Alþýðublaðið - 27.09.1968, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 27.09.1968, Blaðsíða 5
27- september 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Söttun Framfaald bls. 1! nóg framboð af karlmönnum og óvönum stúlkum, en þörf þeirra fyrir vanar stúlkur væri mjög brýn, þar sem þeir gætu ekki náð fullum afköst um með óvönum mannskap. í samtalj við starfsmann síldarleitarinnar á Raufarhöfn í gær kom í ljós að bræla var á síldarmiðunum og á takmörk unum að bátarnir gætu athafn að sig. í gærmorgun tilkynntu 14 skip um afla frá sólar- hringnum á undan, samtals 1365 lestir. Steypa bijfi Framhald af bls. 3 Efnið í Ciporexi, eða létt- steypu, samanstendur af sandi, sementi og kalki, en utan á út- veggjum er lag af gufuhertri steypu Ciporexið er notað sem einingar í veggi, bæði út- og innveggi, loft og gólf. Útveggir einbýlishússins að Grundargerði 22 eru 28cm þykk- ir, 25cm. lag er léttsteypa en utan á henni er 3cm. lag gufu- hertrar steypu. í vegghlutunum er einangrun í sjálfu efninu og eru veggirnir fullfrágengnir, þegar þeir hafa verið reist'ir. Ekki gerist þörf að pússa né mála útveggina. Á innveggina, sem ýmist eru 10 eða 15cm. þykkir, má' setja veggfóður, við- arklæðningu eða mála þá, en áður en þeir eru málaðir þarf reyndar að sandspasla þá. Hús með veggjum úr Ciporexi og gufuhertri steypu eru ekki venjuleg steinhús, en þau eru eldtraust. Við húsið að Grundarlandi 22 í Fossvogi, sem er um 200m2 að stærð, er kostnaður við efni í veggi, innveggi og útveggi, um 250 þúsund krónur. Ekki liggur fyrir samanburður við sambæri- legan kostnað við veggi úr venju legri steinsteypu. Grunnur húss- Ins er steyptur á' venjulegan hátt úr steinsteypu. Mjög auðvelt og fljótlegf er að setja veggina upp með hjálp krana. Ætla má, að grunnur húsa með þessum veggjum þurfi ekki að vera eins traustir og húsa úr vejulegri steinsteyþu, þar sem þessir veggir eru mjög léttir. Fréttamaður blaðsins hafði samband við Ólaf Briem hjá Loftleiðum, en hann er eigandi hússins að Grundargerði 22, og spurði hann, hvernig hann teldi, að útveggir af þessu tagi myndu , reynast við íslenzkar aðstæður. Sagði hann, að reynslan yrði að skera úr um það, en þeir hafi gefizt vel víða erlendis, þar sem veðurfar væri svipað og hér á landi. Enn væri ekki ljóst, hver kostnaðarmunurinn yrði miðað , við venjuleg steinhús. Þess yrði að gæta, að við þetta faús yrði enginn kostnaður vegna einangrunar, járns, járnabind- inga, gróf- og fínpússningar að utan eða málunar að utan. Verð sjálfra veggjanna í allt húsið væri um 250 þúsund krónur, en enn væri ekki Ijóst, hver kostn- aðurinn yrði við uppsettingu þeirra. Uppsláttarkostnaður væri mjög lítill. Fylgzt með f lotaæf ingum Eins og- fram hefur komið í. fréttum hafa flotaæfingar staðið yfir að undanförnu á Atlantshafi á vegum NATO. Sovétríkin hafa fylgzt af mikl um áhufíra með þessum æfjng um, og myndirnar tvær sem fylfír.ia þessari frétt sýna vel hve nærri skipum og flugvél um NATÓ-ríkjanna Sovét- menn fara. Á efri myndinni sést sovézkur tundurspillir sigla nær samsíða bandaríska herskípinu SPRINGFIELD, en það er flaggskip flota NATÓ á Atlantshafinu, en á neðri myndinni sjást brezk flugvél og sovézk í nálægð hvorrar annarrar. í fréit sem varnarliðið á Keflavíkurflugvelli sendi út í gær, segir að Sovétríkin hafi