Alþýðublaðið - 14.08.1968, Page 7
»mriTif iiti
4 h
flíí i fWf
a -fi’tnmiMtmifimfituuminmmmmti11111 i»ii mni juíuih»1 #;tni*tiei= 11
Hátíðarljóð 1968
26 óverðlaunuð ljóð
Útgefandi: Sverrir Krist'ínsson,
1968. 55 bls.
Þó meniti þættust verða hissa þurfti
engum á óvart að koma úx-slitin í
Verðlaunakeppni stúdent^félajgs háskólans
«m hátíðarkvæði lsta desembers 1968.
Binkennilegast í þessu máli var reyndar
að félagi iþessu skyldi koma til hugar
að Hlík keppni bæri árangur, halda að
fimmtíu ána afmæli fullveldisins, þó merk-
isafmæli sé, nægði til að koma mönnum í
verulegt kveðskap, gera sér í hugalund að
mn þessar mundir væri yfirleiitt stemning
fyrir hátíðarkvæSum meðal skálda .eða
annarm. En úr því menn eru þessarar trú
ar i háskólanum má að vísu gera aðra til
raun að ári og efna til kvæðakeppni út
af tuttugu og fimm ára afmæli lýðveld
ísins og tuttugu ára aðild okkar að Nato.
Kvæði þau sem getur að líta í nýút-
Komnu kveri með 26 „óverðlaunuðum"
llátíðarl.ióðum þurfa engum að koma á ó-
Vairt iieldur, slíkur kveðskapur er sjálf.
sagt alveg óhjákvæmilegur hvert sinn sem
efnt er til slíkrar samkeppni á þjóðlegum
tyllidegi; engum hefur hins vegar nokkru
Binni dottið í hug að gefa hann út holt og
bolt fyrr en Sverri Kristjánssyni. En sá
leiði ljóður er á hók hans að þar eru alls
ekki öll kvæðin sem til keppni bárust, og
Verður hann enn leiðari ef sú saga er
rétt að meðal þess sem vantar í bókina séu
pæði beztu og verstu kvæðin úr keppn-
inni. Þar fyrir kunna þessi 26 hátíða-
kvæði að nægja til þess að gera lesendum
grein fyrir því liátíðarskapi, hug og við-
horfum sem komi mönnum af stað til að
yrkja á tímamótum sem þessum — fyrir
nú utan framavon og fjár.
Einis og nærri má geía er það fegurð
landsins og saga þjóðarinnar sem skáldum
verður hugstæðast, þrengingar hennar á
uimliðnum öldum og sú fullsæla sem
framundan sé að frelsinu fengnu ef fólk
aðeins aðhyllist og framfylgi þeim mann
dyggðum sem skáldin ákveða; margir yrkja
um fánann sem tákn alls þessa. Hér má
í stuttu ínáli fá yfirlit um sögu þjóðar-
innar, hefðbundin skáldlegan söguskiln-
ing:
Fagurt var ísland fyrir landnámsííma,
fiskur við land og skógi vaxin strönd.
Frjálsbornar lietjur vildu við það glíma
að veiða sér fisk og nota beitarlönd,
kveður Bjarni Guðmundsson frá Hörgs-
hoíti, en Einar J. Eyjólfsson, heldur sög
unni áfram:
Óðar tóku þeir að þrasa,
þvoði stálið ýta-blóð.
Kotr t ég þá í konungs vasa,
klökk af smán ég lotin stóð.
Þar fyrir brást landið ekki börnum sínum
að sögn Katrínar Jósepsdóttur:
Sem gjöful móðir gafst þú oss
þá gimsteina og beztu hnoss,
er til þá áttir — tókst þinn kross
frá toppi fjalls að ströndum.
Og 1918 uppskárust sigurlaun. H.J. Þórðar
son -'kveður:
Tigna skal þann eilífa anda,
sem eíldi með fólkinu bræðralag.
Trúin á fnamtíð fái að standa,
föðurlandi og öllum í hag. —
Treystum að samstarf og eining eflist,
einkaframtak og þjóðnýting. —
Fiiamleiðsla lands og hugsjón heflist,
'hagræðing, mennt og sjálfsvirðing.
En Lárus Salómónsson biður fyrir sér og
okkur hinum:
Gefi Guðs móðir
gjafir landsins börnum,
stækki stofnsjóðir
síærð í sókn og vörnum.
4ð vísu getur skyggt í álinn:
Hart má hnotbítast æ,
hvort í sveit eða bæ
hefði betur þar, vel eða ver.
Tekist þeitta og hitt,
tekis-t þitt eða mitt,
trúin ríkir og fegurðin hér,
kveður Björn If. Björnsson hvað sem hann
á itú við. Og Hugrún skáldkona orðar
nillilega fleiri skálda hug í bókinni þeg-
\r hún ákallar imd sitt og þjóð:
Sjáðu um að fólk þitt reynast mætti bet-
ur.
Um hitt þarf ekki að efast að henni
crða að fcæn sinni ef rétt reynist útlist-
tn Ármanns Dalmannssonar á eðli íslend-
igsins — eftirminnilegust vísuorð í bók-
’nni:
íslendingur er og verður
eins og hann var forðum gerður
Hann vill ekki haltur ganga
hafi hann fætur tvo jafnlanga. .
