Alþýðublaðið - 29.03.1968, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 29.03.1968, Blaðsíða 7
kiiísli nýliöi í ís- lenzka landsliðinu Tekst íslendingum að sigra Dani í haridbolta 6.-7. apríl? EINS OG flestum íþróttaunn- endum er kunnugt leika Danir og íslendingar tvo landsleiki í handknattleik dagana 6. og 7. apríl n.k. Fyrri daginn hefst leik urinn kl. 3, en þann síðari kl. 4. Lúðrasveit Reykjavíkur leik ur báða dagana í klukkusíund áð ur en leikirnir hefjast. Á fundi með fréttamönnum í gær skýrði Rúnar Bjarnason, varaformaður HSÍ frá ýmsu varðandi heimsókn danska lands liðsins. Fyrst skal segja frá ísl. landsliðinu, sem leikur fyrri leik inn, liðið er skipað sem hér seg ir: markverðir: Þorsteinh Björns- son Fram og Logi Kristjánsson Haukum. Aðrir leikmenn: Ingólf ur Óskarsson, Fram, Guðjón Jóns son, Fram, Sigurður Einarsson, Fram, Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram, Geir Hallsteinsson, F H,- Örn Hallsteinsson, F H, Þórður Sigurðsson, Haukum, Ágúst Ög- mundsson, Val og Éinar Magn- ússon, Víking. Þetta lið er nokkurn veginn eins og við var búizt, en ekki hefði komið á óvart, þó að t.d. Gísli Blöndal, KR hefði verið val inn, en hann var einn bezti leik maður vallarins í pressuleiknum, í fyrrakvöld. Gísli er að vísu ó- vanur „stórleikjum“, en ekki höfum við orðið þess varir, að stórleikjamenn hafi sýnt sérstaka snilld í undanförnum landsleikj- um. En nóg um það og vonandi gengur vel í leiknum. Það er líka möguleiki á' að breyta lið- inu eitthvað í síðari leiknum. ★ Gunnlaugur 41 landsleik. Gunnlaugur hefur leikið flesta landsleiki ísl. liðsmann- anna eða 41, Ingólfur, Guðjón Þingeysk stúlka setti íslandsmet Ung þingeysk stúlka, Kristín Þorbergsdóttir setti nýtt íslands met í langstökki án átrennu á' inn anhúsmóti H S Þ í fyrrakvöld, stökk 2,67 m. Gamla ísiandsmet- ið, sem Björk Ingimundardóttir, UMSB setti á íslandsmótinu um síðustu helgi, var 2,59 m. Auk metstökksins, stökk Kristín tví- vegis 2,59 m. Kristín Þorbergs- dóttir er nýliði í frjálsum íþrótt- um og mjög efnileg, aðeins 15 ára og Sigurður 22 hver, Þorsteinn Björnsson 23, Ágúst Ögmunds- son, Val 21, Örn Hallsteinsson 19, Geir Hallsteinsson 13, Einar Magnússon 6, Logi Kristjánsson 5 og Þórður Sigurðsson nýliði. Dómari verður Ragnar Petter sen, Noregi, en markdómarar Magnús V. Pétursson og Valur Benediktsson. ★ Danska Iandsliðið. Danska landsliðið skipa eftir- taldir leikmenn: markverðir: Bent Mortensen IIG 68 landsleik ir, Hans Fredriksen Slagelse (7). Aðrir leikmenn: Jörgen Vodsgaard KFUM Aarhus (49), Carsten Sörensen AGF Aarhus (1), Börge Thomsen HG (3), Per Svendsen Helsingör (44), Carsten Lund HG (30), Verner Gaard HG (19), Hans Jörgen Graversen (12), Nils Aage Frand sen Fredrekstad (5), Ivan Krist iansen KFUM Aarhus (54), Mog ens Cramer (93), og Gert Ander sen(55). Aðalfararstjóri verður Svend Knudsen, en aðrir í far arstjórn eru Frode Henriksen, Per Theilman, Bent Jacobsen, skiptistjóri og Hans Jensen þjálfari. Danir léku til úrslita í síðustu 1 heimsmeistarakeppni og íöpuðu fýrir Tékkum rneð 11:14 8:8 í leikhléi. Að lokinni heimsmeist arakeppni í. fyrravetur hafa Dan ir leikið 10 landsleiki og sigrað m. a. Tékka 16:14, Svía 19:14 og A.