Alþýðublaðið - 05.04.1968, Síða 3
Fieiri spa
Dönum sigri
ALÞÝÐUBLAÐIÐ BIÐUR FÓLK Á GÖTUNNI AÐ
SPÁ UM ÚRSLIT — PÁSKAEGG í VERÐLAUN!
A laugardag og á sunnudag
leika landsleiki við Dani í hand
knattleik, og fara leikirnir fram
í Laugardalshöllinni. Islending
um hefur ávallt verið mikið
kappsmál að sigra Dani í hand
knattleik, sem öðrum íbrótta-
greinum, en öllum landsleikj-
um í handknattleik vlð Dani hef
ur lyktað með sigri beirra.
Talsvcrð eftirvænting ríkir nú
vegna leikjanna um helgina, og
í gær brúgðum við okkur n'ið-
ur í miðbæ og báðum vegfar-
endur um að spá úrslitum. Fær
sá verðlaun sem næst kemst
réttum úrslitum.
Þorsteinn Pálsson, verzlunar-
sk.nemi gat sér til um að fyrri
leikurinn endali 19-15 Dönum
í vil, en síðari leikinn ynnu ís-
lendingar 22-{U. Hann kvaðst
verða viðstaddur leikina.
Þórður Guðmundsson, stræt-
isvagnastj^ri spáði að Danir
ynnu fyrri leikinn 24-22. en
seinni leikinn 28-22. Þórður
kvaðst ekki horfa mikið á hand
knattleik, og væri knattspyrnan
stærra áhugamál.
Guðrún Sigurste'insdóttir
hugsaði sig um nokkra stund,
en sagði svo: „Fyrri leikinn
vinna íslendingar 12-10, en síð
ari leikinn vinna Danir 25-15.“
Aðspurð kvaðst hún ekki vera
viss hvort hún kæmi og horfði
á leikina, hins vegar gæti það
vísast orðið.
Gísli Ferdinandsson, skósmið
ur, gizkaði á að fyrri leiknum
lyktaði 26-25, Dönum i vil, en
seinni leikinn ynnu íslendingar
28-25.
Baldur Bjarnason, bifreiða-
stj. var bjartsýnn. Hann spáði
íslenzkum sigri í báðum leikj
unum, þeim fyrri 23-20. en
þeim síðari 22-21. Baldur
kvaðst hafa mikinn áhuga á
handknattlcik og yrði hann ör-
ugglega viðstaddur leikina.
Guðbjörn Björnsson og
Tryggv'i ívarsson, menntaskóla-
nemar kváðust gera „antisport
istar“. Hins vegar féllust þeir
á að spá fyrir um úrslitin og
töldu að báðum leikjunum lykt
aði 23-19, Dönum í hag.
Ólafur A. Jónsson, tollvörð-
ur, sagði, að ísiendingar myndu
skjóta Dönum ref fyrir rass í
fyrri leiknum og vinna 20-17, en
Danir borga fyrir sig í seinni
leiknum með 23-18.
Árn'i Magníisson, kennari,
spáði dönskum sigri í báðum
leikjunum, 23-15 og 20-16. Hann
kvaðst verða viðstaddur fyrri
leikinn, a. m. k.
Steinar Ilauksson taldi Dani
vinna báða leikina, fyrri leik-
inn 10-12, og þann síðari 10-16.
Sagðist Steivar ætla að sjá
báða landsleikina.
Guðbjartur Guðmundsson,
bifr.stj. taldi leikina verða nokk 1
uð jafna, en Dani samt bpra
sigur úr bítum í þeim báðum.
Fyrri leikinn taldi hann enda
14-12, síðari leikinn 15-14.
Hann sagði það óvíst hvort
hann myndi horfa á leikina.
♦------------------.—
Durum og
dyngjum
ÞÓRHALLUR Vilmundarson
prófessor flytur þriðja og síð-
asta fyrirlestur sinn að þessu
' sinni um íslenzk örnefni og r.átt-
úrunafnakenninguna í Háskóla-
bíói sunnudaginn 7. aprtl kl.
13,30.
Fyrirlesturinn nefnist: Durum
og dyngjum.
Öllum er heimill aðgangur.
í Bankastrseti
Til a5 bæía þjónustuna við viðskiptamenn í mið- og vesturbæ var opnuð umboðs-
skrifstofa í Samvinnubanka íslands, Bankastræti 7, sem anncst um hvers konar
nýjar tryggingar, nema bifreiðatryggingar. Það er sérlega hentugt fyrir viðskipfa-
menn á þessu svæði að snúa sér til hennar með hækkanir og breytingar á trygg-
ingum sínum svo og iðgjaídagreiðslur.
VIÐ VILJUM HVETJA VIÐSKIPTAMENN TIL AÐ NOTA SÉR ÞESSA ÞJÓNUSTU.
SAMVINNUTRYGGINGAR
LÍFITOGGIMSAFÉIAGIÐ AINDVAKA
BANKASTRÆTI 7, SlMAR 20700 OG 38500
5. apríl 1968
ALÞYÐUBLAÐID 3