Alþýðublaðið - 05.04.1968, Qupperneq 16
*
Nú eru þeir að spegúlera í því,
hvar hraðbrautin norður œtti
að liggja. Ég held nú að það
skipt'i ekki miklu máli. Hún
kemur áreiðanlega til með að
liggja norður og niður eins og
allar brautir nú, eftlr frostiu
og úrkomuna.,,
Sigrún Harðardóttir er nýút-
sprungln söngkona . ..
vísir
Skyldi hún hafa sprungið á
háa C-inu þessi söngkona ..,
GlÆS/iEGT UW41
OEBÐ V/Ð 4UPA M&/
Nýting hafíss
Þótt ísinn sé kaldur, getur hann velgt mönnum undir ugg
um eins og sagt er, þótt hver heilbrigður og skynsamur mað-
ur viti ósköp vel að menn hafa auðvitað ekki ugga. Hing-
að streymir hann orðið árlega, eins og íslendingar til
Mallorca, og fyllir flóa og firði og hindra að eðlilegar
skipasamgöngur geti átt sér stað. Stundum flytur hann einnig
með sér ísbirni.
Ég hef oft velt því fyrir mér hvort ekki mætti hagnýta
ísinn á einhvern hátt og gera úr honum pening, en pening-
urinn er jú það sem allt veltur á nú á tímum.
Eitt sinn, er ég var staddur í Lundúnum, höfuðborg Breta-
veldis, sá ég dós uppi í hyllu í verzlun einni, sem seldi minja-
gripi. Utan á dósinni stóð að hún innihéldi hina frægu Lundún
aþoku og væri tilvalin, bæði Eyrir Breta sem hyggðust dveli-
ast lengi á erlendri grund og einnig fyrir ferðamenn til að
hafa heim með sér sem minjagrip um dvölina í Bretlandi.
Á dósinni voru prentaðar leiðbeiningar um það hvernig inni
haldið skyldi nýtt, og minnir mig að þar stæði: „Til að not-
færa sér innihaldið ber að nota dósahníf. Beztur árangur fæst
þó, ef dósin er alls ekki opnuð“?
Hvernig væri að fara að dæmi Bretanna og hefja sölu á haf-
ís. Væri hægt að hafa hann til sölu hér í frystihúsunum og feng
ist þá máske loksins r'ekstrargrundvöllur undir þau. Nú, við eig
um til frystiskip svo þar eru fyrir hendi möguleikarnir á út->
flutningi hans.
íslendingar, sem eru á leiðinni til útlanda gætu þá haft
svo sem eins og eina dós af hafís í pússi sínu til að missa
ekki allan kontakt við sitt ástkæra ísland. Það mætti prenta á
dósina að beztur árangur fengist ef dósin væri alls ekki
opnuð, svo það skipti þá ekki miklu máli þótt ísinn bráðnaði
í töskunum.
Þarna er vissulega opin leið til mikillar fjáröflunar. Ei' ég
raunar steinhissa á því, að enginn bisnessmaðurinn skuli
hafa uppgötvað þessa leið. Tel ég að á stundinni bæri
ríkisstjórninni að standa fyrir þjóðnýtingu á hafísnum, setja
hann í dósir til sölu og moka inn gjaldeyri.
Hvað viðvíkur ísbjörnunum, þá gætu þeir orðið vísir að
dýragarði og fer vel á því að sonur landsins foma fjanda
verði fyrsta dýrið, sem dvelst innan rimla fyrsta íslenzka dýra
garðsins. HÁKARL.
Svaka varð mar spældur þegar
mar frétti að kjennidí væri bú
inn aö klippa sig. Hann var
næstuin orðlnn eins og við,
gæjarnir í bandinu ...
eoKING
EDWARD
Amerlca’• Largesi Selllng Cigar