Alþýðublaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 6
Skila gömlum sauma- vélum og fá nýjar UNDANFARIÐ hefur verið mikil ö,s í kjallaranum hjá Silla & Valda í Austurstræti, því að þar hefur verið hægt að skila gömlum Elna-saumavélum og fá Bifreiöir fyrir 355 milljónir nýjar í staðinn án nokkurrar út borgunar, en með afborgunar- skilmálum. Hafa gömlu vél- arnar verið tejcnar og hefur helmingur upprunalegs verðs þeirra gengið upp í þær nýju. Eru þetta nýmæl^ hér á landi í saumavélasölu en algengt er- lendis og gengu saumavéla- birgðir Silla og Valda upp á skömmum tíma en næsta send ing er væntanleg innan skamms og verður sami háttur hafður á. Myndin var tekin í síðustu viku er frú Aase Manerud frá Noregj sýndi áhugasömum kon um þær listir sem nýja Elna saumavélin getur leikið. Ríkið á 534 bíla íslenzka ríkið á 534 bif- reiðar og 4 bifhjól að því er Magnús Jónsson fjármála ráðherra upplýsti á Alþingi nýlega. Þar að auki hljóta 424 starfsmenn ríkisins ým- ist bílastyrki eða greiðslur fyrir akstur á eigin bílum, og kostar. það 12-13 milljónir króna. Magnús veitti þessar upp- lýsingar í svari við fyrir- spurn frá framsóknarmönn- um um bílaeign og bílakostn að ríkisins. Af eigin bílum ríkisins eru 162 vörubílar eða dráttarbílar, 75 sendi- ferðabílar, 108 jeppar og aðr ir einkabílar. Heildarverð- mætj bíla ríkisins hvað end ursöluverð snertir er talið 130-150 milljónir króna. Af þessum bílum eru 79 svo- kallaðir forstjórabilar, sem ráðamenn fyrirtækja ríkis- ins hafa. Magnús benti á, að hér værj um vandasamt mál að ræða, þar sem það væri tek ið sem kjaramál. Hefði vérið sett sérstök nefnd í málið og ýmiss konar aðhaldi veriö beitt, en enn værj ekki séð fyrir endann á því. Islenzk tónmiðstöð Á almennum fundi tón- skálda, sem lialdinn var í Reykjavík 21. febrúar sl., var formlega gengiff frá stofnun íslenzkrar tónmiffstöffvar. Hlut verk miffstöðvarinnar er út- breiffsla og kynning íslenzkra tónverka. Nauðsyn slíkrar miðstöðvar var orðin mjög tilfinnanleg, þar sem útgáfa íslenzkrar tón ---------------------------, Tvær nýjar bækur trá Helgafelli TVÆR nýjar bækur komu út hjá Helgafelli í gær, mán- aðarbækur forlagsins í marz og apríl, greinasafn eftir Sig urð A. Magnússon og ljóða- bók eftir Halldóru B- Björns son. — Sáð í vindinn eftir Sig urð A. Magnússon er safn greina og fyrirlestra, þar á Framhald á bls. 13, listar er ekki fyrir hendi svo heitið geti, en áhugi fyrir ís- lenzkri tónlist fer vaxandi er- lendis, jafnframt og æ fjöl- breyttara tónlistarlíf þróast hér heima- Skortur á nothæf um nótum, prentuðum eða fjöl rituðum er slíkur, að oft verða íslenzk tónskáld að sitja af sér þátttöku í opinberum hljómleikum, enda kostnaður við gerð t.d. hljómsveitar- radda af meðalstórum tónverk um meiri, en að einstaklingur geti staðið undir því svo að nokkru nemi- Er hlutverk tón verkamiðstöðvarinnar því m.a. að sjá um og kosta eftirgerð og dreifingu íslenzkra tón- verka, með endurritun þeirra, ljósmyndun, fjölritun, prent- un og öðrum slíkum aðferð- um. Fyrst í stað verður lögð á- herzla á að sinna þörfum inn lendra aðila, hljómsveita, kóra, lúðrasveita og annarra sem áhuga hafá á að flvtja íslenzka tónlist að ógleymd- um skólum landsins. Á vegum miðstöðvarinnar er fyrrihuguð innan skamms, útgáfa almenns upplýsingarits um íslenzka tónlist og