Alþýðublaðið - 16.11.1968, Blaðsíða 12
SS||Jg§|
. . . því nú stendur yfir sá
tími, sem flest slys verða á
árinu.
VÍSIR.
Löggan og klerkurinn
HIMINTUNGLASPÁR
Satúrnuss V. Plútós
Nú er orðið töluvert langt síðan Satúrnus V. Plútó liefur spáð
í liimintunglin liér á síðunni. Ástæðan er einfaldlega sú, að
Satúrnus hefur engar breytingar merkt í himintunglunum, en eins
og skýrt var frá í upphafi gildir hver spá um sig þar til sú
næsta kemur. Nú er sú næsta loksins komin og eru lesendur
beðnir að athuga vel ssnn gang.
Ég lýsi frati á siðaprédikanir
þeirra fullorðnu eftií" að ég
sá revíumar „Þegar a»*»a var
ung“.
Prestur nokkur úti á landi var
mikill hjólreiðagarpur og
ferðaðist að jafnaði um hjól-
andi. Eitt snn var hann á leið
niður brekku í kaupstaðnum
þar sem hann bjó, og sleppti
hann þá höndunum af stýrinu.
Lögregluþjónn staðarins sá til
guðsmannsins, stöðvaði hann
og sagði: — Vitið þér það ekki
prestur minn að það er bann-
að að sleppa höndunum á
hjóli? Prestur horfði nokkra
stund á lögregluþjóninn, en
mælti 'svo hátíðlega: — Vitið
þér það lögregluþjónn minn
igóður að Drottinn almáttugur
stýrir fyrir mig Lögreglu-
þjónninn var ekki af baki
dottinn, en svaraði um hæl;
— En prestur minn, það er
bannað að reiða“.
HRUTURINN, 21. marz til 20.
apríl.
— Nú, svo þið hafið ekki get-
að losað ykkur við alla pening-
ana ykkar fyrir gengisbreyting-
una. Hafið vaðið fyrir neðan
ykkur nú og eyðið öllu strax, ef
ske kynni aS. gengið félli á næst
] unni aftur.
i
NAUTIÐ, 21. apríl til 21. maí.
— Eitthvað voðalegt vofið yfir
fóiki undir þessu merki. Getur
verið að tengdamamma ætli að
dvelja hjá ykkur um jólin, eða
að blaðburðarbarnið gleymi að
koma með Alþýðublaðið?
I
TVÍBURARNIR, 22. maí til 21.
júní.
— Farið á fyllirí áður en
brennivínið hækkar. Blandið í
gosdrykki frá S a n a — svona í
góðgerðarskyni.
KRABBINN, 22. júní til 23.
júlí.
— Lítið í eigin barm, iþað gæti
verið að þið hefðuð gleymt að
þvo ykkur þar.
LJÓNIÐ, 24. júlí til 23. ágúst.
— Þeim, sem einhleypir eru og
búa í „Kuldabeltinu" er bent á
að fá sér maka eða viðhald, ef
eke kynni að hitaveitan klikkaði
í vetur.
MEYJAN, 24. ágúst itil 23. sept.
— Enginn veit sína æfina fyrr
«n öll er. Gangið ekkj yfír á
rauðu ljósi og elskendur atliugi
Þú spyrð kannski sjálfan þig
hvers vegna ég geri þetta?
VELJUM ÍSLENZKT-
(SLENZKAN IÐNAÐ
að á'st þrifst ekki á rauðu ljósi,
allavega ekki í umferðinni.
I
VOGIN, 24. sept. til 23. okt.
— Ef þið eigið miða í happ-
drætti og viljið láta vinning
koma upp á miðann, þá gleymið
að endurnýja; það hefur oft gef-
izt vel.
I
DREKINN, 24. okt. til 23. nóv.
Karlmenn, sem eiga heimtu-
freka konu, sem vill ætíð fá nýj-
an hatt, þegar nágrannakonan
fær sér nýjan hatt, skulu þylja
eftirfarandi málshátt yfir kon-
um sínum: „Þegar ein kýrin
pissar, er annarri mál”.
I
BOGMAÐURINN, 23. nóv. til
21. des.
— Ef svartsýni, þunglyndi,
drungi, sálarflækjur, timbur-
menn og mórall þjá ykkur, þá
látið ekkí undir höfuð leggjast
að lesa BAK-síðuna, sjálfum
ykkur og þeim nánustu til hug-
arléttis.
I
STEINGEITIN, 22. des. tii 20.
jan.
— Hættið að stökkva upp á
nasir ykkar. Það getur verið
hættulegt, þið gætuð dottið nið-
ur aftur og brotið ykkur. Þetta
á sérstaklega við um þá, sem
eiga vanda til að svitna á nef-
inu, því 6vitinn gerir það hált
sem Svell.
VATNSBERINN, 21. jan. tiL
19. febr.
Þeir, undir þessu merki sem
dreymir um að verða stjórnmála-
menn, eru foeðnir að íhuga mjög
nákvæmlega að það er enginn
barnaleikur. í þeim bransa þýðir
ekki að segja, að pabbi manns
sé lögga.
FISKARNIR, 20. febr. til 20.'
marz.
Þeir, sem eiga fyrirtæki á
kúpunni er bent á að eta hangi-
kjöt um jólin, ef ske kynni að
þeir héngju eitthvað lengur
uppréttir fyrir bragðið.
Það eina sem bjaVgar bitaveit
unni í vetur, ef húv bregtzt.
er það, að það er ævjnlega nsik
ið hitamál þegar hún þverr.
Ég get ekki látið undir höfuð leggjast að segja þér að mér
fannst þú hafa alveg rétt fyrir þér þegar þú varst að rífast vi9
manninn þinn í gær.