I
Og svo framvegis: bók þessi er saman-
afn þesskonar hátíðlegra flatmæla sem
'xykja við eiga, og eiga reyndar við, á minn
'ngardögum; hins vegar er þorri höfund-
tnna furðu óskáldlega vaxinn. En auðvitað
tekst mönnum misvel upp. Ég hygg að Þór
oddi Guðmundssyni frá Sandi láti íþrótt
hátíðakvæðisins einna bezt í sínu kvæði,
vsl kveðnu á hefðbundna vísu; en kvæði Þor
teins Valdimarssonar þykir mér fallegast
úr skáWskapur og mun það eflaust sóma
ér vcl á sínum stað í næstu bók hans. En
eru þetta verðlaunaverð kvæði á þjóðlegri
-•linnirisarhótíð?
Æinei: þó ofmikið væri að mælast til þess
að við eignuðumst nýjan þjóðfundarsöng
tó]ii-Hjátmars, nýja alþingishátíðarkantötu
Kiljans Ista desember 1968, er flestum hæg
’r rqmanburðurinn við alþingishátíðar-
kvæ*i Davíðs, lýðveldiskvæði Jóhannesar
úr Kötlum.
Bók þessi, Hátíðarljóð 1968, er Iítið hefti,
selt í verzlunum inniiokað í umslagi og
limt vendiieea fvrir. Kötturinn í sekknum
er líklega alkvæðaseðill sem útgefandi læt
u’ fvlgja. og heitir hann því kvæði sem
eittfaldur meirjhluti kaupenda“ telur vérð
íaunavert 10 þúsund krónum. Þetta er
uma upnhæð og stúdentafélag háskólans
hét í verðlaun í sinni ketxpni — og enn ein
>minning um lággengi Ijóðsins hér á
'andi um þessar mundir. Ég man nú ekki.
hver verðlaunin voru í svip tðri keppni
á alþingishátíð og lýðveldishátíð, en fé
mæti þeirra hsfur án efa verið mun
meira en 10 þúsund króna í dag; þess ber
og að gæta að ætla mætti að raunverulega
verðlaunavert kvæði yrði upp frá því á
hvers manns vörum, almenningseign í
landinu eins og raun hefur orðið um önn-
ur helztu hátíðakvæði. Hitt væri fróð-
legt að Vita hve mikið fé þyrfti til að fá
skáld til að yrkja slík kvæði. — ÓJ
skák. Verðlaunin eru 5 230 dál'ir
og að auki hlýtur sigurvegarinn
verðlaunagrip.
Að loknu mótinu í Colorado
flýgur stórmeistarinn Larsen til
Larsen teflir í Bandaríkjunum
Kanada til að taka þar þátt í
svipuðu móti.
Stórmeistaranum Spassky var
einnig boðið að taka þátt í mót
inu í Colorado, en hafnaði boð-
inu. Fann mun tefla úrslitaskák
ina við Korchnoj einhvers stað-
ar í Sovétríkjunum í næsta mán
uði.
Danski stórmeistarinn í skák,
Bent Larsen á marga vini og að
dáendur á íslandi. Eru þeir sjálf
sagt margir unnendur skáklistar-
innar hér á landi, sem gjarna
vildu vita, hvar snillingar eins og ♦
Larsen væru að tefla hverju
sinni. Larsen tekur þessa dagana
þátt í skákmóti í Colorade í
í Bandaríkjununt. Síðan flýgur
hann til Kanada til þess að taka
þátt í skákmóti í Coloraao
Bent Larsen fékk boð um að
taka þátt í mótinu í Colorado
skömmu eftir ósigurinn fyrir
Spassky á dögunum. Skákmótið í
Colorado hófst hinn 11. þ. m.
og stendur til 23. ágúst. Sigur
vegarinn hlýtur hinn svonefnda
opna bandaríska meistaratitil í
Fréttir í stuttu máli
NEW YORK (NTB). - Sovét-
ríkin hafa tilkynnt Sameinuðu
þjóðunum, að þau hafi nýlega
skotið upp 9 gervihnöttum í
visindalegum tilgangi. Þejr
bera númerin Kosmos 220-229.
LONDON (NTB). — Tilkynnt
hefur verið, að reisa- eigi í
London stærsta gistihús
Evrópu með 2.000 herbergjum,
fundasölum Og neðanjarðar
bifreiðageymslu. Stærsta gisti
húsið í Evrópu í dag er Ragert
Palaee í London með 1100 her-
bergjum.
★ Þessi fjölmenna og fánum prýdda blökkumanna liópganga var farin á vegum samtaka „Svarti pardusinn” og
var mótmælt réttarhöldum yfir cSnum meðlimi samtakanna sem grunaður var um morð. „Svarti pardusinn” helur komið á sam-
starfi við önnur félög blökkumanna í þeirri von að geta síðar meir stofnsett róttæk stjórnmálasamtök blökkumanna.
14- ágúst 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J