Alþýðublaðið - 05.12.1968, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.12.1968, Blaðsíða 4
4' ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5- desember 1963 Samvizkuspurningar Reykjavík — HEH. Fyrir jólin í fyrra lagði slökkviliðið ríka áherzlu á að brýna fyrir ahnenningi að sýna varkárni í meðferð elds í undirbúningi jólanna og urn hátíðarnar. Gaf þetta góða raun, því að sjaldan liafa út köll slökkviliðsins verið færri en einmitt í jólamánuðinum í fyrra, í 16 ár hefur ekki verið rólegra lijá slökkvilið- inu í desembermánuði en í fyrra. í byrjun desember 1967 lagði slökkviliðið tuttugu sam vizkuspurningar fyrir almenn ing. Birtust þær í blöðum, sjónvarpi og útvarpi. Allar voru spurningarnar um bruna- varnir. Birtum við hér þess ar spurningar aftur á nýjan leik og vonum, að það stuðli að auknum skilningi almcnn ings á brunavörnum. Fyrst viljum við minna les endur á símanúmer Slökkvi- liðs Reykjavíkur, sem er 11100 SlökkvJ’ið Hafryirfjarðar hef ur símanúmerið 51100. Þess skal getiö, ef fólk þarf á ein hverjum upplýsingum að halda um brunavarnir, að síma- númerið á skrifstofu slökkvt- liðsins er 22040. Koma þá samvizkuspurning- arnar: 1. Vitið þér með vissu síma númer slökkviliðsins eða með hvaða hætti þér getið náð í slökkvilið eða sjúkrabifreið? 2. Er vel tekið til í geymsl um, bílskúr eða á lóð? 3. Hafið þér nokkurn útbún að til slökkvistarfa? 4. Kunnið þér að slökkva eld á byrjunarstjgi t d. í jóla- tré, gluggatjöldum, feiti o.s. írv.? 5. Eru raflagnir og rafmagns tæki í góðu lagi? 6. Eru vartappar af réttri stærð? 7. Eru kynditæki og kyndi klefi í Iagi? 8. Hr-brunaryggingin í lag'? 9. Hafið’ þér slökkvitæki í bifreiðinni, sem þér kunnið að nota? 10. Álítið þér, að yður mundi takast að bjarga sjálfum yður og fjölskyldu yðar, cf elds- voði yrði heima hjá yður? 11. Ilafið þér góða plötu undir straujárnið? 12. Geymið þér eldspýtur þannig að börn nái til? 13. Áminnið þér fólk, sem fer óvarlega með eld, t.d. reyk ir í rúminu? 14. Vitið þér, hvernig ber að haga sér í reyk? 15. Þekkið þér hættuna af benzíni, þynni o.þ I.? 16. Kunnið þér að slökkva eld í fötum? 17. Vitið þér, hvernig á að ganga frá öskubökkum? 18. Þekkið þér hættuna af kertaljósum og vitið þér, hvern ig bezt er að ganga frá þeim? 19. Þekkið þér hættuna af arineldi og vitjð þér, hvað ber helzt að varast við notkun á arni? 20. Þekkið þér skyldur borg- aranna við slökkviliðið? Þau undirstöðuatriði í bruna vörnum, scm fólgin eru í þess- um tuttugu samvizkuspurn- ingum, geta komið í veg fyrir stórslys og miiljónatjón. Það er skylda hvers einasta borg- ara að kunna skil á hinum réttu svörum við þessum spurn ingum. I WEEÉE l iólantdnudi 1 Kammerkótinn FRETTIR I STUTTU MÁLI Reykjavík H. P. Stjórnarfrumvarp um brunavarnir og brunamál var lagt fyrir Alþingi í gær. í at hugasemdum við frumvarpið segir, að samhljóða frumvarp hafi ver'ð flutt á síðasta þjngi í frumvarpinu er gert ráð fyrir sérstakri brunamálastofnun er farj með daglegan rekstur brunamála, og standi fyrir henni brunamálastjóri, er heyri undir félagsmálaráðherra. í athugasemdum við frumvarp- ið, er gerð grein fyrjr brunavörn um á íslandj og nefndir stór- brunar. Síðan er getið um lög, er gilt hafa um brunamál, en þau er, nú eru í gildi, eru frá 1948. Það kemur m.a. fram, að á 5 ára tímabili, árin 1962-1966 að báðum árum meðtöldum, námu samanlagðar tjónabætur tryggingafélaganna vegna bruna, hvað fastejgnir áhrærjr 126 millj. en hvað lausafé áhrær- ír 214 millj. Þetta gerir til jafn- aðar 68 millj. á ári. Ekkj Hggja fyrjr endanlegar tölur um