Alþýðublaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 8
Handritastofnun á að vera stór í sniðum í úar, birti Hreinn Benediktsson prófessor grein í Morgunblað- inu sem nefndist „Hvað eru ís- lenzk fræði?” Var greinin skrif- uð í tilefni af því að „um þess- ar mundir eru 5 álr liðin síðan Handritastofnun íslands tók til starfa,” segir í upphafi hennar. .„Lög um stofnunina voru sam- þykkt á Alþingi í apríl 1962. Stjórn var stofnuninni sett þá um haustið, og starfslið ráðið um veturinn. Eftir fimm ára starf er tímabært að líta um öxl og kanna þá reynslu sem fengizt hefur .... hollt að virða nú fyr- ir sér þau stefnumörk sem sett voru í upphafi, þá skipan mála . 5 manna sem nú starfa þar. Þessa ádeilu á' Handritastofn- un eykur Hreinn Benediktsson ýtarlegri gagnrýni á skipulag „íslenzkra fræða“ í háskólanum undanfarna áratugi, þann grund- völl sem stofnunin er reist á. „íslenzk fræði hafa aldrei verið, og geta aldrei orðið, ein fræði- grein, sérstök og sjálfstæð. Held- ur er það sönnu nær, að þau séu, í hinum hefðbundna skiln- ingi, sambland af þremur sér- stökum og um margt gerólíkum fræðigreinum, eða öllu heldur af þáttum úr þremur greinum.” Hins vegar hafa íslenzk fræði, segir hann, verið stunduð í há- skólanum eins og væru þau sér- stök og sjálfstæð fræðigrein, í fullkominni einangrun frá öðr- um þáttum mannlegrar þekk- Hreins Benediktssonar, þar sem einkum var rætt um nauðsyn sér- stakrar örnefna: og nafnfræði- stofnunar. En stjórn og forstöðu- maður Handritastofnunar hafa ekki haft uppi andsvör af sinni hálfu við hvorugri þessari grein. Þóttl Alþýðublaðinu því hlýða að víkja má'linu til prófessors Einars Ól. Sveinssonar, forstöðu- manns Handritastofnunar, og spyrja um hans álit. — Mér virðist að greinar Hreins Benediktssonar fjalli um tvö aðgreind efni, sagði prófessor Einar í upphafi, annars vegar kennslu í íslenzkum fræðum í háskólanum, hins vegar málefni Handritastofnunar. Um fyrra efnið vil ég ekki ræða £ þetta sinn. Um það þyrfti að fjalla í mjög ýtarlegu máli til að gagn gáfunefnd. Hóf hún útgáfu rita sem voru fyrsti vísirinn að út- gáfustarfi Handritastofnunar. — 1961 varð Ijóst að veður voru að skipast í handritamál- inu. Þótti einsætt að nota tæki- færið, þegar þess var von að danska þingið samþykkti lög um afhending handritanna, sem varð um vorið, til að hrinda fram máli Handritastofnunar hér heima. Þá voru þrír menn sett- ir til þess af hálfu heimspeki- deildar háskólans að gera upp- kast að tillögu um slíka stofn- un, þeir Guðni Jónsson, Hall- dór Halldórsson og Einar Ól. Sveinsson. Þessi tillaga okkar fór síðan sína réttu boðleið til heimspekideildar, háskólaráðs, menntamálaráðuneytis og alþing- is, og á grundvelli hennar voru ✓ ✓ sem á var komið, og þær leiðir sem famar hafa verið til að ná settum markmiðum. Slík athúg- un á fárra ára fresti er nauðsyn- leg hverri stofnun sem halda vill þeim lífsþrótti sem einn skapar henni tilverurétt, og hún getur aðeins orðið til góðs, þar sem hún leiðir annað hvort í Ijós að rétt hafi verið stefnt og réttar leiðir farnar, eða þörf sé að staldra við, marka nýja stefnu og leita nýrra leiða.” P * rofessor Hreinn Benedikts- son gagnrýnir í grein sinni harð- lega allt skipulag og starfshætti Handritastofnunar til þessa, tel- ur að stofnuninni sé fengið allt of vítt verksvið þar sem steypt sé saman rannsóknum í átta ó- líkum fræðigreinum, málfræði, bókmenntafræði, sagnfræði, rétt- arsögu, kirkjusögu, örnefna- fræði, þjóðfræði og textafræði, sem hver ætti raunverulega heima í sjálfstæðri stofnun. Starfsmannahald og húsnæði stofnunarinnar sé öldungis ó- fullnægjandi til að sinna þessu víða fræðasviði, enda sýni reynsl- an að þvínær öll verk Handrita- stofnunar þessi fimm ár liggi innan marka einnar hinna átta fræðigreina, textafræðinnar. Hefði stofnunin þurft á að halda í upphafi a.m.k. 1—2 sérfræðing- um í hverri greininni — auk 1—2 aðstoðarmanna, styrk- þega í hverri grein, hið minnsta 25—30 manna starfsliði í stað ingarleitar. Þetta viðhorf er and- stætt hinni heilbrigðu háskóla- stefnu sem fylgt var í upphafi háskólans og nú hefur aftur ver- ið tekin upp, að breyttu því sem breyta þarf, með nýrri námskip- an í háskólanum. Er því grund- völlur Handritastofnunar, „ís- lenzk fræði” sem fræðilegt og háskólapólitískt hugtak, með öllu úreltur og hefur e.t.v. aldrei átt tilverurétt, segir prófessor Hreinn, og telur öll rök hníga að því að óhugsandi sé að Hand- ritastofnun geti nokkru sinni hafið alvarlega starfsemi á öllu því víða verksviði sem