Alþýðublaðið - 30.08.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 30.08.1968, Blaðsíða 1
| Leyni- | I ákvæbin B Haft er eftir áreiðanleg- um heimildum að á Moskvu- fundinum um síðustu helgi hafi verið samin leynileg skuldbindingaskrá, sem Sov- étmenn hafi þó ekki látið tékknesku leiðtogana undir- rita. Upplýsingar um þessa leyniskrá' eru ekki tæmandi, ^n helztu ákvæði hennar munu vera þessi: 1. Tékkneski kommúnista- flokkurinn á að hafa meiri ráð en þjóðþingið og ríkis- stjórnin. 2. Ríkisstjórninni verði breytt. Öajek utanríkisráð- herra og Sik varaforsætis- ráðherra láti af embættum. 3. Ekkert verði gert við jfcá', sem unnu með innrás- arherjunum. 4. Tékkóslóvakía taki ekkl lán hjá vestrænum löndum eða aiþjóðbankanum. 5. Jafnframt því sem rit- skoðun verði tekin upp verði erlendum blaðamönnum, sem hafa gagnrýnt Sovét- ríkin, vjsað úr landi, en tékkneskum blaðamönnum, sem gert hafa hið sama, 'tt'ikið fvfi ^itarfum^. Tfekið verði upp strangt eftirlit með þeim erlendu blaða- mönnum, sem verða í land- inu. 6. Ferðalög til og frá land- i!nu verði háð ströngum reglum. 7. Samsk'ip'tii Tékkóslói- vakiu og Vestur-Þýzkalands verði hin sömu og samskipti Austur-Þýzkalands og Vest- ur-Þýjikalands. 8. Tékkóslóvakía skuld- bindi sig til þess að ráðg- ast við önnur Varsjárbanda- lagslönd um öll samskipti 'sín Við Vestur-Þýzkaland. 9. Tékkóslóvakía taki af- stöðu gegn stjórn Rúmeníu og Júgóslavju. 10. Tékkneski herinn verði að öllu leyti undir stjórn Varsjárbandalagsins. Dubcek, leiðtogi tékk- neskra kommúnista, er nú í kapphlaupi við tím- an að reyna að koma á Iaggimar nýrri flokksfor ystu í Tékkóslóvakíu, sem bæði Sovétmenn og Tékk ar geti fallizt á, en á hverri stundu má búast við því að sovézka her- stjómin úrskurði að hann sé ekki fær um að koma ástandinu í eðlilegt horf aftur og styðji aðra menn til valda í landinu. í gærkvöldi skýrðu starfsmenn*. stjórnarinnar ritstjórum og op- inberum embættismönnum frá ástandinu og sögðu meðal ann- ars að Varsjárbandalagsríkin fimm hefðú flutt átta þúsund skriðdreka og þúsund herflug- vélar inn j landið. Ráðuneytis- menn báðu í gær sovézk hern- aðaryfirvöld að hraða brottflutn- íngi hferliðsins frá Prag, en Fjöisón BRÚÐKAUP engín skýr svöi\ ínjúnu; ha£a fengist við þeirri málaleitan. Sovézkir hermenn og öruggis- lögreglumenn tóku í gær á sitt vald aðalskrifstofur rithöfunda- samtaka Tékkóslóvakiu, og er sagt að miklar skemmdir hafi Fþar orðið á húsinu. Rithöfunda- samtökin hafa lengi staðið í fylkingarbrjósti í þeirri bar- áttu fyrir frelsi, sem Tékkar hafa háð að undanförnu. Ritskoðun hefur nú verið tekin upp í landinu, en mörg ólögleg blöð koma þar þó enn út. í gær héldu tékknesku leið- togarnir áfram að reyna að skýra Moskvusamkomulagið fyrir þjóð- inni, og sagði Smirkovsky þing- forseti meðal annars í útvarps- Framhald á bls. 10 Brúffkaup norska ríkisarf ans, Haralds krónprins og Sonju Haraldsen, hinnar nýju krónprinsessu Noregs, setti