleg fjarstæða, að þetta, sem virðist vera svo vauglátt, að það veki hneykslun, felur það cinnig í sér, að mögulegt sé fyrir manninn að taka á sig annarra þjáningu. Björgunarskipíð er úti í sama illviðrinu og skútan, sem bjarga skal. En skilyrði þess, að unnt. sé að bjarga öðrum, er ein mitt það, að mögulegt sé að finna til með öðrum, þi 5st vegna annarra. Vér þekkjuin sjálfsagt marga, sem taka á sig þjáningar annarra vegna þess, að þeir finna til með öðrum. En sannleikur- inn er því miður sá, að þessi sam úð eða samvitund, er tak- mörkuð hjá oss öllum. En kross hinnar kristnu kirkju er merki hans, sem samkvæmí vitnisburði samtíðarvitranna fann til með öllum takmarkalaust. Kirkjan boðar trú á krossfestan frelsara. Það þýðir ekki aðeins að Jesú hafi þjáðst og liðið, - Frh. á 10. síðu. Eftir dr. Jakob Jónsson ■li»ii ——— lirinnggw 23. marz 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.