Alþýðublaðið - 09.04.1968, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 09.04.1968, Qupperneq 11
DANIR VORU BETRIIFYRRI LBKNUM OG SIGRUÐU17-14 Lið íslands: Þorsteinn Björnsson, Logi Kristjánsson, . Gunnlaugur Hjálmarsson, Ing ólfur Óskarsson, Guðjón Jóns son, Geir Hallsteinsson, Örn Hallsteinsson, Sigurður Einars son, Þórður Sigurðsson, Einar Magnússon og Ágúst Ögmunds son; Lið Danmt'rkur: Bent Mort ensen, Háns Fredriksen, Hans Ehrenreich, Per Svendsen, Cársten Lund, Verner Gaard, Hans Jörgen Graversen, Niels Aage Frandsen, Iwan Christi ansen, Mogens Cramer og Gert Andersen. Dómari: Ragnar Pettersson: Sjöunda landsleik íslendinga og Dana í handknattleik Tauk með sigri Dana 17 mörkum gegn 14, en leikurinn var háð ur á laugardaginn. í leikhléi var staðan 5 mörk gegn 4 ís- lendingum í hag. Leikurinn var ekki vel leikinn, en sigur Dana verðskuldaður- Gunnlaugur Hjálmarsson átti fyrsta skot að marki, en Bent Mortensen hinn snjalli mark- vörður Dana varði og hann átti eftir að koma oftar við sögu í þessum leik. Á þriðju mínútu leiksins tókst fyrirliða Dana Gert Andersen loks að skora ,og tveimur mínútum síðar jafnaði Geir Hallsteins- son úr vítakasti. Á næstu tíu mínútum tókst hvorugu liðinu að skora mark, þótt margar tilraunir væru Birgir Björnsson, þjálfarf lands liðsins. gerðar, annaðhvort tókst mark vörðum að verja, eða skotin voru misheppnuð. Síðari hluta hálfleiksins voru mun fleiri mörk gerð- Örn Hallsteinsson skoraði annað mark íslands, en Gert Andersen jafnaði á 20. mínútu. Mínútu síðar var dæmt vítakast á ísland, nokk uð strangur dómur, og Iwan Christiansen skoraði örugglega. Næsta mark var einnig gert úr vítakasti, Geir Hallsteins- son skoraði fyrir ísland og ný liðinn í íslenzka landsliðinu Þórður Sigurðsson gerði fal- legt mark á 24. mínútu; stað- an er 4:3 fyrir ísland. Þrem ur mínútum fyrir leikhlé jafn aði Per Svendsen fyrir Dani og um svipað leyti vísaði dóm arinn Ragnar Pettersson Ágúst Ögmundssyni af leikvelli í 2 mínútur, og ekki var séð hvers vegna, en það var víst ekki í eina skiptið, sem hann gerði óskiljanlega hluti í þessum leik. Fjórða vítakastið í þess um hálfleik var dæmt tæpri mínútu fyrir hlé á Dani og Geir skoraði. Þannig lauk fyrri hálfleik með sigri ís- lands 5 mörkum gegn 4. Þetta leit ekki sem verst út, en síð ari hálfleikur hefur oft verið martröð fyrir íslenzka áhorf- endur og menn voru ekki alltof bjartsýnir- Danir unnu síffari hálfleik meff 13:9 Danir voru ákveðnari eftir hlé og sýndu stöku sinnum all góð tilþrif, þó að mikið vant- aði á, að þeir væru eins góðir og síðast þegar þeir léku hér. Graversen jafnaði með góðu skoti á þriðju mínútu, en Gunnlaugur færði íslandi aft ur forystu á fimmtu mínútu. Danir jöfnuðu úr vítakasti, sem Graversen framkvæmdi og skömmu síðar náðu Danir forystu er Per Svendsen skor aði, en Ingólfur jafnaði 7. mínútu, leikurinn var spenn- andi og baráttuvilji leikmanna í hámarki- Andersen og Geir skoruðu og enn er jafntefli 8 mörk gegn 8. Danska liðið gerði tvö næstu mörk, Lund úr vítakasti og Gert Andersen fyrirliði. Staðan er 10:8 Dön um í hag og útlitið ekki sem bezt. Þórður Sigurðsson komst inn í sendingu Dananna og skoraði glæsilega og enn er von- Frandsen afgreiddi bolt ann í íslenzka markið, þrátt fyrir góð tilþrif Þorsteins og aftur munar tveimur mörkum. Mismunurinn er eitt og tvö mörk á víxl, Dönum í hag næstu 12 mínútur, en mörkin gerðu Sigúrður Einarsson eitt og Geir Hallsteinsson tvö, þar af annað úr vítakasti. Mörk Dana gerðu Carsten Lund eitt og Iwan Christiansen tvö, bæði úr vítakasti- Fjórum mínútum fyrir leiks lok ná Danir þriggja marka forskoti, hinn örvhenti Carst- en Lund skoraði, Ingölfur minnkar muninn aftur, Lund skorar enn og aftur minnkar Ingólfur fyrirliði muninn. Nú eru aðeins 30 sekúndur til leiksloka og Danir hafa tryggt sér sigur, Verner Gaard inn- siglaði sigurinn með marki nokkrum sekúndum fyrir leiks lok. Sigurður Einarsson skorar í fyrri leiknum. Þórður Sigurffsson á skot aff marki á laugardag. Eins og fyrr segir var þetta Bezti maður danska liðsins slakur landsleikur, hið vel var markyörðurinn Bent Mort samæfða íslenzka landslið náði ensen, en hann sýndi oft frá. aldrei saman, þetta var leikur bæra leikni í markinu. Bar- einstaklinga, en ekki liðs. Á- áttuvilji Dananna ásamt hörku berandi var einnig lélegt línu og sigurvilja gerði út um leik spil, enda lítið um línuspilara i’hn, en auk Mortensens, bar í liðinu- Eini maðurnn, sem mest á Carsten Lund og Gert reis upp úr meðalmennskunni Andersen. var markvörðurinn Þorsteinn Ragnar Pettersson var ró- Björnsson. Geir Hallsteinsson legur og stjórnsamur dómari, var öruggur í vítaköstum. Hér en túlkun hans á reglunum glataðist tækifæri til að vinna var oft furðuleg og bitnaði lélegt danskt landslið- mjög á íslenzka liðinu. ÍSLANDIRIDU MEÐ DÖNUM OGBELGlU Um helgina var dregið um það hvaða lið leika saman í undankeppni næstu heims- meistarakeppni í handknatt- leik. ísland leikur í 6. riðli ásamt Dönum og Belgíu- Efsta lið í hverjum riðli fer beint í úrslitakeppnina, en lið . nr. tvö' fær annan möguleika í aukaleikjum. T d. mun það lið, sem verður nr. 2 í 1. riðli leika við lið nr. 2 í 6- riðli. Það eru miklar líkur til að það verði Sviss, svo að ísland hefur tölu verða möguleika á að komast í úrslitakeppnina, sem hefst í Frakklandi 25. febrúar 1970. Ein undantekning er á þessu fyrirkomulagi, tvö beztu liðin í 7. riðli fara beint í úrslita- keppnina- Rifflaskiptingin er sem hér segir: 1. riðill: Danmörk, island, Belgía. 2. riðill: Rúmenía, Austurríki og Búlgaría. 3- riðill; Sovét, Pólland og ísrael. 4. riðill: Svíþjóð, Noregur, Finnland.. 5. riðill: V-Þýzkaland, Spánn og Portúgal. 6. riðill: Júgóslavía, Sviss og Luxemborg. 7. riðill: Ungverjaland, A-Þýzkaland og Holland. Þá skal þess getið, að núver andi heimsmeistarar Tékkar, Frakkar, sem sjá um keppn- ina, sigurvegarinn í leik USA og Kanada Japan og Marokko fara í úrslitakeppnina. Þau lönd sem leika til úr- slita verða olympíuþátttakentí ur í Múnchen 1972. 9. apríl 1968. - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.