Alþýðublaðið - 09.08.1968, Page 9
Einn af beztu kunningjum Piu er heimsmaffurinn
og glaumgosinn Ove Slöör, frægur persónuleiki
úr sænsku samkvæmislífi. Hann er hér aff óska
vinkonu s'inni til hamingju meff stúdentsprófiff.
Sviðsmynd úr „Elviru Madigan". Pia lék ekki í
þessu hlutverki, heldur lifði það. Hún var í
rauninni hrifin af Thommy Berggren — og liann
af henni.
Pia, Bo Widerberg og Tliommy Berggren (t.h.),
en sá síffastnefndi lék aðal-karlhlutverkiff í
,,EIviru Madigan”. Myndin var tekin á kvik-
myndahátíðinn'i í Cannes, þar sem allra augu
beindust aff Piu. í þessari grein upplýsir hún.
aff hún hafi veriff milli helms og helju, þegar
sem mest gekk á.
um aff lienni gezt bezt að mönn-
um, sem eru tíu til fimmtán ár
um eldri en hún sjálf. „Þeir
vekja hjá manni öryggiskennd,“
segir hún. Úr þeim aldursflokki
kemur líka tryggasti fylginaut
ur hennar síðustu mánuði: Ove
nokkur Slöör, kunnur kaup-
sýslumaður og „sjarmör". Hann
ei’ umboðsmaður fyrir Yves Saint
Laurent auk þess sem hann sel
ur lóðir á Bahama-eyjum. Slöör
hefur oft verið orðaður við
Kristínu prinsessu.
— Ég er voða veik fyrir Ove,
viðurkennir Pia.
— Já, ég verð alltaf hrifnari
og hrifnari af honum með hverj
um degi, sem líður. Áður en ég
raunverulega kynntist honum,
þoldi ég ekki manninn. Hann
virtist kærulaus og stirfinn.
Sannleikurinn er þó sá, að hann
er viðfelldinn og umhyggjusam
ur. Hann sendir mér blóm og
bréf, eins og „kavalerarnir"
gerðu í gamla daga.
Pia Ðegermark er einnig með
al beztu vinkvenna Carls Gust
afs Svíaprins. Ef til vill- á frægð
arferlill Piu líka upphaf sitt að
rekja til myndar, sem tekin var
af þeim saman á dansleik ein-
um. Þá fóru menn fyrst að gefa
henni gaum fyrir alvöru. Prins
inn og Pia halda alltaf kunnings
skap og sjást oft saman á opin
berum samkomum og í sam-
kvæmum.
i
Engin kvenirétt-
indakona
PIA DEGERMARK er ekki ein-
asta gamaldags að því leyti, að
hún vill láta koma fram við sig
á sama hátt og hefðarkonur fyrr
á árum, heldur er hún jafnframt
nokkuð íhaldssöm í skoðunum.
Þegar hún útskýrir viðhorf sitt
til stöðu konunnar í hjónaband-
inu, fær hún áreiðanlega ýmsar
ágætar kynsystur sínar til að
reigja sig og hneykslast.
— Ég vil giftást manni, sem
er eldrí en ég, svo að ég geti lag
að mig eftir honum. Það er heppi
legast, að konan sé veikari aðil
inn í hjúskapnum. Annars ber
hún aðalábyrgðina eftir sem áð
ur, þannig að misstígi maðurinn
sig, tel ég það konunni að kenna.
Ég vil fá mann, sem lætur mig
finna til kveneðlis míns. Al-
mennilegan mann sem ekki hleyp
ur frám í eldhús til að kenna
mér, hvernig á að elda. Matseld
ina vil ég annast sjálf.
Annars er hjúskapur ekkert
aðkallandi vandamál fyrir Piu
Degermark. Hún hefur einfald-
lega ekki tíma til að velta vöng
um yfir honum. Að loknu stú-
dentsprófi í Sigtúnum — sem
hún lauk með ágætum í maímán
uði síðastliðnum byrjaði alþjóð
legur ferill hennar fyrir alvöru.
Fyrst hlaut hún hlutverk Nínu
í bandarískri kvikmynd, sem
byggð er á leikriti rússneska
stórskáldsins Anton Cshekov og
tekin er í Svíþjóð nú í sumar.
Síðan mun hún taka til óspilltra
Frh á 13. síðu.
Aðvörun til húseigenda
Vegna síendurtekinna kvartana viljum við hér
með ítreka aðvörun okkar til húseigenda við
auglýsingum ýmissa réttindalausra aðila um
húsaviðgerðir og benda húseigendum á að
ieita upplýsinga hjá samtökum byggingar-
iðnaðarmanna.
Meistarafélag husasmiða
Trésmiðafélag Reykjavíkur.
Staða námshjúkrunarkonu
við Röntgendeild Borgarspítalans er laus til
umsóknar. Upplýsingar gefur yfiriæknir
Röntgendeildar. Umsóknir, ásamt upplýsing
um um nám og fyrri störf sendist Sjúkrahús-
nefnd Reykjavíkur Borgarspítalanum fyrir .
20- Þ-m. i .iíJ JjftÍlI
Reykjavík 8. ágúst 1968 i
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Málmiðnaðarmenn óskast nú þegar
HÉÐINN
TJALDSAMKOMUR
Kristniboðssambándsins verða að þessu sinni
dagana 9.-17. ágúst, á hverju kvöldi kl. 8.30, í
tjaldinu hjá K.F.U.M.-húsinu við Holtaveg
(nálægt Langholtsskóla). Margir ræðumenn:
prestar, kristniboðar og leikmenn. Mikill söng
ur og hljóðfærasláttur. — Á fyrstu samkom-
unni í kvöld, föstudag, tala síra Frank M.
Halldórsson og frú Ásta Jónsdóttir o.fl. —
Allir eru hjartanlega <velkomnir.
Kristniboðssambandið.
Auglýsingasíminn er 14906
BLÓM
Komið og sjáið blómaúrvalið, eða hringið.
Við sendum.
GRÓÐRARSTÖÐIN
v/MIKLATORG
SÍMAR 22-822 og 1-97-75.
9. ágúst 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 0