Alþýðublaðið - 09.04.1968, Side 7

Alþýðublaðið - 09.04.1968, Side 7
AUGLÝSING um skolun bifresða í lögsagnar- umdæmg Kópavogs. Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með að aðalskcðun bifreiða fer fram 16. apríl til 24. maí n.k., að báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir: Þriðjud. 16. apríl Y- 1 til Y- 100 Miðvikud. 17. apríl Y» 101 — Y-| 200 Fimmtud. 18. apríl Ý- 201 — Y. 300 Föstud. 19. apríl Y- 301 — Y- 400 Mánud. 22. apríl Y- 401 — Y- 500 Þriðjud. 23 apríl Y- 501 — Y- 600 Miðvikud. 24. apríl Y- 601 — Y- 700 Föstud. 26. apríl Y- 701 — Y- 800 Mánud. 29. apríl Y- 801 — Y- 900 Þriðjud. 30. apríl Y- 901 — Y-1000 Fimmtud. 2. maí Y-1001 - Y-1100 Föstud. 3. maí Y-1101 — Y-1200 Mánud. 6. maí Y-1201 — Y-1300 Þriðjud. 7. maí Y-1301 — Y-1400 Míðvikud. 8. maí Y-1401 — Y-1500 Fimmtud. 9. maf Y-Í501 — Y-1600 Föstud. 10. maí Y-1601 — Y-1700 Mánud. 13. maí Y-1701 — Y-1800 . Þriðjud. 14. maí Y-1801 — Y-1900 Miðvikud. 15. maí Y-1901 — Y-2000 Fimmtud. 16. maí Y-2001 — Y-2100 Föstud. 17. maí Y-2101 - Y-2200 Mánud. 20. maí Y-2201 — Y-2300 Þriðjud. 21. maí Y-2301 — Y-2400 Miðvikud. 22. maí Y-2401 — Y-2500 Föstud. 24. máí ~ Y-2501 og • þar yfir. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar 'að Félagsheimili Kópavogs, og verður skoðun framkvæmd þar daglega kl 9-12 og 13-16,30. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laug- ardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðirn skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vátryggingar- ' iðgjöld ökumanna fyrir árið 1968 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hiverja bifreið 'sé í gildi. Hárfi gjöld þessi ekki verið greidd verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd. Þeir bif- reiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreiðum sínum skulu sína kvittun fyrir greiðslu af- notagjalda til ríkisútvarpsins fyrir árið 1968. Athygli skal vakin á því, að ljósabúnaður bifreiða skal vera í samræmi við reglugerð nr. 181. 30. des. 1967. Vanræki einhver að koma með bifreið sína til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt, og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn í Kópavogi 4. apríl 1968. SIGURGEÍR JÓNSSON. „Isavor” Framhald af 5. síðu. gæfni á hefðbundnum skoðun- um sé nein óhæfa. Þvert á móti mætti Það vera nokkurt lífs- mark, að hugsað sé upphátt um, rennt stoðum undir eða und- an fyrri skoðunum og bent á það, sem líklegt er að sannara sé. En fullyrðingar sprottnar af ósk- eða þráhyggju eru ólíkleg ar til að leiða nokkurn á rétta leið, að ekki sé talað umu að bendla slíkt við vísindi! Það fer ekki dult, að marga furðar á algerri þögn kyndil- bera íslenzkra fræða um hinar nýstárlegu kenningar, sem hér hefir verið á minnzt. Við eigum nú ofurlítinn hóo sérlærðra prófessöra og maistera, sem vel mættu leggja orð i helg um fræði þeirra Benedikts og Þórhails, annað hvort til andmæla eða samþykk's Ég sé í sunnudags blaði Albbl.. að Ó.J. getur ekki orða bundizt um viðhorf há- skóiamannanna og þeirra al- géru þögn. En betta er mér ekki neitt furðuefni. Fyrir tæpum aldarfjórðungi birtist .