Alþýðublaðið - 11.05.1968, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 11.05.1968, Blaðsíða 2
 EÐW Bitstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. - Auglýsingasími: 14906. _ Aðsetur: Alþýðuhusið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. - Áskrlftargjald kr. 120,00. — I lausasölu kr. 7,00 eintakið. _ Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf! BRÁÐABIRGÐALÖGIN Alvarleg vandamál hafa skap- azt undanfarin ár í sambandi við söltun síldar hér á landi. Hefur síminnkandi magn veiðzt við landið á hinum gömlu heimamið um, en síldin verið langt úti í hafi. í fyrra var til dæmis ekki unnt að sulta nema sáralítið á eðlilegum tíma, heldur var salt- að í október og nóvember. Bæði er veðurfar og önnur aðstaða þá erfiðara en um sumarið, aðstaða vinnuafls óhægari og svo eru gæði síldarinnar ekki talin hin sömu svo seint sem þau eru um sumar. Af þessum ástæðum, svo og vegna aukinnar samkeppni, eru horfur um síldarsöltun á kom- andi sumri mjög slæmar, verði síldargöngur svipaðar og í fyrra. Er því ekki annarra kosta völ en 'að íslenzki síldarflotinn hefji söltun síldar um borð, en það gera síldveiðimenn margra þjóða. Síðastliðið vor skipaði sjávarút vegsmálaráðherra Eggert G. Þor steinsson fimm manna nefnd til að fjalla um flutninga síldar. Nefndin hefur nú skilað hluta af áliti sínu og gerir tillögur um ráð stafanir til að unnt verði að flytja sjósaltaða síld frá flotanum á fjar lægum miðum til lands. í nefnd þessari áttu meðal annarra sæti fulltrúar sjómanna, útvegsmanna og síldarsaltenda, og styðja sam- tök þessara aðila þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið. Forseti Íslands hefur nú sam- kvæmt ósk sjávarútvegsmálaráð herra gefið út bráðabirgðalög um stuðning við flutninga á sjósalt- ' aðri síld á þessu ári. Er gert ráð fyrir, að leigð verði allt að fimm skip til þessara flutninga og aðr ar ráðstafanir gerðar til aðstoðar. Síldveiðar og síldarvinnsla hafa verið þýðingarmesti atvinnu vegur þjóðarinnar undanfarin ár og átt hvað mestan þátt í þeim stórauknu tekjum, sem fengust á árunum 1964-66. Hins ^vegar átti verðhrun á síldarlýsi og mjöli hva-ð mestan þátt í því hrapalega tekjutapi, sém varð í fyrra og valdið hefur svo miklum erfiðleikum. Af þessum sökum er sérstök ástæða til að gera ráðstaf anir, er greiði fyrir síldveiðum og síldarvinnslu á þessu ári. Ýms fleiri atriði varðandi síld veiðar sumarsins eru til 'athugun ar, og má gera ráð fyrir frekari ráðstöfunum. Hefur sjávarútvegs málaráðherra án efa gert rétt með útgáfu bráðabirgðalaganna og með þeim veitt síldarútvegin um mikilvæga aðstoð til 'að hann geti á komandi sumri gegnt sínu hefðbundna hlutverki fyrir þjóð ina eins og það hefur bezt verið. RAFAEL KUBELIK Tékkóslóvakía er og var mikið tónlistarhreiður og margir snjall- ir tónlistarmenn hafa dreifzt þaðan um víða veröld. Einn þeirra, sem starfa utan heima- lands síns, er hljómsveitarstjór- inn Rafael Kubelik. Hann er al- inn upp á tónlistarheimiii, sonur fiðluleikarans Jans Kubeliks. — Frantisek, frændi hans, píanó- kennari í Prag, hafði einna mest áhrif á hann í æsku, ef undan er skilinn faðir hans. Sjö ára gamall var hann farinn að leika tvíleik með frænda sínum. Hann kenndi honum að þekkja anda Haydns, Beethovens, Schu- manns og fleiri tónskálda. Þá þegar var hann farinn að lesa nótur einkum af óperum, einnig var hann farinn að fást við tón- smíðar. Faðir hans kenndi hon- um auðvitað á fiðlu og hann komst. fljótt upp á lagið með að leika konsarta og stofutónlist. Hann segist ekki hafa haft neina sérstaka löngun til þess að verða hljómsveitarstjóri, en fljótt ver- ið ákveðinn í að gerast tónlist- armaður. Hann stundaði nám við Tón- listarháskólann í Prag 1928—1933 og kom fyrst fram sem stjórn- andi Tékknesku fílharmoníu- hljómsveitarinnar tæplega tví- tugur. Faðir hans var einleikari 4 þessum tónleikum og lék Fantasíu fyrir fiðlu eftir son sinn. Síðan fór Rafael í 18 mán- aða hljómleikaför sem undirleik- ari, en hélt svo áfram námi í fiðluleik og stjórnaði fleiri hljómleikum í Prag, þar til hann var ráðinn aðalstjórnandi við ó- peruna í Brno, þar sem hann var 1939—1941, eða þar til óper- unni var lokað af Þjóðverjum, en þá fór Kubelik til Prag og varð stjórnandi Tékknesku fíl- harmoníuhlj