Alþýðublaðið - 08.09.1968, Blaðsíða 16
FRUMVARP
til laga um almennan
sparnað og tekjuöflun
1. gr.
Hér með tilkynnist öllum. auðgum sem snauðum,
ofan jarðar og neðan, lifandi og dauðum,
að hverjum og einum er uppálagt að' spara
allt sem þeir geta og dálítið meira til vara.
2. gr.
I sérhverri stofnun skal regla og skipulag ríkja
og ráðdeild og sparsemi bruðli til hliðar víkja,
en sultarólin hert á þeim holdugu og feitu.
Og hér eftir skulu alllr þvo sér úr keitu. t
, 1 ; n
3. gr.
Skylt skal öllum, yfirmönnum sem þjónum
undirdánugum, templurum jáfnt sem rónum,
að vera ófullir einn dag í viku hverri,
en undanþágur skulu þó veittar í þerri.
- !
4. gr.
Leggja skal skemmtanaskatt á það fyrirbæri,
er skilgreinist undir hlátur á almannafæri,
og til þess að ná inn auknu aðstöðugjaldi,
skal innheimta það af lauslæti og framhjáhaldi.
5. gr. ,__
Er hafðnar í ári má bænina ekki bresta,
því ber að auka og margfalda tölu presta,
en hverskonar skóla og læri leggja niður
og láta brjóstvitið ráða, sem fyrr var siður.
6. gr.
Þá er og mál, þegar minnkar seðlaforðinn
og menningargetan, að spara stóru orðin,
en leggja þau inn á reikning. ríkistryggðan
af ráðum og nefndum og stjórnum yfirskyggðan.
7. gr.
Kjósa skal nefnd, sem kjósa skal nefnd, sem skal gera
kröfur um frekari sparnað, en ríkið skal bera
allan kostnað um eilífð af nefndanna störfum,
item fullnægja tóbaks- og brennivíns þörfum.
í mörgum erlendum blöðum
víkja þeir menn að því, sem
um stjórnmál og þá heimsvið-
burði skrifa, sem áhrif hafa
á gang heimsmálanna, mjög
títt að því, að á þeim tíma er
Humphrey var öldungardeild-
arþingmaður hafi hann fengið
á sig fyrir gáfur og góða fram
komu.
Vísir.
Því miður kunna fáir að fara
með peninga. En það er nú líka
dýrasta nám sem hægt cr að
leggja stund á .
Það er eins með manninn
og þorskinn. Hann mundi
aldrei lenda ■ í erfiðleikum ef
hann hefði vit á að halda
munninum aftur.
Sigga systir fór út að skemmta
sér um daginn. Þegar hiin kom'
aftur sagði ég. Heyrðu það cr
lykkjufall á sokknum þínum.
Iss, eins og það geti ekki alltaf'
komið fyrir, sagði hún. Já, cn
það var á hinum sokknum þeg'
ar þú fórst, sagði ég. Sú varð
spæld mar.
Mér skilst nú að Tékkar
megi ennþá segja meiningu
sína, a. m. k. um vcðrið.
h
VELJUM ÍSLENZKT 7
ÍSLENZKUR IÐNAÐUR
<3Ssjggæsnrsi©ian
Síðumúla 12
Sími 38220 - Reykiavík