tónlist arlíf. Allir þeir aðilar, einstakting ar, félög og stofnanir, sem á- huga hafa á íslenzkri tónlist, geta í framtíðinni leitað til ís- lenzkrar Tónverkamiðstöðvar, Hverfisgötu 39, um upplýsing ar og fyrirgreiðslu um nótna- kaup og leígu. Stjórn miðstöðvarinnar skipa nú: Þorkell Sigurbjörnsson, formaður, Fjölnir Stefánsson, gjaldkeri, Jón G. Ásgeirsson, ritari, Karl O- Runólfsson og Leifur Þórarinsson. Varastjórn: Sig. Þórðarson, Jón Nordal, Páll P- Pálsson, Magnús Bl. Jóhannsson og Atli Heimir Sveinsson. Leiðrétting í viðtali við Einar G. Svein björnsson fiðluleikara í sunnu dagsblaðinu kom fram að Ein Frú Helga Weisshappel Fostér sýnir 30 myndir Helga Weisshappel Foster opnar málverkasýningu fimmtu daginn 1. apríl að Laufásvegi 54. Sýningin verður /opin dag- lega frá kl. 3-10 e. h. til sunnu dagsins 21. apríl. Á sýningunni eru 30 myndir. ar væri eini íslenzki tónlistar maðurinn sem starfaði í Malmö. Átti þar að standa að Einar væri eini íslendingur- inn í Malmö-sinfóníuhljóm- sveitinni, en í Malmö er annar íslenzkur hljómlistarmaður starfandi, Hjörleifur Björnsson kqntrabassaleikari. Biður blað .ið afsökunar á þessum mis- tökum. í NÝÚTKOMNU' hefti Frjálsr- ar verzlunar er það upplýst, að á árinu 1967 hafi íslendingar flutt inn bifreiðir fyrir 355 milljónir króna. Endanlegar töl- ur um bifreiðafjölgun lands- manna munu að visu ekki liggja fyrir e^nþá, en upplýst er að árið ’67 voru fluttar inn samkvæmt brá'ðabirgðaáthugun 4465 bifreiðir, þar innifaldir notaðir bílar og einnig bílar til sérþarfa svo sem slökkviliðs- bifreiðir og sjúkrabifreiðir. SIF-verðmætj þessara 4465 bíla reyndist 355 millj. króna. Flest- ar voru bifreiðarnar til fólks- flutninga eða 3418. Helzta við- skiptalandið var Vestur-Þýzka- land. réttir 9. marz síðastliðinn tók Félag iðnaðarmanna A Suður nesjum í notkun nýtt fé- lagsheimili. Er húsnæðið á þriðju hæð að Tjarnargötu 3 í Keflavík. Við opnun bár ust heimilinu margar góðar gjafir og heillaóskir. Þá var þar og opnuð sýning á lista verkum iðnaðarmanna. Að undanförnu hefur verið unnið að byggingu frystihúss í Grenivík, og er því senn í stuttu máli að fullu lokið. Frá Grenivík hafa lengstum verið gerðir út tveir 14 tonna bátar, en nýlega bættist 35 tonna bát ur í flotann. HIÐ margrædda hring- skyrfi, sem gert hefur vart við sig í bústofni Eyfirð- inga er nú mjög á undan- haldi, eftir því sem norð- lenzkir dýralæknar hafa upp lýst. Er þessi búfjársjúkdóm ur hinn versti vágestur og hefur gert mikinn usla á ýmsum eyfirzkum bæjum, svo sem kunnugt er af frétt um. í nýútkomnu hefti af ÆGI riti Fiskifélags íslands, ritar Gunnar Jónsson, fiskifræð- ingur, um sjaldgæfa fiska, er veiddust við íslandsstrend ur árið 1967. Er þar alls get ið um 41 fisk, en 19 tegundir, þar af 3 nýjar, er ekki hafa áður þekkzt hér á landi. Fyrir skömmu úthlutaði Akureyrarbær 28 lóðum sam- kvæmt umsóknum, og hefur þá verið úthlutað þar alls 50 byggingarlóðum fyrir einbýl ishús á þessu ári, en 5 lóð- um var afsalað aftur. Lóða- eftirspurn mun ennþá að mestu fullnægt í höfuðstað Norðurlands. Samkvæmt athugunum var bílaeign íslendinga 1. janúar 1967, þ.e. í byrjun síðasta árs rúmlega fjörutíu þúsund bif reiðir. Bílaeignin hefur því hraðvaxið, þar sem íslending Framliald á 14. síffu Q 9. apríl 1968. — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.