Alþýðublaðið - 29.03.1968, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 29.03.1968, Qupperneq 2
Ritstjórar: Krlstján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 14903. - Auglýsingasími: 14906. — Aðsctur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. - Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 120,00. — f lausasölu kr. 7,00 eintakið---Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf. Landsþing mennt askólanema íslenzkir menntaskólanemar héldu um síðustu helgi fyrsta landsþing sitt, er sótt var af 23 fulltrúum allra fjögurra mennta- skóla landsins. Gerði landsþingið margar ályktanir, sem ástæða er til, að verði gaumur gefinn. Virð ist jþað hafa tekizt vel og ekkert áhorfsmál, 'að hér muni um at- hyglisverða nýbreytni að ræða. Alþýðublaðið ræðir ekki þessu sinni ályktanir og tillögur lands þingsins um fræðslu- og mennta má|, en þær hljóta að teljast hóf- samar og rökstuddar. Hins veg- ar skal be!nt sérstaklega á þá til- lögu, að við skólastigin þurfi að verá starfandi félagsráðgjafi eða sálfræðingur, sem leitist við að leiðbeina og ráðleggja nemend- um í sambandi við nám og ýmis persónuleg vandamál, er upp kunna að koma. Þessa er tvímælalaust þörf. Vandi æskunnar er margvísleg- ur, eigi síður en fullorðna fólks- ins, og sú staðreynd kemur mjög við sögu námsins og mótar ung-. lingana á viðkvæmu og örlaga- ríku skeiði. Skólar framtíðarinn- ar eiga og að iverða lífrænar stofn anir, er ræki fleiri skyldur e.n hyggja að námi og prófum. Er fagnaðarefni, að æskan geri sér þetta ljóst og muni einstakling- inn um leið og hún leggur á ráo og ber fram óskir um farsæld heildarinnar. Þá gerði landsþingið ennfrem- ur að tillögu sinni, að þjóðfélags- leg fráeðsla verði stórum aukin á framhaldsskólastigum. Skiptir vissulega miklu máli, að þeim viðhorfum sé dyggi'lega sinnt og þannig reynt að kynna og hag- nýta hvers konar nýjungar í at- vinnulífi og þjóðarbúskap eins og á sviði fræðslu og menntunar í skólum landsins. Að náminu loknu tekur við starf og önn í völundarhúsi samfélagsins. Þá skiptir miklu, að unga fólkið rati um það og kunni að velja sér þar staði. Sú fræðsla þarf og á að vera eitt af verkefnum skól- anna. Hitt er undraverð hófsemi, að landsþing menntaskólanemanna skuli mæla gegn frekari lækkun kosningaaldursins og kveða í því skyni harla fast að orði. Væri for vitnilegt að rökræða þá afstöðu nánar og leita álits fleiri aðila. Og lækkun kosningaaldursins er ekki aðeins mál unga fólksins, bó að því sé réttarbótin ætluð. Hún kemur allri þióðinni við og þró- un íslenzkra. stjórnmála. Nokkur orð um Lönd og Leiðir - páskaferðir Þegar ákveðið var að hleypa af stokkunum vikulegum þætti um ferðamál var hugmyndin sú að fjalla að mestu um þær ferðir er innlendú ferðaskrif- stofurnar hefðu að bjóða al- menningi. Þar sem þessi þátt- ur á að vera persónulegur, get ég ekki stillt mig um að fjalla nokkuð um það sem er efst á baugi í ferðamálum nú, þ. e. ferðaskrifstofuna Lönd og Leið ir og hiná fyrirvaralausu lokun fyrirtækisins. Enginn efar jð samgöngumálaráðuneytið sé í þessu máli í sinum fulla rétti, þótt alla furði mjög á hinni stuttorðu og skýringarlausu til- kynningu frá ráðuneytinu. Blöð in slá fréttinni upp eins og vonlegt er, og ekkert við þau skrif að athuga nema hvað Þjóðviljinn ber á fyrirtækið sviksemi í sambandi við þjón ustu, og segir það álit sérfróðra manna að t.d. þær Spánarferð ir, sem L & L hafi auglýst íú nýlega á ótrúlega lágu verði, sé ekki mögulegt að fram- kvæma, „nema fyrirtækið gett 2-3 þúsund krónur með hverj um þátttakenda". Ómögulegt er að geta sér til hver hinn sér- fróði heimildarmaður Þjóðvilj- ans er, en trúlega eru Spánar ferðir L & L settar í samband við Mallorekaferðir Sunnu, þar sem aðrar ferðaskrifstofur hafa ekki boðið ferðalög með leiguflugvélum í sumar. Sann- leikurinn er sá, að þær ferðir, sem L & L bauð til Spánar, og vöktu mikla athygli, eru rétt aðeins ódýrari en þær ferðir sem ferðaskrifstofaa Hunna bauð fyrr á árinu, þann ig að samkvæmt vísdómi Þjóð viljans má gera ráð fyrir fleiri leyfissviptingum innan tíðar. Eflaust hefði L & L getað gert margt betur í þjónustu sinni við íslenzka ferðamenn, en allt um það hafa hinir ungu eigendur fyrirtækisins sýnt mikið Sræði og dugnað og það er með öllu ómaklegt að bera; þeim á brýn öllu meiri Evikspmi eða trassaskap en að'r um