Alþýðublaðið - 17.10.1968, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 17- október 1968
Kitstjórar: Krislján Bersi Ólafsson (áb.) og Benedikt Gröndal. Símar*
14900-14903. — Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson. ■— Aug-
lýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu 8 — 10,
Rvlk. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald
kr. 130,00. í lausasölu kr. 8,00 eintakið. — Úíg;: Nýja útgáfufélagið h.f.
DRAUMORAR
Ein fyrsta 'tillaga, sem stjómar
andstaðan lagði fram á Alþingi
að þessu sinni, var á þá lund, að
endurskoða skuli alla starfsemi
Alþingis. Þarf ekki að efast um,
að þessi tillaga er flutt í tillefni af
þeirri gagnrýnli, sem Alþingi hef
ur ordið fyrir, sérstaklega hjá
unga fólkinu. Æskulýðshreyfing-
ar stj ómmálaf lokkanna hafa
mjög Œátið til sín heyra um þetta
mál og háfa varpað frarn ýmsum
a'thyglisverðum hugmynd'um.
Það er án efa rétt, iað margt
Iþarf að breytast í störfum Alþing
is. Fyrir liggur fmmvarp, þar
sem ýmfelegt er tekið til með-
ferðar, svio sem útvarpsumræður
og iannað þvíumlíkt, sem er ærið
forafá'legt í gilldamdíi reglum.
Hins vegar þarf að ganga lengra,
og er vissulega ástæða til að end
urskoða margt 1 þinghaldi okk-
ar.
Þrátt fyrir þetta er ekki rétt að
fordæma Alþingi í heild. Það er
rétt, se-m forsetil íslands benti á
við þingsetningu, iað vegna
breyttra tíma hljóta vilnnubrögð
þingsins ein-nig að breytast. Það
er líka rétt, sem margir hafa bent
á, að þegar þjóðin á við erfið-
feika að etja, er mönnum hætt
við að skeTla skuldinni á valda-
menn og flokka og kenna þhig-
inu um allt, sem -aflaga fer.
Sumir hafa gengið lengra og
hafdið fram hugmyndum um ger
breytta kjördæmaskipan. Er það
ekki ný kenning, að með ein-
menningskjördæmum sé unnt að
lækna öll mdin þjóðfélagsins og
beri því að snúa -afbur til þeirra.
Þetta er að sjál'fsögðu hættuleg
falskennmg. íslendingar hafa síð
an 1933 breytt kosningaskipan
sinni þrep fyrir þrep frá einmenn
ingskjördæmum til hlutfallskosn
inga. Má telja víst, að þjóðin
munil aldrei una því misrétti, sem
þegar mundi koma fram við ein
menningskjördæmi.
Allir þeir 'gallar, sem nú er
bent á við skipan og störf Alþing
is, voru fyrir hendi í tíð einmenn
ingskjördæma. Einstakir þing-
menn sátu þá fastari í kjördæm-
um sínurn en nókkur maður er í
dág, og heilar kynsfóðir liðu án
þess -að % fólksins gæt-u nokkru
sinni snúið sér til þingmanna með
svipaðar skoðanir og það hafði
sjálft. Möguleikar einstakra
manna, fjármagns og flokka til
áhrifa á smáfcjördæmli mundu ó-
tæmándi og milðað við nútíma lýð
ræðistilfinningu óþolandi.
Ungir jafnaðarmenn hafa foent
á, að unnt sé að gera kosningu
með núverandi skipufagi nokkru
persónulegri en hér tíðkast, til
dæmis eins og í Danmörku. Þetta
er atriði, isem rétt væri -að íhugá,
en-da mun r-eynast farsælast að
endurbæta núverandi ríkisskip-
an en gefa sig ekki -á ivald óraun-
hæfum draumórum.
Urslitin i 400
m hl. kvenna
MEXÍCÓBORG, 16.10.: - Hin
franska Colette Besson kom á
óvart í nótt, er ihún vann gull-
verðlaunin í 400 metr-a hlaupi
kvenna ó Óly-mpíuleikunum, en
-hún sigraði brezku stúlkuna
Lillian Böard, sem talin hafði
verið sigurstrangleg, naumlega
óg jafnaði Ólympíumét áströlsku
stúlkunnar Betty Cutbert, 52,0;
áarngur Besson er aðeins 1/10
lakari en heimsmetið í grein-
inni.
Heimsmet í
200 mhlaupi
MEXICO BORG 16.10.: Banda
ríkjamaðurinn Tommlé Smith
vann gullverðlaunin í 200 m.
hlaupi karla á Ólympíuleik-
unum í dag; hann hljóp vega-
lengdina á 19.7, sem er nýtt
heimsmet. Silfurverðlaun
hlaut Peter Norman frá Ástra-
líu, sem varð í öðru sæti, og
bronsverðlaun John Carlos frá
Banda^íkjunium, -sem varð í
Þriðja sæti.
MADRID 16. 10. Dómstóll
í Madrid dæmdi í dag tvo
kvenstúdenta við Háskól-
ann í Madrid til tve'ggja
ára fangelsisvistar fyrir að
hafa dreift út áróðri og
stofnað til ólöglegra funda
halda. Stúlkur þessar voru
við nám í málvísindum og
er mikill kurr í deildarfé-
lögum þeirra í háskólan-
um, sem þegar hafa haldið
með sér mótmælafundi og
staðið fyrir minni liáttar
brennum í mótmælaskyni.
Óvænt úrslit
/3000m
MEXICÓ BORG 16. 10.; -
Kenyemað-uri-nn Amos Biwott
sigraði glæsilega í 3000 metra
h‘indrunla)rhlaupi á Ólympíu-
leikunum í gær; hann hljóp
á 8.51.0 og hlaut gullverðlaun
in; silfrið féll í hlut samlanda
hans Benjamins Togo, sem
hljóp á 8.51.6, en bronslð fékk
Bandaríkjamaðurinn George
Young, sem hljóp á 8.51,8.
íkvéikjur
Framhald af 1. síðu.
heyínu, en hitastigið var athugað
daginn áður en eldurinn kom
upp.
Alþýðublaðið hafði samband
við Vigfús Jónsson bónda að
Laxamýri í gær og spurði hann
nánar um brunann. Eldsins varð
vart klukkan rúmlega tvö í fyrrl
nótt, en þá voru allir í fasta-
svefni. Lítið barh, sonur Bjama
Jónssonar, sem einnig býr að
Laxamýri, vakti foreldra sína,
þar sem ihann grét há'stöfum.
J»á var mikill eldur við suður-
gafl hlöðunnar, sem er sambyggð
fjárhúsum. í fjárhúsunum var
á fjórða hundrað fjár, en í fjósi,
-sem stendur mjög nærri, voru
um 40 nautgripir. Vigfús fór þeg'
ar út til þess að forða fénu. —
Einnig hleypti hann nautgrip-
unum út, þar sem fjósið hafði
verið í hættu, ef eldurinn
breiddist út.
Bjarni Jónsson ók í skyndl
til Húsavikur til að sækja bruna
liðið á Húsavík, sem brá skjótt
við. Sömuleiðis kom fjöldi fólks
bæði úr sveitinni og frá Húsa-
vík á vettvang tll að veita lið
sinni við slökkvistarfið.
Um 700—800 hestar af heyi
voru í hlöðunni. Þar sem nota
þurfti mikið vatn til að slökkva
eldinn inni í hlöðunni, skemmd-
ist mikið af heyi og sömuleiðis
brann talsvert magn. Álítur Vig-
fús, að ekki minna en 200 hest-
ar hafi eyðilagzt í brunanum, en
það er tilfinnanlegt tjón fyrir
Laxamýrarbændur.
Sjálft slökkvistarfið gekk vel
og var því að mestu leyti lokið
um klukkan níu í gærmorgun.
Vatn til slökkvistarfsins fékkst
tiltölulega nálægt hlöðunni, —
Veður var gott um nóttina og
næstum logn.
Vigfús sagði, að augljóst væri
að eldurinn hefði komið upp í
sunnanverðri hlöðunni, ef til vill
á tveimur stöðum, þó að það
væri ekki alveg ijóst. Greini-
legt væri, að kveikt hefðí verið
í hloðunni, þar sem eldurinn
hefði. komið. upp efst' í heyinu
en ekki neðst í því eins og eðli-
legt væri, ef um sjálfsíkveikju
hefði verið að ræða.
Rafmagn er ekkj í hlöðunni
og einsýnt þykir, að ekki hafi
verið hiti í -heyinu, en hitastigið
í hlöðunni var at-hugað daginn
áður en eldurinn kom upp, og
var það eðlilegt.
Sagði Vigfús, að allra álit
væri, að brennuvargur eða
brennuvargar hefðu kveikt í hlöð
unni, en ekki kvaðst hann vilja
ræða það nánar.
Vigfús bað Alþýðublaðið að
færa öllum þeim Húsvíkingum
og samsveitungum, sem þátt
tóku f slökkvistarfinu, þakkir
fyrir þá miklu aðstoð, sem þeir
hafa veitt.
i
"S
s
t
s.
*
s
I
s
I
s
I
s
I
s
I
s
*
s
<
s
I
s
*
s
I
s
I
s
*
s
*
s
V
1
I
s
I
s
>
s
I
s
í
s
<
s
I
s
*
s
I
s
*
s
I
s
I
s
I
S '•
I
s
*
s
I
s
I
s
I
s
I
s
I
s
*
s
I
s
*
s
I
s
I
s
I
s
*
s
I
s
*
s
s
I
s
I
s
>
s
I
s
i
Erlendar
fréttir í
stuttu máli
PRAG 16. 10.: Samkomulag
hefur nú tekj-zt með So-
vétmönnum og Tékkum um
málamiðlun £ sambandi
við áframivaldajidi dvöl
heriiðs Sovétríkjanna í
Tékkóslóvakíu, án þess að
einstök atriði þeirrar mála
miðlunar hafi verið látin
uppi. Forsætisráðherra So-
vétríkjanna, Aleksej Kosy
gin, er væntanlegur til
Prag í dag, en hann verð-
ur formaður sovézkrar
sendinefndar, sem undir-
rita mun væntanlegan
samning Sovétríkjanna og
Tékka, Búizt e'r við so-
vézku sendinefndinni þrem
ur kiukkustundum eftir að
tékkóslóvakiska sendi-
nefndin, sem verið hefur í
Moskvu að undanförnu und
ir forystu Oldrich Cernik,
forsætisráðherra, e'r vænt-
anieg heim. Talið er, að
Andrej Gromyko, utanrík-
isráðherra, og Andrej Gret
sjko, varnarmálaráðherra,
eigi einnig sæti í sovézku
sendinefndinni.
KENNEDYHOFÐA, 16. 10.:
Enn gengur -geimferð „Ap-
ollo 7“ eftir áætlun og eru
menn nú orðnir bjartsýn-
ir um, að Bandaríkjamönn-
um takist ef til vill að
koma mönnum til tungls-
ins fyrir jól, en ferð „Ap-
ollo 7“ skyldi verða nokk-
urs konar prófsteinn á það.
WASHINGTON 15.10.: Vara
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna Nicholas Katzen-
bach, mun eiga viðræður
við Tító Júgóslaviuforseta
í Belgrad á fimmtudag, að
sögn bandaríska utanríkis-
ráðuneytisjns Katzenbach
mun sennilega dveija í Bel-
grad í tvo daga og eiga
fundi meff T£tó og fulltrú-
um júgóslavnesku rikis-
stjórnarinnar um alþjóða-
mál.
WASHINGTON: Bandaríkin
hafa nú rofið stjórnmála-
samband sitt við Panama
vegna byltingarinnar þar í
landi og valdatöku herfor-
ingjastjórnarinnar. Þá hef
ur einnig verið frá því
skýrt, að efnaba-gsaðstoð
Bandarjkjanna vlð Pana-
ma verðj fljótlega tekin til
-endiurskoðunar.