Alþýðublaðið - 15.09.1968, Side 3
Svo er að heyra á Magnúsi
Kjartanssyni, Ragnári Arnalds
og fleiri slíkum spekingum,
að það sé hrein goðgá að
kalla nokkurn mann kommú-
nista. Þeir þykjast allir vera
lýðræðissinnaðir sósíalistar
eftir tékkneskri fyrirmynd og
minna á, áð orðið kommúnisti
hafi oft áður verið notað sem
skammaryrði.
Það er að vísu rétt, að ýms
hugtök í stjórnmálum eru tek
in að ruglast og orð eru not
uð án þess að fólk gerj sér
nákvæma grein fyrir þýðingu
þe'rra. Þar á meðal eru hug
tök eins og sósíalisti og
kommúnist'. Þetta má þó ekki
verða til þess, að kommúnist
ar losni víð þau óþægindi að
vera nefnd ,r réttu nafni.
Hverjir eru kommúnisíar
á íslandi?
Rétt er að fara alla le'ð aft
ur til ársins 1930 og minnast
þess, áð þá klufu kommúnist
ar sig út úr Alþýðuflokknum.
Þeir mynduðu nýjan flokk,
sem gekk undir réttu nafni og
liét Kommún'staflokkur ís-
lands. Aðalforingjar hans
voru þeir Brynjólfur Bjarna-
son og Einar Olgejrsson, og
munu hvorki þeir eða félagar
'þeirra hafa amazt við því, að
vera kallaðir kommúnistar.
Þeir hafa án efa brosað í
kampinn yf jr því, að kommú-
nistaheit'ð var notað sem
skammaryrði á alla þá, sem
þóttu um of róttækir.
Árið 1938 sameinuðust
Kommúnistaflokkur íslands og
stuðningsmenn Héðins Valdi-
marssonar úr Alþýðuflokkn-
um. T 1 varð nýr flokkur, Sam
ein'ngarflokkur alþýðu1 só
síalistaflokkurinn. Eftir fá ár
hraktist Héðinn úr flokknum,
en formgjar gamla kommú-
njstaflokksins náðu þar öllum
völdum. Fiokksblaðið skr faði
eins og hreint kommúnjsta-
blað. tók upp hanzkann fyrir
Sovétríkin og hinn alþjóðlega
kommún;sma, varði og veg-
samaðj ógnarstjórn StaFns. Er
því ekk' að furða, þótt algengt
yrði, að foringjar og jafnvel
ýmsir fylgjsmenn Sósíalista-
flokksins vær.u kallaðir komm
únistar. Smám saman skipt'st
þessi fiokkur þó í margar klík.
ur, og voru sumar þe'rra mis
munandi greinar kommúnis-
ma, en aðrar skipaðar mönn-
um, sem í raun réttri \-oru
ekki kommúnistar, þótt þeir
væru í flokki und'.r stjórn<
kommúnista.
Klofningurinn 1938 var mik
ið áfall fyrir Alþýðuflokkinn,
svo að honum var oft spáð
dauða næstu árin. E'n ásæðan
fyrir því, að Alþýðuflokkur
inn re?s v ð var sú augljósa
staðreynd, að kommúnistar
réðu lögum og lofum í Sósía-
listaflokknum, sérstaklega
eftir brottför Héðins. ICom
■ fram sú hugmynd, að einangra
eru Kor
þyrfti hina eiginlegu kommú-
nista með tengsl þeirra v ð
ríkin austan járntjalds og all
ar kreddur. Aðra vinstrimenn
og verkalýðssinna þyrfti að
sameina í einum flokki, sem
menn trúa að yrði fljótlega _
eins sterkur og jafnaðarflokk-
ar h'nna Norðurlandanna.
Eftir að Hannibal Valditnars
son hraktist úr Alþýðuflokkn
um, reyndi hann að gera þenn
an dra.um að veruleika með
því að taka saman höndum við
Lúðvík Jósefsson og fleir for
ingja í Sósíalistaflokknum. Al.