árið 1967, en ljóst er, að á því ári er um algjört met að ræða. Samanburður á tjóni hér á landi og í nágrannalöndunum, sýnir að meðaltjón á íbúa er Kammerkórinn vonar, að þessari tilraun hans til að auka lítið eitt á það úrval hljómlistar, sem við eigum völ á hér um jólaleytið, verði vel tekið og megi verða yður til ánægju. hér tvöfalt til þrefalt hærra en þar, ef núðað er við árin 1963- 1965. í athugasemdunum segir, að mikið af þessum tjónum stafi af ónógri fræðslu um þessi mál, og m.a. sé stefnt að því með þessu frumvarpi, að auka fræðslu stórlega. Frumvarp þetta, er á margan hátt sniðið eftir brunamálalög- gjöf hinna Norðurlandanna, eink um þó Noregs og Svíþjóðar. í fyrirspurnatíma í samein- uðu þingi í gær voru ræddar þrjár fyrírspurnir. Fram var haldiff umræ'ðu um fyrirspurn um öryggisráffstafanir vegna hafíshættu. Kom lítið nýtt fram, en þó teygðist nokkuð úr umræffum vegna þjarks um þingsköp. Miklar umræður urðu um fyrirspurn frá Stelngrími Páls- syni (Ab), en hún var til fjár- málaráðherra um Vestfjarða- áætlun. Hún var í skemmstu máli sem hér segir: Hverjum þáttum Vestfjarðaáætlunar er lokið, hvað líður áætlunargerð um uppbyggingu atvinnulífs’ þar, hefur verið gerð áætlun um samgöngumál, menntamál og raforkumál á Vestfjörð- um. Loks, hvort Vestfjarðaáætl un nái einnig ti'l Strandasýslu, Mangús Jónsson fjármálaráð- herra sagði í svari sínu, að sam- kvæmt ályktun á Alþingi 1963 hafi Framkvæmdabankanum ver ið falið að gera áætlun vegna þess, að um nokkra fólksfækk- un hafði orðið að ræða. Hafi á bankans vegum verið fengnir norskir sérfræðingar en allur kostnaður vegna þeir>"a verið greiddur af Efnahags- og fram- farastofnun Evrópu. Það kom í ljós, að einhæfni atvinnulífsins og skortur á þjón ustu og ýmsum lífsþægindum var orsök fólksfækkunarinnar en ekki tekjur. Þótti því miklu varða, að sam- göngur yrðu bættar. Áætlunin varð til á árinu 1965 og kom þá til framkvæmda. Síðan hefur hún verið endurskoðuð árlega og viðbótarfjárveitingar verið Framhald á 12. síðu. Reykjavík — St. S. Kammerkórinn og Musica da Camera halda jólatónleika í Háteigskirkju 8. og 10. des, og hefjast þeir kl. 8.30. Kammerkórinn söng fyrst í sept ember 1967 á Norrænu tónlistar- hátíðjnni, sem haldin var í Reykjavík, og hefur hann starf- að óslitið síðan. í honum syngja nú 18 manns. Ruth Magnússon hefur verið VELJUM ÍSLENZKT- ÍSLENZKAN iÐNAD stjórnandi kórsins frá uppliafi. Á fyrirhuguðum jólatónleíkum mun hún syngja þrjú einsöngs- lög og leikur Elisha Kahn þá undir á pianó. Musica da camera samanstend ur af fjórum hljóðfæraleikurum, Gisla Magnússyni, harpsicord, Jósef Magnússyni, flauta, Pétri Þorvaldssýni, selló og Kristjáni Steffensen, óbó. Aftan á tónleikaskrá stendur m.a.: Tónlist hefur alltaf verið óað- skiljanlegur hluti jólahátíðar- innar, hvar sem er í heiminum. Hvað verður gert fyrir landbúnaðinn? Reykjavík H. P. í gær var lagt fram stjórn arfrumvarp um ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sam- bandi við breytingu á gengi íslenzkrar krónu. Frumvarp þetta gerir ráð fyrir því, að því fé, sem kem ur vegna útfluttra landbúnað arafurða á re kning þann, sem um getur í 4. gr. 1 nr. 74 1968, skuli ráðstafa í þágu landbúnaðarins samkvæmt á kvörðun landbúnaðarráðu neytisins. Er hér um að ræða geng s hagnað vegna útflutningsaf urða, sem framleiddar voru fyrir 15. nóv. 1968. Áæclað er, að sú fjárhæð, sem um er að ræða í samband; við landbúnaðarafurðir, og ráð- stafa skal samkvæmt þess- um lögum, gsti numið allt að 150 m.lljónum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.