henni var fengið í upphafi; hins vegar - blasi sú hætta við, að óbreyttu skipulagi, að það verði til að tefja eða beinlínis koma í veg fyrir nauðsynlega eflingu rann- sókna i þeim fræðigreinum sem undit Handritastofnun voru lagð- ar. Leggur hann því til að lögin um Handritastofnun verði felld úr gildi, stofnuninni sett reglu- gerð sem hreinni háskólastofn- un, og síðan verði hafizt handa um skipulegan tmdirbúning þess að koma smámsaman á fót rann- sóknarstofnunum við háskólann í þeim greinum sem undir Hand- ritastofnun eru nú. s ^íðan þessi grein birtist hefur Baldur Jónsson skrifað í Morg- unblaðið, 22an marz, um ' Hand- ritastofnunina og háskólann, eins konar árétting á grein væri að. En prófessor Hreinn þekkir naumlega aðstæður nógu vel til að dæma um þær, þau kjör sem fyrri menn bjuggu við í þessum fræðum. Þetta efni verður að þekkja að innan ekki síður en utan til að meta það réttilega. Um málefni Hand- ritastofnunar er ég hins vegar reiðubúinn að ræða. — Hugmyndin um Handrita- stofnun er frá öndverðu samvax- in handritamálinu. í sambandi við það var oft hreyft nauðsyn þess að koma upp og efla að- stöðu til vísindMegra rannsókna og útgáfu handritanna þegar þau kæmust loks heim, og þótti mönnum þá tiitækilegast að koma á fót stofnun í „íslenzkum fræðum” I hefðbundnum skiln- ingi þess hugtaks, þar sem safn- að væri heimildum úr sögu, málfræði og bókmenntum ís- lendinga og unnið að rannsókn og útgáfu þeirra; hef ég gert grein fyrir þessum hugmyndum í Skírni 1963. Ég hlýt að játa að fyrir mitt leyti hugsaði ég mér slíka stofnun stóra í snið- um. En mér var ljóst að mjór er mikils vísir, að stofnunin hlyti að þróast eftir efnum og ástæðum. Ég áleit sjálfsagt að leggja mesta áherzlu á vísinda- lega textaútgáfu eftir handritun- um, en jafnframt þyrfti slík stofnun langsýni við, reynt væri að byrja jafnharðan á öðrum verkefnum eftir því sem fé og mannafli hrykki til. Við þessar umræður sat að mestu fram til 1961, en 1955 var stofnuð á veg- um háskólans sérstök handritaút- samþykkt á alþingi 1962 lög um Handritastofnun íslands. Þessir aðiljar gerðu að sjálfsögðu sín- ar breytingar á uppkasti okkar, en efnislega var því fylgt í öll- um meginatriðum, og það erum því við, þessir þremenningar, sem eigum skömmina af því sem miður fer í skipulagi Handrita- stofnunarinnar. En tillaga okkar var samþykkt af öllum deildar- mönnum í heimspekideild, þar á meðal Hreini Benediktssyni, og ég minnist þess ekki að nokkurn tíma væri hreyft andmælum við hénni með svipuðum rökum og prófessor Hreinn hefur nú uppi. ögin um Handritastofnun sem samþykkt voru á alþingi 14da apríl 1962 eru á þessa leið: „1. grein. Komið skal á fót Handritastofnun íslands. 2. grein. Tilgangur stofnimar- innar er að vinna að aukinni þekkingu á máli, bókmenntum og sögu íslenzku þjóðarinnar fyrr og síðar. Þetta geri stofn- unin með öflun og varðveizlu gagna um þessi efni, rannsókn- um á heimildum um þau, útgáfu handrita og fræðirita og með hverju öðru sem stutt getur að þessu markmiði. 3. grein. Stjórn stofnunar- innar sé falin nefnd manna sem í séu þrír prófessorar við há- skólann, kosnir af háskólaráði til fjögurra ára í senn, lands- bókavörður, þjóðskjalavörður, þjóðminjavörður og forstöðu- OLAFUR JONSSON f maður stofnunarinnar. Mennta- málaráðherra skipar einhvern þeirra formann stjórnarnefndar- innar. Nefndarstöríin séu ólaun- uð. 4. grein. Kveðið skal á um það í reglugerð hvar Handrita- stofnunin sé til húsa. 5. grein. Heimilt er að skipta stofnuninni í deildir eftir fræði- greinum. Kjarni stofnunarinnar sé sú deild sem annast útgáfu handrita eða rita eftir handrit- um svo og rannsóknir á þeim. Stofnunin taki við starfi hand- ritanefndar háskólans. 6. grein. Rekstur stofnunar- innar annist sérstakur forstöðu- maður. Sé hann jafnframt pró- fessor í heimspekideild með tak- markaðri kennsluskyldu og leið- beini hann þeim nemendum er taka hjá honum ritgerðarefni til lokaprófs. Til aðstoðar honum séu tveir menn sem hafi fullt og fast starf við stofnunina. —. Ajik þess starfi við stofnunina styrkþegar sem ráðnir séu til starfa um skamman tíma í senn. Heimilt er og að ráða nauðsyn- legt starfslið til vélritunar, Ijós- myndunar og annarra skrifstofu- starfa. — Starfsmenn stofnun- arinnar láti I té kennslu við há- skólann í lestri handrita, forn- skriftarfræði, útgáfutækni og öðrum þeim greinum sem þeir eru sérfróðir um. 7. grein. Menntamálaráðu- neytið getur sett í reglugerð nán g 9. apríl 1968. — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.