Alþýðublaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 12
Sjómannadagurinn 1968
Fiskiskip framtíðarinnar
Framhald af bls. 5.
— Hvað er að segja frá Fær
eyjum?
— Mér er ekki fullljóst,
hvað þar hefur gerzt nú tvö
hin seinustu ár, en þar á
undan komu þeir sér upp á-
gætum skipum af nokkuð
breytilegri gerð svo sem til
síldveiða, iínuveiða og há-
meraveiða á mjög fjarlægum
miðum. Þessi floti er sem nýr
og vel til útbúnaðar vandað.
— Einhver fleiri dæmi frá
öðrum þjóðum?
— Svíar og Danir hafa nú
hafið síldveiðar með kraft-
blökkinni, en enn í mjög smá
um stíl. Ingmar Johannsson,
sá heimsfrægi boxari var braut
ryðandi í Svíþjóð á þessu
sviði. Danir hafa nýlega eign-
azt. mjög vandað síldveiðiskip
með sjókælingu.
Auðvitað eiga Englendingar
og Þjóðverjar mikinn fjölda
nýtízkulegra skipa af ýmsum
gerðum, sem alltof langt er
upp að telja. En mér finnst
athyglisvert hversu margar
nýjar þjóðir hafa komið sér
upp skuttogurum og sækja nú
út á hafið til fiskveiða og
vinna fiskinn til fulls um
borð- Hér mætum við gersam-
lega nýjum keppinautum og
er ekki séð fyrir endann á
því. Það er bláköld staðreynd,
að yfirburðir okkar eru ekki
lengur til sem fiskveiðiþjóðar
með séraðstöðu við afburða
fiskimið, eftir að hinir stóru
skuttogarar komu til sögunn
ar sem fullvinna fiskinn úti á
miðunum. í þessu sambandi
vil ég nefna, að á sl. ári gafst
mér kostur á að skoða útgerð-
arfyrirtæki á Spáni í VIGO,
sem á nú 63 togara, þar af
nokkra glæýja skuttogara allt
að 3000 tonn, og þetta fyrir-
tæki hefur samtals um 1500
manns í vinnu hjá sér. Fyrir-
tækið er 25 ára gamalt og til
gamans má geta þess, að að-
aleigandinn sendi son sinn tfl
íslands til þess að læra hér
um útgerð og dvaldi þessi
maður hjá B.Ú.R. um nokkra
vikna skeið árið 1949. Spán-
verjar eiga nú mjög glæsileg-
an togaraflota og erum við svo
langt á eftir þeim, að ég reyni
ekki að tilgreina það.
Fjölda margar aðrar þjóðir
eiga nú skuttogara eins og ég
sagði áður og veiða frá Norð-
uríshafi til Indlandshafs hin-
ar ýmsu fisktegundir með góð
um árangri.
— Hvað um að auka fjöl-
breytni í fiskveiðum okkar?
— Ég hefi sagt það áður, að
mér finnst við eiga að leggja
áherzlu á matvælaframleiðslu,
því að nær einn þriðji mann-
kyns sveltur og við erum vopn
laus og friðarsinnuð þjóð.
Enginn vafi er á því, að með
aukinni tækni í veiðum og
kunnáttu um alla meðferð og
möguleika til þess að nýta afl
ann þegar til fulls um borð,
þá munu menn fyrr éða síðar
auka fjölbreytni í öflun fisk-
tegunda. I þessu sanabandi vil
ég nefna, að ég sá í VIGO á
sl. sumri hversu þessar suð-
lægu þjóðir gernýta allt, sem
innfyrir kemur í nýju skut-
togurunum. Þær hafa mögu-
leika til þess að veiða fleiri
fiskitegundir en við og virð-
ast geta komið öllu í verð.
— Telur þú von á nýjum
veiðiaðferðum?
— Það er vitað mál, að víða
er unnið að því að fullkomna
veiðitækni. Þegar hafa komið
til sögunnar hjálparveiðitæki,
sem knúin eru rafmagni og
einn góðan veðurdag þarf eng
um að bregða, þótt tilkynnt
væri hrein bylting á þessu
sviði. Mér virðist þó, að fram-
vinda í þessum efnum muni
sem á fleiri vísindasviðum
koma fyrst og fremst frá stór-
þjóðunum.