þýðubandalagið byggðist á
þeirri fyrirætlan að kljúfa Só
síaljstaflokk'nn ■ og einarígra
kommúnista. ’ Nauðsynlegt
þótt' að losna við Einar, Brynj
ólf og nánustu samstarfsmonn
þeirra og skílja eftir hjá
þeim sambandið við Moskvu.
Yrðu menn síðan að velia á
milli, hvort þeir vildu vera í
litlum og hreinum kommú-
nistaflokki, eða hinu nýja Al- |
þýðubandalagi.
Til að framkvæma draum
sinn hefði Hannibal þurft að
fá með sér nokkra þingmenn,
helzt me'rihluta þeirra undir
for.ustu Lúðvíks. Þetta fékk
hann ekki. Þeir brugðust hon
um ár eft'r ár, og reyndust
ekki fáanlegir til að siíta
tengsl sín við kommúnista-
kjarnann.
Nú ætla þessir menn að kór
óna svik sín við Hannibal með
því að leggja Sósíal'staflokk-
inn niður og ganga alí'r í Al-
þýðubandalagið. Það er ekki
ætlunin að skilja kommúnista
eftir, heldur taka þá með.
Þess vegna jafngildir þetta
nafnbreytingu á Sósíalista-
flokknum — öðru ekkb
Undanfarin ár hefur orðið
margvíslegur ágreiningur í
röðum Sósíalistaflokksins og
þar hafa starfað margar mis-
munandi klíkur. Enn sem fyrr
er.u margar þeirra skipaðar
kommún'stum, sem sumir eru
hollir Moskvu, sumir Peking. f
öðrum klíkum eru menn, sem
ekki eru sannfækðír kommú-
nistar og gætu eins verið í
öðrum vinstriflokki.
Þegar rætt er um þennan
hrærigraut er auðvelt að rugla
venjulega menn í ríminu og
segja þeim, að fáir eða eng'r
þessara manna séu komrnú-
njstar. En það breytir ekki
þeirri staðreynd, að hópur
kommúnista stjórnar Sósíalista
flokknum, Þjóðviljanum og
MOSKVA: Frá því hefur
verið skýrt í sovézkum
blöðum, að á fund; Cern-
iks, forsætisráðherra Tékkó
slóvakíu, með sovézkuin
ráðamönnum í siðustu
viku, hafi ver'ð ákvkeðið
að auka innflutn'.ng Sovét
ríkjanna á olíu og hveiti
til Tékkóslóvakíu að mikl
um mun.
fyrlrtækjum flokks'ns, þótt
þeir vilji helzt ekki láta nefna
sig því nafni í dag.
Æskulýðsfylkingin er onjn-
skárri en h nir eldri. Hún lýsti
ekki samúð með tékkóslóva-
kísku þjóðunum eftir innrás-
ina, heldur með kommúnista-
flokki Tékkóslóvakíu. Þor-
valdur Þórarinsson hafði hug
rekki til að segja skoðun
sína umbúðalaust.
En fjöldi forustumanna í
þessu liði reynir að villa á sér
heimildir, mótmælir kommú-
nistanafninu.
Það er enn nauðsynlegt að
skilja kommúnista frá lýðræð-
issósíalistum. Eftir innrás.na í
Tékkóslóvakíu er ekkj erfitt
að greina skilin á milli.
Benedikt Gröndal.
KJÖRDÆMISRÁÐ
VESTURLANDS
Kjördœmisráð Alþýðuflokksins í Vesturlands-
kjördæmi kemur saman til fundar sunnudag-
inn 22. september næstkomandi kl. 2 í Hótel
Borgarnesi.
Benedikt Gröndal alþingismaður mun flytja
yfiirlit um stjórnmálaástandið.
Stjórnin.
I
14. sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIO J