Alþýðublaðið - 22.05.1968, Qupperneq 14
Sturla
Framhald úr opnu.
að meðan ekki er lokið við gerð
hafskipahakkans, sem byrjað
var á 1946, svo og full nýttir
þeir möguleikar til hafnargerð
arinnar, sem tilefni gefa til
þá eru ráðagerðir með að byrja
nú þegar á svonefndri Sunda-
höfn, sem mun kosta óhemju fé
■og taka tugi ára að framkvæma
og þar með seinka, eða stöðva
frekari framkvæmdir við innri
höfnina, og jafnvel eyðileggja
þau hafnarmannvirki sem fyrir
oru vegna ónógs viðhalds. Það
á sem sagt að káfa í öllit, en'
ekkert að klára. Það .er ennþá
ríkjandi sú hugsun, að við ís-
lendingar séum óhemju framsýn
ir rnenn, að okkur sé óhætt að
hugsa stórt, en komumst svo að
því, þegar í óefni er komtð, að
við erum bara litlir og fátækir
karlar.
held að það væri hyggi-
legra hjá okkur ísfirðing-
■um, og jafnvel þjóðhagslegur
sparnaður, að við liyggðum bet
ur að ihnri höfninni, sinni raun
verulegh ísafjarðarhöfn, en ekki
einhverju dolláragríni eða æfin
týrahöfn út. í Sundum fyrir
opinni haföldu.
^oveifilegar fréttir liafa bor
izt hingað til bæjarins að
fjárveiting sú, sem ísfirðingum
hefur verið lofað til hafnarbóta
og þeir beðið eftir undanfarin
ár, eigi nú að takast af þeim
og leggjast til annarar hafna, og
því verði að fresta framkvæmd
um hér að sinni, einu sinni enn.
Pru þetta furðulegar ráð-
stafanir, sem ísfirð.ingar
eiga ekki að taka þegjandi, við
eigum að krefjast borgara fund
ar og krefjast réttar okkar.
jsfirzkir sjómenn og útgerð-
armenn eiga að lýsa van-
trausti á þá menn, sem standa
að þessum aðgerðum og krefj
ast skilyrðislausra framkvæmda
hér við höfnina í sumar.
||Hvaða umboð hafa ísfirzkir
þingm. hafa til að styðja slík
ar aðgerðir er þeim ekki falið af
ísfirzkum kjósendum að vinna
fyrir sig og sína, en ekki á
móti þeim. Látum þessa menn
svara til saka á almennum borg-
arafundi og skýra sínar aðgerð-
ir. v,
£f íslenzka fjárveitingavald-
ið ætlar að setja ísafjarð
arhöfn enn þá hjá, með fyrir-
greiðslu til hafnarbóta. á bæjar
stjórn ísafjarðar, að leita nú
þegar aðstoðar annarstaðar frá
svo sem frá erlendum aðilum,
og dettur mér þá helzt í hug
ensk vátryggingarfélög, sem ef
til vill, mundu vilja styðja að
bættum hafnarbótum hér, sem
mundi skapa hér bætta þjónustu
við enska togaraflotann, er sæk
ir hingað allmikið. Mætti þá
hugsa sér að endurgreiða slíkt
lán með hafnargjöldum þessara
skipa.
^llt um það, ber ísfirðing-
um að grípa til róttækra
og skjótra aðgerða, ef rétt er
með farið, að okkur sé neitað
um umbætur, því hafnarmann
virki okkar eru í mikilli hættu,
vegna skemmda, svo og bátaflot
inn, sem á yfir sér samskonar
útreið bg hann fékk hér í haust.
Sturla Halldórsson
hafnarvörður
ísafirði.
40 ára
Framhald úr opnu.
göngu og þá skotið að þeim
þeirri hugmynd, að þær þyrftu
endilega að eignast útileguhús.
Hugmyndinni var vel fagnað af
Valkyrjum, en sá galli var á,
að aurasjóður var rýr í meira
lagi. En Vilmundur hvatti stúlk-
urnar til að finna sér heppileg-
an stað og sækja síðan um bygg-
ingarleyfi til bæjarstjórnar. —
Varð svo úr, að þetta var gert
og mætti allur Valkyrjuhópur-
inn á' ba^arstjórnaríúndi, er
þetta mál var til umræðu. Ekki
voru byggingaráætlanirnar ýkja
háreistar. Stúlkurnar höfðu
hugsað sér að byggja skúr, sem
síðar mætti svo hækka upp, er
efni leyfðu. En þeim háu herr-
um í bæjarstjórn fannst þetta
heldur rislágar áætlanir og vildu
ekki leyfa kofann, nema með
risi. Þá féll stúlkunum allur ket-
ill í eld, því að þær sáu ekki
fram á að þær gætu aurað sam-
an fyrir slíku „sloti”. En þá
reis eii^n b aj ja rs tj >5rnú r m a n
anna, Jón heit. Sigmundsson,
úr sæti og kvaddi sér hljóðs.
Kvaðst hann sjá að stúlkumar
væru auralitlar og spurði, hvort
ekki væri rétt að styrkja þær
eitthvað. Allir bæjarstjórnar-
meðlimirnir samsinntu því og
efndu þeir til samskota sín á
meðal, til þess að aura f.vrir ris-
inu. Þessum fundi lyktaði svo,
að stúlkurnar héldu heim af
h'onum heldur en ekki sigur-
stranglegar og höfðu þá bæði
fengið byggingarleyfið og kr.
300,00 í peningum. Er svo ekki
að orðlengja það, verkið var haf-
ið af mikium eldn'óði og urðu
ýmsir til að leggja Valkyrjum
lið við byggingu „Dyngju” og
sóttist verkið bæði fljótt og vel.
Valkyrjur hafa sótt mörg
skátamót, bæði innanlands og
utan og staðið fyrir Vestfjarða-
mótum skáta í samvinnu við Ein-
herja. Þá hafa þær og í sam-
vinnu við Einherja, staðið fyrir
foringjanámskeiðum fyrir skáta
á Vestfjörðum.
Á fyrstu árum félagsins stjórn
uðu Valkyrjur ylfingasveit
drengja, en urðu brátt að hætta
því, þar eð aðsókn telpna á
aldrinum 9—11 ára varð svo
mikil, að ákveðið var að stofna
Ijósálfasveit og var sú sveit form-
lega stofnuð þann 9. apríl 1933.
Nú eru starfandi innan félags-
ins Ijósálfasveit, tvær skáta-
sveitir, dróttskátasveit, sem
starfar í samvinnu við Einherja
og svo svannasveit, en í henni
eru Valkyrjur 17 ára og eldri.
Valkyrjur hafa ætíð verið við-
búnar að leggja hvers kyns mann
úðarmálum lið og hafa t. d. Um
árabil annast merkjasölu fyrir
SÍBS og sölu mæðrablóms á
14 22. maí 1968 - ALÞÝÐU3LAÐIÐ
mæðradaginn.
Þá er það og orðinn fastur
liður í starfi Valkyrja, að að-
stoða Einherja við afgreiðslu
fermingarskeyta.
Ksf. Valkyrjan minnist 40 ára
afmælis síns með ýmsu móti.
Þann 17. maí var afmælisfagn-
aður fyrir allar starfandi Val-
kyrjur og nokkra gesti í Skáta-
heimilinu, en 18. maí var á sama
stað afmælisfundur, fyrir eldri
Valkyrjur.
í júnií gangast skátafélögin
á ísafirði, Valkyrjan og Einherj-
ar fyrir skátamóti í nágrenni
ísafjarðar, til þess að minnast
40 ára skátastarfs á ísafirði, en
Einherjar urðu sem kunnugt er
40 ára þann 29. febr. s.l.
Loks má geta þess, að Skáta-
þing, en það er ársþing Banda-
iags ísl. sk^ta, verður haldið á
ísafirði í júní.
í stjórn Valkyrjunnar eru:
Auður H. Hagalín, félagsfor.
Una Halldórsd., aðst.fél.for. -
Elín Sigurðard. gajldk.
Ásthildur Ólafsd., ritari.
Ingibjörg S. Einarsd. meðstj.
Sveitarforingjar eru nú:
Bergþóra Annasdóttir
Þórhildur Oddsdóttir
Berta Gunnarsdóttir
Kristín Karlsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Guðríður Sigurðardóttir
Sigríður Gunnarsdóttir
Lög & réttur
Framhald af 2. síðu
kynforeldra. Má taka það úr
umsjá þeirra á sömu forsendum
og barn, sem tekið er úr umsjá
kynforeldra. Hin sama vernd og
aðstoð ætti að nægja jafnt kjör
foreldrum og kjörbörnum sem
kynforeldrum og börnum þeirra
enda munu varla dæmi þess, að
ættleiðingu hafi verið riftað hér
á landi. Vandamál kjörbarna og
kjörforeldra eru leyst hér á
sama hátt og þegar kynforeldr
ar og börn þeirra eiga í hlut.“
Þess skal að lokum getið, að
hafi hjón ættleitt barn saman,
tekur niðurfelling ættleiðingar
til þeirra beggja, enda þarf þá
samþykki beggja hjóna — og
kjörbarns sé um samkomulag
þeirra að ræða. — Annað hjóna
getur þó, þegar ríkar ástæður
eru fyrir hendi, krafizt niður-
fellingar ættleiðingar, þó að
hitt vilji hlíta brotum eða ann
mörkum kjörbarns, þeim er nán
ar greinir. Svo má og í vissum
tilvikum fella niður ættleiðingu,
þó að lestir eða gallar varði að
eins annað kjörforeldri. Krefj
ast má þess, að ættleiðing verði
niðþr felld vegna annmarka
kjörbarns, þó að aðeins öðru
k.iörforeldri hafi verið um á-
gallana kunnugt, en þó ekki eft
ir kröfum þess kjörforeldris
eins.