Þjóðverja 21:19. * Aðgöngumiðar. Sala aðgöngumiða hefst 1. apríl í Bókaverzlun Lárusar Blöndal í Vesturveri og við Skólavörðustíg. Verð miða er 150 kr. fyrir fullorðna og 50 kr. Frh. á 10. síðu. LIÐ ÍÞRÓTTAFRÉITAMANNA BREYTTI 10:19 1 23:23! gömul. Viðureign „landsliðsins" og úr vals íþróttafréttamanna í hand- knattleik í fyrrakvöld var á margan hátt býsna lærdómsrík. Landsliðið hóf leikinn af miklu fjöri og virtist hafa yfirburði, enda kom hvert markið af öðru, um miðjan hálfleikinn v'ar stað an 8:1 landliðsmönnum í vil. En það sem eftir var fram að leik hléi hélzt munurinn svipaður eða sex mörk 14:8. Bilið jókst enn í upphafi síð ari hálfleiks og komst mést í níu mörk eða 19:10, en svo ekkj sög una meir. Pressuliðið tók að leika af meiri skynsemi, skaut ekki nema í góðu færi og vörnin þéttist. Þá var eins og landslið- ið missti kjarkinn, bilið minnk- aði jafnt og þétt og þegar 40 sek. voru til leiksloka höfðu bæði liðin skorað 23 mörk og þannig lauk þessum leik. Vissulega er ánægjulegt, að ,,breiddin“ skuli vera eins mik il og raun ber vitni, en alvar- legt er það, að landslið okkar, sem leika á við Dani eftir rúma viku, skuli ekki vera harðskeytt ara. Leikmenn mega aldrei slaka á, leikur er ekki unninn fyrr en honum er lokið, hollt er að minn ast þess. í pressuliðinu léku ýmsir vel„ sérstaklega ber að geta Gísla Blöndal. Sigurður Ein arsson og Stefán Sandholt voru einnig sterkir. Dæmt var eftir tveggja dómara kerfinu, Óli Olsen og Óskar Ein- arsson dæmdu og stóðu sig sæmi lega. Gislí Blöndal, skoraði 9 mörk FÉLAG ÍSLENZKRA MYNDLISTARMANNA II. Norrænt æskulýðsbiennale verður haldið í Helsingfors í október 1968. Hvert Norður- landa hefur heimild til að senda verk fimm listamanna, eigi fleiri en fimm eftir hvern. Þátttakendur skulu ekki eldri en þrítugir eða ekki orðnir 31 árs í september 1968. Félagið hefur skipað í dóm- nefnd þá: Braga Ásseirsson, Einar Hákonarson og Jóhann Eyfells. Efni í sýningarskrá þarf að vera komið til Helsingfors fyrir 15. maí. Tekið verður á móti myndum, málverkum, höggmyndum eða grafík í Listamannaskálanum þriðjudaginn 16. apríl n.k. kl. 4-7. Ekkert má senda undir gleri. STJÓRNIN. Skip óskast til leigu í nokkrar vikur við rækjuleit. Hæfi- leg stærð 50-100 smálestir. Þarf að geta geng ið hægast 1,5 sjómílur á klst. HAFRANSÓKNASTOFNUNIN sími 20240. AÐALFUNDUR Verzlunarbanka íslands hf. verður haldinn í veitingahús- inu Sigtúni, laugardaginn 6. apríl 1968 og -hefst kl. 14,30. D A G S K R Á : 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar bankans fyrir sið- astliðið reikningsár. 3. Lögð fram tillaga um kvittun til bankastjóra og banka- ráðs fyrir reikningsskil. 4. Kosnlng bankaráðs. 5. Kosning endurskoðenda. \ 6. Tekin ákvörðun um þóknun til bankaráðs og endurskoð- enda fyrir næsta kjörtímabil. 7. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða af- hentir í afgreiðslu bankans Bankastræti 5, Reykjavík mið vikudaginn 3. apríl, fimmtudaginn 4. apríl og föstudag- iiui 5. april kl. 9,30-12,30 og 14.00-16.00. Reykjavík, 28. marz 1968. í bankaráði Verzlunarbanka íslands hf. Egill Guttormsson, Þ. Guðmundsson, Magnús J. Brynjólfsson. SKOLPHREINSUN úti og inni Sótthreinsum að verki loknu. Vakt allan sólarhringinn. Niðursetning á brunnum og smáviðgerðir. Góð tæki og þjónusta. RÖRVERK sími 81617. 29. marz 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.