— Virðist þér vaxandi áhugi
hjá stórþjóðunum á fiskveið
um?
— Það geta ekki talizt ýkj-
ur, þótt sagt sé, að um hreina
stefnubreytingu sé að ræða í
þeim málum hjá mörgum stór-
þjóðum. Ég vil benda á, að
Kanadamenn eru að leggja
fram 40 milljónir dollara í
fiskiskipaflota og vinnslustöðv
ar til þess að auka veiði hjá
sér. Þeir hafa verið harðir
keppinautar okkar á banda-
rískum markaði í mörg ár.
Bandaríkjamenn héldu mikla
fiskisýningu á sl. hausti og
höfðu uppi geysilegan áróður
fyrir aukningu á þessu sviði.
Á vesturströnd Spánar er um
byltingu að ræða á sl. 5 ár-
um. Allir vita um hina stór-
kostlegu aukningu hjá Rúss-
um og Japönum. Einnig hafa
nær allar nágrannaþjóðir okk
ar stóraukið sinn fiskveiði-
flota og eiga allar þessar þjóð
ir nú miklu betri og fjölbreytt
ari fiskiskip, stór og smá, en
við. Frá Brasilíu og Argentínu
koma þær fregnir, að þeir
munu nú á næstunni marg-
falda sitt veiðimagn. Ekki
þarf að minna á hversu fer-
leg aukning hefur orðið x
Perú, bví að það eru einmitt
síldveiðar þeirra, sem velgja
okkur hvað mest í dag. Svona
mætti lengi halda áfram.
— Er þá útlitið svart fyrir
okkur?
— Bæði og, mætti segja. Okk
ar gæfa liggur í mjög mik-
illi verkkunnáttu sjómanna
okkar, og enginn sjómaður 1
heiminum dregur neitt svipað
magn á land á ári sem hinn
íslenzki, en skipulag fisk-
Hvað snertir sjálft útlitið um
framtíð okkar í fiskveiðum
vil ég segja, að við eigum ekki
að þurfa að kvíða neinu, ef
við sjálfir spillum ekki fyrir
okkur með sundurþykkju,
innbyrðis vandræðum og skiln
ingsleysi á gildi starfsgrein-
arinnar.
— Hvað viltu segja mér að
lokum um framtíðarskipið?
— Ég tel mig ekki geta spáð
um framtíðarskipið, þótt góð
dægrastytting sé að velta
vöngxun yfir þróun í þessun^
efnum. Hitt má ljóst vera, að
áframhald verður öruggt í þá
átt, að leita að heppilegasta
skipinu, er hentar bezt við þá
veiðiaðferð, sem því er ætluð-
Það er nú liðið, að menn haldi
í fast form á skipunum, sem
betur fer. Sjónarmið hag-
kvæmni og árangurs ráða
stefnunni í þessum málum.
Það nýjasta, sem ég veit um
á þessu sviði, er skip, sem
Rússar hafa nú hleypt af stokk
unum, en b?ð er raunverulega
tveir skín'bolir með mikilli
brú, er tengir bolina saman.
.......................................................................................
FÉLAG ÍSLENZKRA RAFVIRKJA
beztu hamingjuóskir á
Sjómannadaginn
(>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii(i,iiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii,l,,llll,,li,ll,lll,lillllllllllllllllllllllllllll)lll)llllliiiiiii|(i(<fii
Árnum öllum sjómönnum og fjölskyldum
þeirra allra heilla í tilefni af sjómannadeginum
og vonum að gæfa fylgi hinum þjóðnýttu
störfum þeirra.
-o/
STRÖNDIN hf.
síldarsöl tunarstöb
Seyðisfirði.
Tökum síld til söltunar.
Kappkostum góða afgreiðslu.
Árnum öllum sjómönnum heilla á sjómanna-
daginn og gæfu á komandi sumri.
Söltunarstöðin DRÍFA
Neskaupstað.
.................................................................. ii ii iiiiiumi i^l
Alþýðusamband Vestfjarða
beztu hamingjuóskir á
Sjémannadaginn
tlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllIlllllM