Alþýðublaðið - 27.09.1968, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 27.09.1968, Blaðsíða 9
27- september 1968 ALÞÝÐUBLAÐI& 9 Bréfa— KASSINN Enn um Val Sóbaskapur ÉG ek á hverjum degi um Skúlagötu á leið til vinnu minn- ar. Þá hef ég oft veitt því at- hygli, að vinsæll veiðistaður stráka er á heljarmiklum "stokk, sem liggur út' í sjó í fjörunni Eyrir neðan veginn. Ekki veit ég betur en að um þennan stokk renni saur borgarbúa til sjávar. Ekki er svo vel, að stokkurinn nái,langt út í sjó, því að í stór- straumsfjöru er hann alveg á þurru. Ekki þarf að orðlengja, hversu mikill sóðaskapur það er að draga fisk upp úr þessum ósóma, Dg samt er sóðaskapur að þessu, þó fiskveiðum strákanna sleppi. Er ekki ástæða til að heilbrigð- iseftirlitið láti til sín táka í þessu máli? Vegfarandi. ENN er mikið rætt' manna á meðal um leik Vals og Benfica á dögunum, enda komu úrslitin mönnum vægast sagt mjög á ó- vart. KSÍ getur nú hugsað um það hvað það hefði grætt mikið hefði sambandið verið búið að koma á knattspyrnugetraun hér á landi. Litli strákurinn sem var svo glúrinn að spá rétt í Alþýðu- blaðinu hefði áreiðanlega verið sá eini sem hefði sótt fé í veð- bankann eftir leikinn. En það var nú ekki ætlunin að vera að stríða KSÍ., áhyggjurnar á því heimili eru víst nægar, og Eyja- menn meira að segja komnir í úrslit í bikarkeppninni. Ég hefi orðið var við að marg- ir halda • að Benfica hafi ætlað sér aðeins að gera jafntefli við Val til að fá' betri aðsókn í Lissabon. Þetta tel ég fráleitt og vil benda á eftirfarandi: hnekkir fyrir heimsfrægt lið eins og Benfica að tapa eða ná aðeins jafntefli við óþekkt áhugamannalið norðuráhjara veraldar, lið frá landi sem að- eins telur 200 þús. íbúa eða eins marga og búa í einni götu í stórborgunum. 3. Það bendir ekki til þess að Benficamenn hafi verið á- nægðir með jafntefli hvernig þeir rifust eins og hundar þegar ekki tókst að finna færa leið fram hjá Sigurði Dagssyni & Co. 1. Allir atvinnuknattspyrnu- menn fá bónusgreiðslur eftir frammistöðu. Þannig munaði það Benficamenn miklu hvort það varð jafntefli eða sigur gegn Val. Hitt er svo aftur á móti annað mál hvort Ben- fica hafi kært sig um að vinna mjög með yfirburðum. 2. Það yrði gífurlegur álits- Meira mætti tína til. Valur hefur fengið mikla auglýsingu í Portúgal og menn kæmu þar á- reiðanlega á völlinn þó Benfica hefði unnið með tveimur eða þremur mörkum. Ég efast um, að nokkur maður i Portúgal — frekar en hér heima — hafi bú- izt við að Valur gæti staðið uppi í hárinu á þessu heimsfræga liði. Ég vil svo að endingu þakka Valsmönnum fyrir frábæran leik, leikur þeirra var mikil uppreisn fyrir íslenzka knatt- spyrnu, og mætti verða til þess að augu íslenzkra knattspyrnu- manna almennt, opnuðust fyrir því hvað hægt er að gera — þe'gar v'ljinn er fyrir hendi. Ánægður Valssinni. iiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Rómansa fyrir trompet HÚN HLAUT VERÐLAUNIN í 2. umferð vísubotnasamkeppninnar hlaut Ingibjörg Þórarins- dóttir verðlaunin. Ingibjörg er frá Hjaltabakka í Húnavatnssýslu og hefur dvalið hér í borginni s.l. 20 ár. Hún er afgreiðslustúlka hjá Jóni Símonarsyni, Bræðraborgarstíg 16. Ingibjörg kvaðst hafa gaman af að „hnoða“ saman vísum, en héldi því ekki á lofti. Hún sendj einnig seinnipart í fyrstu umferð. Við óskum Ingibjörgu til hamingju. Þeim sem vilja vera með í 3. umferð skal bent á að fyrriparturinn birtist í' blaðinú I gær. Litla bíó tekur til sýningar í kvöld tékknesku kvikmynd- ina „Rómansa fyrir trompet“, sem gerð er eftir samnefndu ljóði Frantiseks Hrubin. Leik stjóri er Otakar Vávra. Myndin fjallar um ástir kennaraskólanemans Vaneks og Sígaunastúlkunnar Terry. Terry er í fylgd með fjölleika- flokki, sem hefur slegið tjöld um sinum í þorpi Vaneks. Van ek sér hana fyrst, þar sem hún er að selja aðgang að hring- ekju. Þau fara að hittast á kvöldin niður við ána, og ást þeirra er ósvikin. En ýmislegt skyggir á hamingju þeirra. Faðir Te'rryar hefur ákveðið að hún giftist manni nokkrum, sem hefur verið með honum í flokknum í tvö ár. Hann heitir Viktor, og er hið mesta rudda menni, Terry og Vanek ákveða að hlaupast á burt en það fer út um þúfur. Daginn eftir fer flokkurinn burt úr þorpinu, og Terry hefur nú fengjð sinn sess í vagni Viktors. Mörgium ár- um síðar rekst Vanek á Viktor á knæpu. Árin hafa sett mark sitt á báða. Viktor er orðinn gamall og hefur mýkst í skapi. Hann tekur á móti Vanek sem gömlum vjn. Þegar Vanek spyr um Terry, fer Viktor með hann að gröf hennar. Hún hafði dáið tveim mánuðum eft ir fundi þeirra Vaneks. Myndjn hefst á fundi þeirra Framhald á bls. 12. Verzlunarmanna- félag Reykjavíkur Framboðsfresfur Ákveðið hefur verið að viðhafa 'allsherjaratkvæðagreiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um tilnefningu full trúa V.R. á lista Landssambands ísl. verzlunarmanna til kjors fulltrúa L.Í.V. á 31. þing Alþýðusambands íslands. Kjörnir verða 32 fulltrúar og jafnmargir til vara. Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu V.R, fyrir kl. 12 á mánudag, 30. september n.k. KJÖRSTJÓRN. Síld arsöl tunarstúlkur óskast að Sólbrekku í Mjóafirði strax. Fríar ferðir. — Kauptrygging. Upplýsingar í síma 1976 Akranesi. Sildarstúlkur Nokkrar söltunarstúlkur óskast á Söltunarstöðina Drífu •h.f. Neskaupstað. Fríar ferðir — kauptrygging. Uppl. í síma 81419, Rvík. eftir kl. 18 á kvöldin og í síma 64, Neskaupstað. Stúdentar Menntaskólanemar Myndlista og handíðaskóli íslands gengst fyrir undir- ibúningsnámskeiði fyrir menntaskólanemendur og síúd- enta til undirbúnings í byggingarlist Teiknun og málun barna Myndlista og handíðaskóli ísliands efnir að venju til nám- skeiðs í teiknun og málun barna á vetri komandi. Námsflokkar eru 3: : w’ 1. flokkur 6-8 ára • 1 2. flokkur 8-12 ária 3. flokkur 12_14 ára Gjald fyrir námskeið er fcr. 1.000.00. Fjarvíddarteiknun Myndlista Qg 'handíðaskóli íslands efnir til námskeiðs í fjarvíddarteiknun ef næg þátttaka fæst. Vefnaðarnámskeið. Myndlista handíðaskóli íslands efnir til dagnámskeiða í almennum vefnaði, fyrra nám- skeiðið hefst 1. október. Nánari upplýsingar í skrifstofu skólans, Skipholti 1, frá kl. 16—18. — Sími 19821. SKÓLASTJÓRI. ; i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.