íslenzkum ferðaskrifstofu- mönnum. PÁSKAFERÐIR INNANLANDS Að venju mun Ferðafélag ls- lands fara í páskaferð og nú er ferðinni heitið éins og svo oft áður í Þórsmörk. Lagt verður af stað í fyrri ferðina kl. 8 á fimmtudagsmorgun og í þá seinni kl. 2 á laugardag, og komið aftur til borgarinnar á mánudagskvöld. Vegna á stór- aukins rekstrarkostnaðar á fjallabílum hafa ferðirnar hækkað nokkuð, 5 daga ferð in kostar 1350 fyrir félags- menn en 1400 fyrir aðra, en 3ja daga ferðin 950 og 1000 krón- ur. Ef veður og færð leyfir er ráðgert að aka að Hagavatni í lengri ferðinni. Töluvert hefur verið spurt um þessar ferðir. N.k. sunnu- •dag var ráðgerð ferð á Kjöl, en vegna veðurs hefur verið ákveðið að hætta við þá ferð. Ferðaskrifstofa Úlfars Jakobs sonar efnir einnig til ferðar í Öræfasveit um páskana. Gist verður á Kirkjubæjarklaustri, Hofi í Öræfum, Höfn í Horna firði, aftur að Hofi og síðustu nóttina að Kirkjubæjarklaustri. Þessar ferðir hafa verið ókfa- lega vinsælar, ferðafólkið má búast við að lenda í hrakning um og vondu veðri en ef heppn in er með (þá getur þetta orðið dýrleg ferð. Verðið er kr. 1800 fyrir 5 daga og er gisting í svefnpokaplássi innifalin. Tölu vert hefur verið spurt um iþessa ferð, en varla byriað að bóka, enda ferðirnar lítið sem ekkert verið auglýstar. Guðmundur Jónasson mun fara i páskaferð um Öræfasveitina á sama hátt og Úlfar Jakobsen. Nú er leiðin greiðfær ið Höfn í Hornafirði með tilkomu hin'nar nýju brúar, þ.e. ef Skeiðarársandur er fær, en það hefur hann yfirleitt verið um páska. Verðið er það sama og hjá Úlfari, 1800 krónur. Þegar hafa borizt nokkrar pantanir. Farfuglar hafa hugsað sér að taka sér flugfar norður á Akur eyri um páskana, en þar verður haldið Skíðamót íslands 1968. Þeir gera ráð. fyrir að hópurinn 'verði um 20 manns, ' en eiga erfitt með að gefá upp verð, þar sem það fer eftir fjölda og samningum við FÍ. Farfuglar munu gista á farfuglaheimilinu á Akureyri og fylgjast með landsmótinu og iðka skíðaíþrót.t ina. S.J. 2 29. marz 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ VIÐ MÓT— MÆLUM ÞÆR UPPLÝSINGAR hafa verið veittar að þar sem kolakraninn stóð við höfnina eigi að físa tveggja hæða vöruskáli og bif- reiðastæði uppi á þaki hans. Satt er það að ekki veitir af að skaffa bifreiðastæði við höfnina og í miðbænum yfirleitt, en það þarf pláss fyrir fleira en bíla. Bílair eru orðn ir svó gífurlegur hluti af lífi manna að þeir gleyma stundum manninum sjálfum þeirra vegna. Nú skal ég ekki amast við bif- reiðastæði uppi á þessu húsi. En sannfærður er ég um það að það verður vinsælt af mönnum sem hafa gaman' af að fá sér göngu- ferðir um hafnarsvæðið að rölta upp á þetta hús til þess að líta í kringum sig. Það er oft fallegt við höfnina að sumrinu ekki sízt: sjórinn sléttur, Esjan hinum meg in við Sundin í óhagganlegri ró, og rammur seltuþefur í vitum manns. Af hverju ekki að koma fyrir ú þessari byggingu eins konar út- sýnissvæði? Og má ekki hafa þar dálítið veitingahús svo menn geti fengið sér kvöldkaffi þar þegar fagurt er til vesturs að líta? Þurf um við ekki líka að muna svolít- ið eftir sjálfu mannfólkinu? Þessari tillögu skal hér með komið á framfæri. Það er nóg af danshúsum í Reykjavík þar sem framleiddur er óskaplegur hávaði og mjkið af ó- daun hvers konar. Þar er líka töluvert af bifréiðastæðum, við gleymum ekki þörfum bílanna, það er alveg frá. En það er lítið um þægilega veitingastaði þar sem segja má að fagurt sé útsýn- ið. Ég vil ekki vanþakka Stjörnu salinn á Hótel Sögu. Hann er vel settur. En við settum hitaveitu- geimana á Öskjuhlíðina, Faxa. verksmiðju (sællar minningar) og fleira af þeirrj sortinni út í Ör- firisey, Olíutanka á Klöpp, um eitt skeið voru öskuliaugar vest ur á Granda, og nú um sinn verð ur Elliða'árvogurinn sýnilega eins og kolsvart moldarflag, iþannig að það er því líkast sem við hyggj- umst útsvína eða afmá hvern ein asta fallegan stað í borginni eða setia þangað eitthvað sem er gagnlegt. Þess vegna held ég að það mætti að ósekju láta þetta nýja vöruhús við höfnina vera þannig að fólk fái að koma þangað til þess að horfa á sjóinn og fjöll- in og sólarlagið, því þó að það sé ekkert gagn að því að horfa á sólarlagið, skulum við ekki gleyma því að munurinn á gagni og gagnsleysi er ekki alltaf ó- skaplega mikill. EXO.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.