Alþýðublaðið - 11.05.1968, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 11.05.1968, Qupperneq 12
SÍOAY& SKEMMTUN LEIKARA Næstkomandi sunnudag ætla le'ikarar að halda síðdegisskemmtun á Hótel Sögu til fjáröflunar fyrir styrktarsjóð Félags íslenzkra leik- ara. — Rúmlega þrjátíu landskunnir leikarar taka þátt í skemmtun þessari, sem meðal annars er fólgin í gamansamri tízkusýningu á búnfngum úr leikritum, sem leikin hafa verið í vetur, og taka þátt i lienni m. a. Brynjólfur Jóhannesson, Sigríður Hagalín, Jón Sigur- björnsson, Valgerður Dan, Jón Aðils, Guðmundur Pálsson, Stein- dór Hjörleifsson, Margrét Ólafsdóttir, Róbert Arnfinnsson, Rúrik Iiaraldsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, FIos'i Ólafsson, Kristbjörg Kjeld, Árni Tryggvason, Ævar Kvaran, Sigríður Þorvaldsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Bessi Bjarnason, svo nokkrir séu nefndir. Einnig verður til skemmtunar kynning á leikritum þeim, sem leik 1 in eru í leikhúsúnum í vetur og verða leikin atriði úr þeim, m. a. úr Indíánale'ik, ítölskum stráhatti, ÞrettJndakvöldi, Koppalogni og Islandsklukkunni. — Svo munu óperusöngvararnir Stina-Britt Mel- ander og Ólafur Jónsson syngja úr Brosandi Iandi. Er það trú leikaranna, að þetta geti orðið hin bezta skemmtun og vonast til að þetta vekji áhuga fólks og það sæki skemmtun þessa, sem verður, eins og áður er getið á Hótel Sögu, sunnudaginn 12. maí klukkan þrjú. Aðgöngumiðasala er á laugardag frá kl. 3-5 og frá kl. 2 á sunnudag. Myndin er af Róbert Arnfinnssyni og Rú- rik Haraldssynj í hlutverkum sínum í íslandsklukkunni. Þeir eru ekki fáir stórglæpa- mennirnir, sem leitast hafa við og jafnvel stundum tekizt að koma af stað kjarnorku- styrjöldum í kvikmyndum. Sem betur fer hafa slíkar styrjaldir þó, enn sem komið er haldið sér innan ramma kvikmyndatjaldsins. Moggi, Fólk er alltaf að tala um pillur ur til að varna barneignum. Fyrir mitt leyti held ég að svefnpillur séu árangursríkast ar. I.OFTÞÉTTAR UMBÍHÐIR VINSÆLASTA PÍPUTÓBAK í AMERÍKU. REYKTÓBAK. MÆÐRA- DAGURINN Sunnudaginn 12. maí hefur Mæðrafélagið kaffisölu að Hallveigarstöðum jafnframt því að bjóða borgarbúum upp á sérstaklega gott eftir- miðdagskaffi. Þá vonar félag ið að ágóði þess verði til þess að efla sjóð þann er stofnaður var til minningar um Katrínu Pálsdóttur stofn anda félagsins varaformann og síðar formann til dauða- dags. Tilgangur sjóðsins er að verða til hjálpar einstæð- um mæðrum og börnum á raunhæfan hátt en þess mundi Katrín helzt hafa ósk að. daglegi BAIÍstur Þjóðhollusta Á undanliðnum árum hefur, sem kunnugt er, íslenzkur iðnað- ur átt mjög í vök áð verjast. Fyrirtæki hafa rúllað um koll. hvert í kapp við annað cg veríð lýst gjaldþrota. Iðnrekendur hafa haldið margar og merkilegar ráðstefn- ur, til að ráða fram úr þessum vanda. Iðnaðarmálaráðherra hefur kvatt iðnrekendur til dáða og drengilegrar samkeppni við erlenda auðhringa. Kexframleiðsla hefur staðið í stað, en kexneyzla hundrað- faldast áxað gizka. Síldin er seld úr landi í tunnum og keypt aftur til lands ins í dósum. Ekki er sútað að selja ósútaðar gærur úr landi og káupa þær aftur í annarri mynd. Iðnaðurinn stríðir við skort á fallegum ummúðum. Kassagerðin er í stríði við SH út-af umbúðum. Allt er komið í hönk. Allir tapa. Og allt þetta fyrir skort á samkeppnisleysi og rekstrarfé og ríkisábyrgðum og eilífðarvíxlum og vegna markaðskreppu og kaupgetuleysis almennings. Útlitið er svart. Þjóðarskútan veltur eins og togari í flatskellu. Þyngdarpunkturinn er á uppleið. Ágirndarborðið er of hátt. Við siglum með falskan steis. Kröfurnar eru of há'ar. Kröfugöngurnar of fjölmennar og ástandið í áfengismálum sýnir greinileg merki um afturför Við borgum jafnmikið fyrir að drekka minna en áður Þjóðin verður að gera auknar kröfur til sjálfrar sín. Því er lagt til að þjóðin vísi eftirfarandi ályktun til sjálfrar sín: „Sjálfrar sín vegna ályktar hin íslenska þjóð að brýna nauðsyn beri til að koma fótunum aftur undir iðnaðinn. Hún v iðurkennir að í sjálfu sér eru valtir fætur skári en engir, Og þó iðnaðurinn stæði þó ekki á' völtum fótum, væri það þó spor í rétta átt. Eflúm íslenzkan iðnað. Snúum okkur í ríkara mæli að þjóðlegri neyzlu á öllum sviðum. Almenn notkun prjónabróka efli ullariðnaðinn. Meiri brennivínsdrykkja eflir gosdrykkjaiðnaðiim. Snúum okkur að Svartadauða og Áka- víti og eflum þannig þá grein iðnaðarins. Við ættum að borga meira fyrr að drekka jafnmikið. Það eflir ríkiskassann og þannig óbeint iðnaðinn. Þannig mætti lengi telja. Höfum hugfast að iðnaðurinn horfir til okkar, hins almenna neyt- enda, með vonarglampa í augum. Við- getum frelsað eða #or- dæmt .Okkar er valdið og virðingin. Skoðum hug okkar þris- var og íslenzku vörurnar fjórum sinnum áður en við kaupum útlenda vöru.“ 1 GADDUR Skyldi hann hafa ætlað i tí* kall-hark þe'ssi útlendingur með tíkallana í töskunni.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.