svip sinn á borgarlífiff í Osló í gær. Götur og torg voru þéttskipuff fólki, sem hyllti ungu hjónin á leiffinni frá hinni gömlu dómkirkju í Osló til konungshallarinnar aff lokinni hinni einnar klukku stundar löngu hátífflegu at höfn í kirkjunni. Leiffin, sem brúffhjónin fóru var fagur lega skrýdd blómum og fán um. Við höllina mynduffu 2.800 hermenn úr 30 herfylkjum heiffursvörff. Haraldur krónprins kom til kirkjunnar ásamt svaramanni sínum klukkan 16.30. í bíla lestinni frá konungshöllijinni til Framhald á bls. 10 Myna pessi var teiun í rvautnoisviK í gær. SJOIFOS Sjóbaðstaðnum við Nauthólsvík hefur verið lokað vegna mengunar í sjónum í Skerjafirði. Skolp eink um frá Kópavogi en einnig frá Reykjavík veldur þessari mengun. Skolpútrás frá Reykjavíkurborg, sem liggur út í Skerjarfjörð, nær enn ekki nema í fjöruborð. Borgarlæknir telur þá mengun í Skerja- firðinum, sem nú hefur orðið vart, ekki vera gamla. Gatnamálastjóri segir, að borgaryfirvöld hafi vitað fyrir, að það hlyti að koma að því að mengun ykist í Skerjarfirði. Mengum sjávarins í Skerja- firði er nú orðin svo mikil, að í fyrradag sá borgarlæknir óstæðu til 'að loka sjóbaðst'aðtnum viff Nautthólsvík. Mengunin er mest Kópavogsmegin tí SWerjafirffin- un und'an Kársnesi og svo Reykj'avíkurm'egin frá olíustöð Skeljungs að Fossvogslæk. íþrótrtaráð Reykjavíkur sendi blaðinu eftirSarandi frettatil- 'kynningu í gær: „Sjóbaðstaffn- um við Nauthólsví'k verffur að þessu 'S'inni lokað frá og með 1. ■september." Eins og undanfartn suraur (hefur (staðurinn verið mjög fjölsóttur alla sólardaga og er áætlað að 14.000 manns 'hafi sótt istaðmn í sumar. Starfsmienn borgarlæknisem- Ibættisins hafa eins og undanfar in sumur fylgzt með mengun sjávarins og um miðjan ágúst •var rnengun og gerla magn 'hans orðið það mikið, að ráðlagt var að hætta sjóböðunum. Síðan Ihefur staðurinn eingöngu verið notaður til sólbaða. Að lokum skal tekið fram, að öll umferð ökutækja um stað inn er bönnuð. Frétitamaður hafði samband við gatrtamálastj órann d Rvík 'Varðandi þetta mál í gær. Hann 'sagði, 'að vitað hafi verið fyrir ifrlam, að það hlyti að koma að Iþví að mengun sjávarins í Skerjafirði ykist verulega eink um með tilkomu njTra íbúða- 'hverfa í Fossvogi og í Breið- Iholtshverfi. Nú væri beðið eftir niðurstöðum rannsókna, sem gerðar voru í fyrraisumar og í sumar, á straumum í firðinum með tiHiti til þess, hve langt út í firðinum og hvar útrás skolps frá borgarlandjinu skal liggja. Kvað 'hann þessar rannsóknir á straumum í Skerjafirðinum iha'fa verið gerðar í samvinnu við yfirvöld í Kópavogi og Garðahreppi. Ennfremur sagði gatnamálastjóri, að fyrirhugað ar væru enn víðtækari rannsókn ir í sjó kringmn borgarlandið, með tilliti til þess að forða mengun. Varðandi skolpútrásina frá Reykjavíkurborg, sem liggur út í Skerjafjörð, sagði gatnamála Framhald á 14. siðu. Föstudagur 30 ágúst 1968 — 49- árg- 170. tfal.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.