Alþýðublaðið - 21.07.1968, Síða 1
r
Er hreinsunardeildin komin í endanlegt frí?
Fyrir skömmu var þeirri spurningu varpað fram
hér í blaðinu hvort Tjörnin í Reykjavík væri hættu-
leg vegna óþrifnaðar og hvernig hreinsun hennar
væri háttað. Borgaryfirvöldin gáfu enga skýringu.
Nú er svo komið að vart verður við unað. Skíturinn
og óþrifnaðurinn í Tjörninni er að verða ýfirgengi-
legur. Slý og allskyns rusl safnast saman í hornum
Tjarnarinnar og á góðviðrisdögum leggur af henni
megnan ódaun. Eftir stórstreymi fyrir skömmu
hringdi maður til okkar og sagðist hafa séð saur á
floti í vatninu.
á leið um borginia. Rusiið og
draslið víða á götunum ber
vott um heldiur slæma frammi
stöðu borgaryfirvaldanna. í
fyrradag birtust hé,r í blaðinu
inokkrar myndir þessu ti'l stað
festingar. Síffian hefur lítil bót
orðið á og götusóparar sjást
varla. Er mögulegt að hreins
unardeild borgarininar hafi
verið gefið endanlégt írí?
Útlendingar, sem leið eiga
fram hjá Tjörninni furða sig
á ólyktinni o>g Breti einn er
hér dvaldist fyrir nokkrum
árum, etn er hér á ferðalagi nú
Vinsæll reykur
Síldarflutningaskipið
Síldin kom með fyrsta
farminn til Reykjavíkur
í fyrrakvöld og í gær
morgun var bræðslan þeg
ar koimin í fullan gang í
síldarverksmiðjunni í Ör-
firisey. •
kom að máli við einn blað-
rnann blaðsins fyrir skömmu
og kvað áberandi, hve Tjörn
in væri óþrifaLegri nú en fyr
ir 10 árum. Því er þelta nefnt
hér að glöggt er gestsaugað,
og þarf raunar ekki glöggt
'auga til að sjá óþrifnaðinn;
hver sem gengur niður affi
Tjöm kemur auga á hann.
Tjörnin er vinsæll leikvang-
ur barna. Þ.au vaða berfætt í
leit að hornsílum í þessum ó-
þrifnaðarpytti. Allir skynsam
ir menn hljóta að sjá hvaða
hættu slíkur óþrifnaður býð-
«r heim. Það er vel mögulegt
að Tjörnin í Reykjavík sé pest
arbæli og smitberi.
Tjörnin er ekki það eina sem
vekur furðu hjá fólki er það
Skemmtiíerð
Vegna skemmtiferðar
starfsfólks kemur Alþýðu-
blaðið ekki út á þriðjudag.
HAFA RtíSSAR HEYKZT
Á TAUGASTRÍÐINU?
MOSKVA, PRAG, 20. júlí. Boð
sovézka kommúnistaflokksins
til hins tékkneska í gær um
fund í byrjun þéssarar viku
er bein afleiðing af hinnj sam
hljóða traustsyfiríýsingu, sem
Aloxander Dubeck hlaut á
miðstjórnarfundiniim í gær,
og fyrsta hálfgildings viður-
kenningin á því, að ógnana-
stefnan gegn Tékkum hefur
ekki borið árangur, segja vest
rænir aðilar í Moskvu í dag.
Tass-fréttastofan birti boð
sovézka flokksins fáum mínút
um eftir, að fréttir höfðu bor
izt frá Prag um tnaustsyfir-
lýsingu miðstjórnarinnar, og
benda hin snöggu viðbrögð til
þess, að Sovétmenn hafi gert
sér grein fyrir, að taugastríð
ið hafi ekki borið árangur og
að nú sé rétt að bíða og láta.
raunsæið ráða.
Tékkneska fréttastofan Cet-
eka skýrir frá því, að brott-
flutningur sovézkra her-
manna hafi haldið áfram á
föstudag, eins og ráð hafðí
verið fyrir gert. Yfirmaðun
herafla Varsjárbandalagsins,
rússneski marskálkurinn Jabu
boskij, hélt flugleiðis til Moskva
í gær og allt' bendir til þess,
að brottflutnimgnum ljúkj um
helgina, eins og áður var upp
lýst.
Þótt Tékkar virðis-; hafa
fallizt á fund æðstu manna
flokkanna, er enn ekki ákveð
ið hvar funduirinn skuli hald
inn, en Rússar stungu upp á
Moskvu, Kiev eða Lvow sem
fundarstöð.um.
Forseti tékkneska þingsins
Framhald á bls. 14.
MEIST ARAMÓT
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum karla og kvenna
fer fram á Laugardalsvellinum á mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag. Rúmlega 100 íþróttamenn og konur munu þreyta
harða keppni um 29 íslandsmeistaratitla. Á Íþróttasíðu blaðs-
ins í dagrá bls. 11 eru spádómar um úrslitin í mótinu.