Alþýðublaðið - 08.01.1969, Side 1
Miffvikudagur 8- janúar 1969 — 58. árg. 5. tirt.
Landhelgisgæzlan hefur ^
teiknað meðfylgjandi kort, S
en á þeim sést hvar innan S
landhelginnar bátum allt að S
300 rúmlestum er nú heim- ^
ilað að stunda togveiðar. ^
Efri myndin sýnir veiði ^
svæðin í janúar og febrúar, ^
en á neðri myndinni sjást ^
veiðisvæðin í marz og april. ^
Þau svæðj innan landhelgis- ^
línunnar sem nú verða op- S
in litlu bátunum eru merkt S
með svörtu, en munurinn á S
kortunum tveimur er sá, að S
í marz og apríl verður frið- ^
að svæði fyrir suðaustur- ^
landj stækkað nokkuð og •
fært um leið úr stað. ?
Vinnuveitendur
og ASl sammála
um atvinnumálin
Reykjavík — SJ
Samninganefnd ASÍ hefur a'ð
undanförnu setið marga
fundi með hinum ýmsu full
trúum atvinnurekenda og
sagði Ilannibal Valdimarsson,
forseti ASI, í viðtali við blað
ið í gærkvöldi, að nú væri
verið að reyna að komast að
sameiginlegri niðurstöðu um
nauðsynlegar aðgerðir í at-
vinnumálum. Gera mætti íáð
fyrir að samkomulag náist
um sameiginlega stefnuyfir-
lýsingu í dag, og verður þá
strax beðið um fund með full
trúum ríkisvaldsins. Hanni-
bal sagði, að mjög nauðsyn-
legt væri að efla atvinnulíf
ið hið bráðasta, þar sem yfir
100 manns skráðu sig atvinnu
lausa á hverjum degi. Gert
er ráð fyrir í þessum tillög-
um að settar verði á stofn
atvinnumálanefndir um aljt
land en yfirstjórn þeirra yrði
í höndum Atvinnumálastofn-
unar ríkisins er hefði fram-
kvæmdavald.
Tveir fundir
Samninganefndir sjómanna
og útvegsmaima héldu tvisvar
fundi í gærdag, en ekki hef-
ur enn dregið til neinna tíð-
inda. Næsti fundur verður á
fimmtudag kl. 9.30.
Stóri borinn fer
næst í Kópavog
Reykjavík Þ. G.
Kópavogsbær hefur sótt um afnot af stóra gufubornum, sem
er eign ríkisins og Reykjavíknrborgar. Hafa þeir vilirði fyrir bon-
um, þegar hann hefur lokið verkefni sínu suður á ReykJanesi,
en það verður að líkindum í byrjun febrúar.
Samkvæmt upplýsingum Hjálm- vogslandi, við Kópavogslæk,
ars Ólafssonar, bæjarstjóra í Nýbýlaveg og 1 Meltungulandi.
Kópavogi, hefur heitt vatn Að líkindum verður borinn éett-
fundizt á þremur stöðum í Kópa ur niður í Mcltungulandl, en
______________________—+ þar hefur fundizt mjög góður
hitastigull.
Yfirmarma-
skipti á
vellinum
Þann sextánda þessa
mánaðar verða yfirmanna
skipti á Keflavíkurflug-
velli. Þá tekur M. A. Hadd
en aðmíráll við af Frank
B. Stone aðmíráli, sem
verið hefur hér sl. 2 ár,
eða síðan í janúar 1987.
Yfirmannaskiptin fara
fram, eins og fyrr segir,
16. janúar, kl. 14.30, við
hát'ðlega atliöfn.
Reykjavík
Fiskileitarskipin Hafþór og
Árni Friðriksson halda brátt
úr höfn til að leita að síld,
loðnu, spærling. Munu skipiu
leita víða, því að mikil þörf
er á að afla hráefnis fyrir
síldarverksmiðjur landsins.
Þannig eru bundnar vonir við
að loðnuveiðar geti hafizt fyrr
en endranær, ef aðstæður
reynast heppilegar.
Fyrir áramót var gerð leit
að spærling en vonzkuveður
gerði leitina að engu, og verð
ur reynt aftur á næstunni.
Fyrir nokkrum árum veiddu
tveir togarar nokkuð magn
af spærling á Selvogsbanka
og í fyrrasumar fann Hafþór
álitleg spærlingsmið, sem
ekki voru nýtt. Spærling er
lieppilegast að veiða á sumr-
in og haustin því að þá er
fitumagn hans um helmingi
meira en á þessum tíma árs.
Vonandi gefur fiskileitin
góða raun, því að mikið er
í húfi eins og ljóst er af afla
magni sl. árs.
Hitaveitukerfi hefur verijS í
notkun í Hrauntungu síðan 1964,
og getur það, ásamt nýju kerfi
í Túnbrekku, tekið við taeita
vatnjnu strax og það fæst.
Töluvert magn af heitu raíni
hefur fundizt í Blesugróf, svo
það er ekkí ólíklegt, að eiwsig
sé mikið magn í Kópavogslandi,
og eru Kópavogsbúar bjartsýair
á árangur borananna.
Þrettándaólæti í Firðinnm
Reykjavík, — Þ. G.
Á þrettándakvöld urðu nokk.
ur ólæti í Hafnarfirði og Garða-
hreppi, er hópar unglinga tóku
sig til og drógu ýmislegt drasl
út á götur í því skyni að mynda
farartálma.
Allt lögreglulið Hafnarfjarð-
ar, auk liðsstyrks frá Kópavogi
var kvatt út um klukkan hálf
tíu, en þá höfðu unglingar
myndað farartálma á Strand.
götu og í Ásgarði í Garða-
hreppi. Ekki kom til verulegra
óláta, því að lögreglan tók í
sína vörzlu forsprakka hópanna
og hélt þeim unz hópamir leyst
ust upp. Kann lögreglan í Hafn--
arfirði orðið tökin á unglingun-
um, þegar þeir eru i þessum
þettándaham, en oft liafa verið
töluverðar róstur á þrettónda.
kvöld þar í bæ.
Tvær stórar þrettándabrennur
voru í Hafnarfirði, önnur uppi
við Klaustur, en hin á Flata-
hrauni. Voru brennurnar vel
sóttar og skemmtu menn sér. vjð
söng og annað, sem tilheyrir
þrettándanum.