greinilega undirbúið vandvirkn islega allar aðgerðir sínar í sambandi við flctaæfingarnar og sé augljóst að þau telji sér mjög mikilsvert að læra ejns míkið cg- þau greti um NATÓ- fletann með þessum iöglegu njósmnn sínum á úthafinu. Til þess hafi þau sérstök skip og flugvélar, sem fylgtst kerfis bundið með ölln, sem gerist. Sem rnark um það að þessi upplýsingaöflun Sovétrílcj. anna er vandlega undirbúin má nefna.að sovézk olíuflutn- ingaskip hafa beðið herskip anna á ákveffnum stöðum víðs vegar á æfingasvæffinu. Að minnsta kosti 18 sovézk skip hafa tekið þátt í þessari upplýsingaöflun, þar á meff al eru bæði herskip og sér staklega útbúnir togarar og önnur fiskiskip. Þá hala fjöl margar sovézkar flugvélar ver ið á ferð og sumar flogið mjög lágt yfir NATÓ-skipin. Tals- menn NATÓ segja að þessi á- hugi Sovétríkjanna hafi þó ekki komið á óvart og nær- vera þeirra geri æfingarnar miklu raunverulegri. Enginn vafi sé á því að meðal ann- ars vilji Rússar nota tækifær ið til að bera æfingar NATÓ saman við flotaæfingar Var- sjárbandalagsins á svipuðum slóffum fyrr í sumar. Margjr Reykvíkjngar munu með ánægju mjnnast skemmt ana og tízkusýnjnga Fóst hræðrakveiina í fyrrahaust er þrívegis fylltu Súlnasal Hó tel Sögu, og urðu þá margjr frá að hverfa. Nú hafa Fóstbræðrakonur á'- kveðið að efna tii skemmtunar með svipuðu sniði n.k. sunnu- dag, 29. september kl. 15,00, einnig í Súlnasalnum Verða þar kaffiveitingar á vegum kvenn- anna, en ýmsir af kunnustu bak- arameisturum borgarinnar munu af einstakri rausn leggja til kökur og sætabrauð til viðbótar þeim kræsingum, sem konurnar sjálfar hafa útbúið. í fyrra var lögð megináherzla á kynningu nýjasta tizkufatnað- ar. Nú verður aftur á móti sýnd fatatízka liðins tíma, bæði inn- lend og erlend, allt frá miðöld- um fram til vorra daga. Flest- ir búninganna eru í einkaeign og hafa ekki verið sýndir opin- berlega fyrr. Að sjálfsögðu munu svo söng- ur og hljóðfærasláttur setja sterk an svip á skemmtuniná. Fjórtá'n Fóstbræður flytja í fyrsta sinn lagasyrpu úr söngleiknum „Fiðl- arinn á þakinu”, sem Magnús Ingimarsson hefur útsett sér- staklega af þessu tilefni. Lítill blandaður kór syngur létt lög, og þeir Ágúst Bjarnason og Krist- inn Hallsson syngja Glúnta. Loks ber svo að nefna hina frábæru kammerhljómsveit: „Virtuosi deila bella musica”, sem hér er stödd af tilviljun og góðfúslega hefur lofað að koma fram á skemmtuninni. Munu þeir leika „con inspirationo scherzo variat- ione spirituose”, Samkomunni lýkur með því, að Karlakórinn* Fóstbræður syngur fáein vinsæl iög undir stjórn söngstjóra síns, Ragnars Björnssonar. Milliskemtiatriða leika þeir Carl Billich og Gunnar Axels- son léft lög á píanó. Kynnir verð- ur hinn þjóðkunni og vinsæli Jón Múli Árnason. Eins og í fyrra rennur allur ágóði af skemmtuninni óskertur í húsbyggingasjóð Fóstbræðra. Aðgöngumiðasala verður í norð uranddyri Hótel Sögu á laugar- dag 28. september milli kl. 3 og 5 e.h. Á sunnudag verður húsið opnað kl. 14,30, en skemmtiatr- iði hefjast stundvíslega kl. 15,15. Húsinæðraféiag Reykjavíkur„ Þriggja vikna sýnikennsla í græn, metisréttum og smurðu brauð. hefst' 1. október. Innritun á þriggja vikhá mat- reiðslunámskeiðin byrja í dag. Upplýsingar í simum 12683, 19248 og 14617.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.