óms veitarinnar. Eftir valdatöku kommúnista 1948 fór Kubelik úr landi og býst varla við að snúa heim aft- ur. Hvað sem verður við síðustu atburði í Tékkóslóvakíu. Hann varð hljómsveitarstjóri við sym- fóníuhljómsveitina i Chicago 1950 — 53 og þótti það tíðindum sæta, að á þeim tíma flutti hljóm sveitin áð minnsta kosti 60 verk þálifandi tónskálda. Sýnir það hug hans til nútímatónlistar. — Þaöan fór hann svo til Covent Garden og var þar í þrjú ár, þar til hann sagði af sér vegna hat- ramlegrar árásar Sir Thomasar Beechams á óperuna. Kubelik álitur að söngleikahús eigi að vera sjálfu sér nógt um alla starfskrafia og starfa sem sam- einaður hópur, en ekki hægt að reka óperu á þann hátt á dögum „þotusöngvaranna” eins og hann segir. Þó slær hann ekki hend,- inni á móti því að stjórna góðri óperu, ef honum gefst kostur. Árið 1960 réðst hann til sym- fóníuhljómsveitarinnar í Miin- ehen. Henni stjórnar hann á 35 hljómleikum á ári bæði heima og á hljómleikaferðum. Hann mun nú í ár leika á Edinborgar- hátíðinni. Þar að auki stjórnar hann um 30 tónleikum sem gest- ur. Fjóra mánuði á ári notar hann til hvíldar og hressingar, þá semur hann kjarnann. Hann hefur t. d. samið þrjár langar óperur, nokkur liljómsveitarverk og stofutónlist. Honum finnst hann verða að halda uppi arf- leifð forfeðra sinna og halda tengsl við föðurland sitt á ein- hvern hátt. Hann hefur ekki áhyggjur af verkum sínum. — Ekkert liggur á. Ef þau eru í raun og veru einhvers virði, þá verða þau það Uka eftir 20 ár. Rafael Kubelik Á meðan geta þau legið á hill- unni. Þegar hann býr í 300 ára gömlum kastala við Luzernvatn, burtu frá öllum hljómleikasöl- um, í óháðu andrúmslofti, finnst honum hann njóta bezt næðis til tónsmíða. Kubelik stjórnar oft fyrir út- varpsstöðvar og telur það ásamt því að útvarpstónleikar nái til margra, ómetanlega æfingu fyrir grammófónupptöku. Kubelik er nú að leika allar symfóníur Mah- lers fyrir DGG, það er að segja, aftur að Adagiokaflanum í þeirri 10., því að þótt hann hafi mikl- ar mætur og álit á Deryck Gook, sem prjónaði þar aftan við, held- Framhald á bls. 10 11. maí 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ VIÐ MÓI— MÆLOH tkki andskotalaust ÞAÐ er ekki andskotalaust að " þurfa að endurnýja ökuskírtein ið sitt, en hjá því vcrður ekki kom'izt, án þess má maður ekM aka. Ég lenti í þessu endurnýj unarstússi núna á dögunum og það var ekki aldeilis eins og að fara í frakkann eða Iáta á sig hattinn. Þó vann ég þetta mjög skinulega og samkvæmt nútíma hagræðingu. Fyrst af öllu hringdi ég á lögreglustööina og spurðist fyr ir um hvaða plögg ég þyrfti að Ieggja fram og fékk greið svijr og skýr: sakavottorð, augnavott orð, nýjar passamyndir, nafn- núrner, gamla ökuskírteinið, Vafstrið byrjaði þó ekki vel, því ég hitti ekki á réttan af- greiðslutíma hjá sakadómara og fór fýluför, það er ekki opið nema tvo tíma eða þar um bil. Ég mátti sjálfum mér um kenna að hafa ekkí kynnt mér þetta. En í annarri lotu gekk allt eins og í sögu. ég fékk þetta líka indælisvottorð, enda hefur réttvísinni alclrei tekizt að koma mér á svartan lista. Hjá augn- Iækninum voru átta á undan mér og ég var langt komin með dönsku blöðin, þegar núm erið mitt var kallað upp, en tíminn er fljótur að Iíða á læknabiðstofum, eins og allir vita, og enginn kippSr sér upp v<ð þriggja eða fjögurra tíma töf. Passamyndifnar fékk ég eftir tvo daga eins og til stóð, en nafnnúmerið og gamla öku- skírteínið hafði ég auðvitað við hendina; allt var til reiðu. ★ SVO arkaði ég niður á Iög. reglustöð snemma á fimmtudags morgni og lýsti því yfir í heyr- anda hljóði, að ég væri kominn í þeim erindagjörðum að fá endurnýjað ökuskírteinið mitt. Og afgreiðslustúlkan bað um plöggin. Ég tók fram gamla ökuskírteinið mitt og fékk stúlkunni, sýndi henni nafnnúm erið, afhenti henni passamynd, augnvottorðið á borðlð, og breiddi úr sakavottorðinu fyrir framan hana, skrifaði því næst bciðni um ökuskírteinl ásamt ýmsum persónulegum upplýs- ingum á þar til gert eyðublað, greiddi að Iokum hundrað kall fyrir væntanlegt ökuskírteini. Nú þóttlst ég vel hafa gert og hugsaði að ekki væri annað eft ir en veita skírteininu viðtöku, enda hafði stúlkan tekið I sína . Framhald á bls. 10

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.