Þess er og skylt að gela, að
reynist kjörbarn haldið geð-
veiki, vera fáviti, haldið öðrum
verulegum andlegum eða lík-
amlegum annmarka, alvarlegum
og langvarandi sjúkdómi, og‘
ætla megi, að það hafi verið
haldið annmarka þessum eða
sjúkdómi fyrir ættleiðingu, og
jafnframt að kjörforeldri hafi
þá ekki verið um þetta kunn-
ugt, þá má kjörforeldri krefj-
ast þess, að ættleiðing verði
felld niður og skal að jafnaði
gera slíka kröfu innan 5 ára frá
da^setningu ættleiðingarleyfis-
Dómstólar fjalla um niðurfell
ingu ættleiðingar hér á landi,
þó að stjórnarvöld (dómsmála-
ráðuneytið) veiti ættleið
ingarleyfi. Það er líka dóm-
stóla að meta forsendur æt.tleið
ingar, ef á reynir. G. A.
Afli
Framhald af 7. síðu,
Aflinn í einstökum verstöðv-
um í apríl:
Patreksfjörður 1968 1.497 lestir
1967 (1.155 lestir)."
Tálknafjörður 763 lestir 1968.
1967 (651 lest).
Bíldudalur 371 lest 1968.
1967 (498 lestir).
Þingeyri 503 lestir 1968.
1967 (422 lestir).
Flateyri 650 lestir 1968.
1967 (579 lestir).
Suðureyri 877 lestir 1968.
1967 (1,321 lest),
Bolungavík 997 lestir 1968.
1967 (1.426 lestir).
Hnífsdalur 474 lestir 1968.
1967 (683 lestir).
ísafiörður 1,447 léstir 1968.
1967 (1.759 lestir).
Súðavík 214 lestir 1968.
1967 (273 lestir).
S. Helgason hf.
Samtals 7.766 lestir 1968
Samtals 1967 (8.767 lestir).
Janúar / marz 10.734 lestir 1968
Janúar/marz 1967 (15.5791estir).
Samtals 1968 18.500 lestir.
Samtals 1967 (24.346 lestir).
RÆKJUVEIÐIN.
Rækjuvertíðinni við ísafjarðar-
djúp lauk í lok apríl, og höfðu
þá borizt á land 1.194 lestir frá
vertíðarbyrjun. Er það lítið eiít
minni afli, en barst á land á ver
tíðinni 1965 til 1966, en þá varð
aflinn 1201 lest, sem er mesti
áfli, sem borizt hefir á land á
einni vertíð. Þá stunduðu 17 bát
ar veiðar, en í vetur hafa lengst
af verið 23 bátar. Ágæt veiði
var, þegar hætt var, og hefir svo
verið í allan vetur. Hefir rækjan
aldrei veiðzt á iafn stóru svæði
í Djúpinu, eins og í vetur.
Aflinn í apríl var 302 lestir,
og voru aflahæstu bátarnir: Ás-
dís 15,2 lesíir, Ver 14,7 lestir,
Kveldúlfur 14,3 lestir, Jódís 14,0
lestir, Einar, Farsæll og Hrímnir
allir með 13,6 lestir.
Frá Bíldudal voru gerðir út
5 bátar til rækjuveiða, og nam
heildarafli þeirra 75 lestum.
Voru allir bátarnir með um 15
lestir í mánuðinum, enda höfðu
þeir fengið leyfilegan dagsafla
allan mánuðinn.
Frá Drangsnesi og Hóimavík
voru gerðir út 6 bátar íil rækju-
veiða. Varð heildarafli þeirra f
mánuðinum 33 lestir, og var
helmingi aflans landað á hvorum
stað. Aflahæstu bátamir þar
voru Guðrún Guðmundsdóttir
með 6,1 lest, Guðmundur
með 4,9 lestir og Víkingur með
4,7 lestir. Rækjuvertíð við
Húnaflóa lauk í apríllok.
Mótmæli
Framhald af bls. 2.
heldur eigi þeir einnig að vera
fyrirmynd hins almenna vegfar-
anda í umferðinni, því þeir eiga
auðvitað að vera fróðastir um
umferðarmál og kunna gleggst
skil á því hvernig á að haga
sér. V. G. K.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
BRAUÐHUSID
SNAC K BAR
Laugavegi 126,
sími 24631.
Hjartans þakkir fæmm við öllum fjær og nær, sem sýnt
hafa okkur samúð og vinarhug, við andlát og jarðarför eig-
inmanms míns, 'föður okkar, sonarbróður og tengdasonar,
JÓHANNS GÍSLASONAR, deildarstjóra.
Vilborg Kristjánsdóttir,
Jóhann Gísli, Heiða Elín, Guðrún, Kristján,
forcldrar, systkin, og tengdamóðir.