á prenti nýstárleg út- gáfa af Völuspá fornritanna eft jr Eirík Kierulf lækni. í þes^ari bók var vikið inn á allt aðrar leiðir til skýringa á fornum kveðskap, en s.n. > fræðimenn höfðu áður troðið. í stað þess að leitast við að ,,skýra” hvaða rassbögu, sem þeim datt í hug að gefa út. af því sem í handritunum fannst, jafnvel þótt allt væri þetta á afturfótunum í máli og hugs- un og bersýnilegar ritvillur, leitaðist læknirinn við að finna með hjálp þeirrar hugmyndar, að handritin væru i upphafi rúnarit, frumtexta -vísunnar skráðan með rúnum og, síðan ráða textann á annan veg og í ljósi þeirrar trúar. að vísari væri upphaflega rétt kveðin. Vissulega hefði verið ástæða til að. eitthvert hljóð hefði heyrzt úr horni „fræðimannanna“ sem hefir verið valinn sá trúnaður að geyma festarendans, þegar þess er . og gætt, að hann var ekki myrkur í máli um fræða- störf þeirra. En allir þögðu þunnu hljóði. Tvær ástæður heyrði ég muldraðar í. barm í þeim herbúðum. Önnur var sú að læknirinn væri kleyfhugi og hin, að engin rúnarit væru geymd, né um þau vitað, svo að allar hans hugmyndir væru í vindinum þar um. Verður ekki um það dæmt hér hvor ,rök- sefndin" var bágbornari. Síðar kom raunar í ljós, að úti í Nor egi hafa rúnir verið notaðar sem ritmál langt frameftir öld um, en ekki hefur það nægt til að rumska við Þyrnirósarsvefni prófessora í íslenzkum fræðum um þetta mál. Virðist því gilda einu, hvort mál er flutt í ræðu eða riti. Hér er ekki minnzt starfa Eiríks Kjerulfs og framlags hans til rannsókna íslenzkra fræða, vegna þess að þau þyki hliðstæð fullyrðingum Bene- dikts og próf. Þórhalls. Því fer víðs fjarri. Hitt er, að það virð ist gilda einu, hvort fram koma staðlitlar fullyrðingar, eða at- hyglisverðar rannsóknir reist- ar á sterkum rökum. Viðbrögð háskólans eru þau sömu. Alger þögn. Er nú ekki orðin ærin ástæða til að spyrja hinnar gamalkunnu spumingar? Vökumaður, þvað líður nóttinni? Oddur A. Sigurjónsson. Herradeild uppi Karlmannaföt frá kr. 1.490.— Stakir jakkar frá kr. 875.— Stakar buxur frá kr. 675.— Frakkar frá kr. 875.— Dömudeild uppi Fermingarföt frá kr. 1.750.— Fermingarkápur Slá - Helanca strech-skíðabuxur. Verð aðeins 690.— Peysusett, verð 650.— Herradeild götuhæð Fermingarskyrtur og slaufur Peysujakkar drengj<a nýkomnir. Stærð 5-8 ára. Wolsey ullarnærföt nýkomin Karlmarinaskyrtur verð frá 195.— Treflar, hanzkar og m. fl. FÍI¥Í ‘ ‘J FÉLAG ISLENZKRA MYNDLISTARMANNA il. Norrænt æskulýðsbiennale verður baldið í Heisingfors í október 1968. Hvert Norðurianda hefur heimild til að senda verk fimm listamanna, eigi fleiri en fimm eftir hvern. Þátttakendur skulu ekki eldri en þrítugir eða ekki orðriir 31 árs í september 1968. Félagið hefur skipað í dómnefnd þá: Braga Ásgeirsson, Einar Hákonarson, og Jóhann Eyfells. Efni í sýningarskrá þarf að vera komið til Helsingfors fyrir 15. maí. Tekið verður á móti myndum, málverkum, höggmyndum eða .grafik í Listamannaskálan- um þriðjudaginn 16. apríl n.k. kl. 4-7. Ekkert má senda undir gleri. — Þátttaka er ekki félagsbundin. Stjórnin. 9. apríl 1968. ALÞÝÐUBLAÐID J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.