Alþýðublaðið - 22.05.1968, Side 4
HEYRT&>
SÉÐ
^ í útjaðri Hamborgar gefur að líta þetta sérkennilega lista
verk, sem ber ht'ítið „Hreyfingar rúmsins“ og merkir rúmið þá
himingeiminn. Listaverkið er eftr Max Bill, og wr ekki annað a3
sjá en vegfarendur kunni vel að meta listaverkið og þau þæglndi
sem það býður uppá.
MORÐINGINN ER AF-
BRIGÐILEGUR OG ÞAÐ
KANN AÐ BREYTA DÓMI
Flestir ' blaðalesendur muna
eftir hinum óhugnanlegu morð
um í júlí 1966 er maður drap
álta hjúkrunarkonur í borg-
inni Chicagó í Bandaríkjun-
lím. Morðinginn heitir Richard
F. Speck og var hann dæmdur
i til lífiáts í rafmagnsstól. Nú
leikur vafi á hvort dóminum
verður fullnægt því komið
hefur fram við læknisskoðun
sð í Hkama morðingjans eru
óvenjulegir litningar þ.e. hann
hefur heimingi fleiri karllitn-
inga en venja er og veldur
þaö því að hann er frá nátt-
úrunnar hendi óvenjulega árás
argjarn. Þessi afbrigðilega
samsetning veldur þvi að mað
urinn er dæmdur til að lenda
á villigötúm.
Læknar og vísindamenn á-
líta að síðustu rannsóknir á
þessu sviði kunni að hafa veru
leg áhrif á réttarfar. Líkt mál
cr nú í uppsiglingu í Frakk-
landi þar sem framið var
morð, sem virðist að öllu leyti
1 ástæðulaust. Samkvæmt kröfu
4 22. maí 1968 —
verjanda mannsins, sem morð
ið framdi, var gerð rannsókn
á erfðavísum hans og kom í
Ijós að þeir voru óvenjulega
samsettir, og því kann svo að
fara að dómaramir líti öðrum
augum á sekt morðingjans.
ALÞÝÐUBLAÐÍÐ
Dóninn hann
Napóleon!
□ □ Apinn Napóleon í dýra-
garðinum í London hefur
mikið verið á síðum dagblaða
borgarinnar að undanförnu
og ástæðan er augljós lítils-
virðing á því seha er konung
legt. Þegar Philip prins heim
sótti dýragarðinn um daginn
slanzaði hann fyrir framan
búr Napóleons, sem stóð þar
rólegur og hélt um stangirn
ar fyrir búrinu. Prinsinn
horfði á apann og apinn
horfði á prinsinn og bláu,
klæðskerasaumuðu fötin
prinsins gegnblotnuðu hér
og þar.
Sagan hefði vísast ekki orð
ið að stóru umtalsefni hefði
prinsinn ekki minnst á at-
burðinn síðar. Hann sagði: Ef
þið verðið vör við dýralykt
er það vegna þess að ég var
að koma úr heimsókn til
nokkurra apa. Einn þeirra
bauð mig velkominn með
því að bleyta mig.
„Fiðlari á þakirw'"
Söngleikuiinn „Fiðlari á þakinu” eða „Fiddler on the Roof,”
eins og flestir munu kannast bezt við og nafn hans er á frum-
málinu, hefur farið sannefnda sigurför um heiminn. Jafnvel ís-
lendingar þekkja hann að öllu góðu, þó að enn höfum við ekki
séð hann, vegna ágætra laga er leikin hafa verið í útvarpi og á
samkomustöðum.ekki sízt samnefnds lags. Þessi stórvinsæli söng-
leikur er nú sýndur f jórða árið í íöð á Brodway — og í Noregi er
hann t.d. á öðru ári! Vonandi verður þess ekki langt að bíða, að
við fáuin að kynnast honum nánar — og þá er eftir aí vita, hve
lengi hann gengur hér — þó að eflaust komi það nú ekki t'il með
að skipta árum!
Fjölskylduráð
Islands
□□ Tímaritið Hús og búnað-
ur 3-4 hefti 2. árgangs, er ný-
komið út. Þar hreyfir ritstjór
inn. Ragnar Ágústss., firvitni
legu máli. Hann vill koma á
stofn fjölskylduráði íslands
með þátttöku sem flestra fé-
laga og félagssamtaka. í grein
inni skortir nokkuð á að þess-
ari hugmynd sé gerð viðhlít-
andi skil, en bent á að þörf
sé fyrir „samræmt starf við að
leiðbeina um allt, sem að heim
ilisrekstri lýtur. Hér er meira
verk að vinna en einstakir að
ilar eru færir um,“ segir í
greininni.
Lítið inn
í leiðinni.
★-
Veitingaskálinn
GEITHÁLSI.
FRÁBÆR
ENDJNG
SÍÐASTA SÝNING
Á BANGSÍMON
Hjð vinsæla barnaleikrit
,,Bangsimon“ verður sýnt í
síðasta sinn kl. 15.00 á upp-
stigningardag. Aðsókn að
leiknum hefur verið góð. Þessi
vinsæla saga um Bangsimon
og vini hans hefur náð mikl
um vinsældum hjá yngri kyn-
slóðinni fyrst sem framhalds
saga í barnatímum Útvarps-
ins og nú í leikritsformi á leik
sviði Þjóðleikhússins. Leik-
stjóri er Baldvin Halldórsson,
en aðalhlutverkið, Bangsimon
er leikið af Hákon Waage.
□ □ Þessi náungi hér á mynd
inni er sannur séntilmaður. Á
hverjum morgni fær hann sér
steypibað undir vatnskranan-
um og notar hann ávallt kalda
vatnskranann. Fyrst fær hann
sér þó nokkra sopa til að skola
hálsinn og slökkva þorstann.
Hann heitir Sparkie og er á-
vallt hraustur og frískur. Þakk
ar hann það hreinlætiskennd
sinni.